Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Page 60

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Page 60
36 menning Helgarblað 21. júlí 2017 N orðanpaunk er einn sér- stæðasti tónlistarhitting- ur sumarsins, ættarmót pönkara og áhugafólks um ágenga jaðartónlist sem fer fram á Laugarbakka um verslunar- mannahelgina. Þó að tónlistin sé jafnan mið- punkturinn segja þrír af skipu- leggjendunum að það sé ekki síð- ur pönkhugsjónin sem dregur fólk saman: öll skemmtun fer fram á jafnræðisgrundvelli, hér eru engir styrktaraðilar, engin gróðasjónar- mið liggja að baki og allt skipulag er unnið af þátttakendunum sjálf- um í sameiningu – en þeir sem vilja sækja viðburðinn verða að gerast meðlimir í Hollvinafélagi Norðan- paunks – og mega ekki vera fasistar. Fyrir þá sem synda á móti straumnum „Frá upphafi var lagt upp með að þetta yrði eins konar ættarmót pönkara – fyrir okkur sem nennum ekki á þjóðhátíð eða í fjölskylduúti- leguna,“ segir Ólöf Rún Benedikts- dóttir, myndlistarkona og skáld, sem hefur tekið þátt í Norðan- paunki frá því það var fyrst haldið á Laugarbakka árið 2014. „Þetta er svo rótgróin sena að fólkið í henni þekkist flest vel og það er í raun lygilegt hvað þetta lík- ist mikið ættarmóti,“ segir hjúkr- unarfræðingurinn Stína, Anna Kristín Jóhannesdóttir, önnur úr hópi skipuleggjenda í ár. „Örugg- lega helmingur fólksins á svæð- inu eru meðlimir í hljómsveitun- um sem spila,“ skýtur Ægir Sindri Bjarnason inn í – en sjálfur ber hann á trommur með að minnsta kosti tveimur hljómsveitum á há- tíðinni. Þó að hátíðin kenni sig við pönk segja þau að ekki sé einungis um að ræða einfalt og hratt pönkrokk á tónleikunum, sem fara fram í tveimur rýmum á svæðinu. „Það er fyrst og fremst hugmyndafræðin okkar og það hvernig við gerum hlutina sem er pönk. Tónlistin sjálf spannar alla neðanjarðarsenuna á Íslandi. Þarna er auðvitað pönk en líka dauðarokk, nýbylgja, raftónlist og meira að segja rapp,“ segir Ægir og Stína bætir við: „En þetta er allt tónlist sem fer á móti straumnum eða fær ekki svo auðveldlega rými annars staðar.“ Nokkrar erlendar hljóm- sveitir spila um helgina og sú þekktasta er eflaust svissneski öfgametaldúettinn Bölzer, þá flýg- ur götu-grindcore-sveitin Ramin Kuntopolku frá Finnlandi en hún er skipuð trommuleikara og söngv- ara sem rymur í gjallarhorn frekar en míkrófón og norska unglinga- sveitin Golden Core spilar doom- metal með úkúlele og öðrum óvenjulegum hljóðfærum. Af ís- lenskum sveitum má nefna anarkó- pönkgoðsagnirnar í Dys, ofursvala nýbylgjutríóið Kælan Mikla, sýru- svartmálmsbandið Worm Lust og hryllingsmyndakammersveitina Malnerophrenia. „Það blæs lífi í senuna að hafa þennan viðburð til að hlakka til á hverju ári. Yfir árið skarast mis- munandi hópar innan senunnar ekkert mjög mikið – en þarna koma allir saman og það verður suðu- punktur af alls konar ólíku dóti,“ segir Ægir um mikilvægi Norðan- paunks. „Og þarna er líka alltaf eitthvað nýtt. Við erum með þá óformlega reglu að við bókum ekki sömu böndin ár eftir ár nema þau séu komin með nýtt efni til að spila,“ segir Ólöf og Stína bendir á að ný bönd fái líka undantekningarlaust góð viðbrögð og undirtektir. Gerðu-það-sjálfur og skaða- minnkun Þið sögðuð að þessi samkoma væri hugmyndafræðilega pönk – hvað eigið þið við með því? „Í fyrsta lagi er þetta allt algjör- lega D.I.Y,“ segir Ægir og vísar þar í hin alþekktu sjálfstæðisyfirlýs- ingu pönksins Gerðu-það-sjálf- ur eða do-it-yourself á frummál- inu. „Hver og einn einasti sem kemur að viðburðinum er í sjálf- boðavinnu. Þetta er fólk sem læt- ur hlutina gerast frekar en að bíða eftir því að aðrir láti þá gerast.“ „Þetta viðhorf mótar svo alla stemninguna,“ bætir Ólöf við. „Það eru allir tilbúnir að hjálpa til, gefa vinnu og tíma í að láta þetta gerast. Þessir 150 sem eru ekki í hljómsveit stökkva í eld- húsið, tína upp rusl eða þrífa kló- settin. Það hjálpast allir að láta þetta gerast og vera næs,“ seg- ir hún og tekur fram að þótt þeir sæki í harkalega tónlist þá séu pönkararnir mjúkir inn við beinið og andrúmsloftið á Norðanpaunk því alltaf uppfullt af hlýju og um- hyggju. „Það má líka bæta við að í skipulagningunni vinnum við út frá hugmyndum um skaða- minnkun,“ segir Stína. „Við viljum gera öllum kleift að skemmta sér á þann hátt sem þeir vilja þegar þeir vilja, en á sem öruggastan hátt. Þarna eru til dæmis hjúkr- unarfræðingar á sólarhringsvakt ef einhver slasar sig og svo erum við með öruggt herbergi, það er þolendavænt herbergi þar sem fólk getur komið ef því líður ekki vel eða lendir í einhverju,“ seg- ir hún og nefnir einnig að komið hafi verið upp sérstökum dúk fyr- ir framan tónleikasviðið til að lág- marka hættuna á að fólk slasi sig í ágengum dansinum – þetta eru semsagt kjöraðstæður fyrir virki- lega harkalegan „mosh-pit.“ Fyrir utan tónlistina býður Norðanpaunk svo upp á ýmsa aðra viðburði, til dæmis ljóða- upplestur, teiknirými og vettvang fyrir fólk til að skiptast á bæk- lingum og skoðunum um róttæk stjórnmál og betra samfélag – en í jaðarsenum skapast oftar en ekki frjóasti jarðvegurinn fyrir skap- andi og nýstárlega hugsun um líf- ið og pólitík. Þegar þau eru spurð hvort all- ir séu velkomnir á Norðanpaunk segja þau að þeir sem skrái sig sem meðlimi á heimasíðu eða Facebook-síðu Norðanpaunks geti mætt – en taka þó fram að þau vilji ekki fá ofbeldismenn eða fasista á svæðið. „Í svipuð- um senum erlendis er oft svolítil ógn af fasistum og nýnasistum, en sem betur fer er það ekki þannig hér ennþá. En við tökum mjög harða afstöðu gegn allri þjóðern- ishyggju og öfga-hægrinu.“ n „Það er í raun lygi- legt hvað þetta líkist mikið ættarmóti. „Við tökum mjög harða afstöðu gegn allri þjóðernishyggju og öfga-hægrinu Á móti straumnum Ættarmót íslenskra pönkara, Norðanpaunk, verður haldið í fjórða sinn um verslunar- mannahelgina Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Vinaleg stemning Stína, Ægir Sindri og Ólöf Rún segja að þótt pönkarar hlusti á harða tónlist séu þeir flestir mjúkir inn við beinið svo andrúmsloftið á Norðanpaunki sé vinalegt og gott. Mynd SiGtRyGGuR ARi Bölzer Ramin Kuntopolku

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.