Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Blaðsíða 32
É
g gaf út fyrsta lagið mitt ásamt
Guðmanni Sveinssyni og
hljómsveitinni okkar Trút-
ón, Áfram held ég ein, árið 2008.
Lagið hafði ég áður flutt í þættinum
Bandið hans Bubba, en við áttum
að flytja frumsamin lög í einum
þætti,“ segir Thelma, sem átti bæði
lag og texta.
Eftir Bandið hans Bubba, þar
sem hún lenti í þriðja sæti, byrjaði
hún í hljómsveitinni Silfur og gáfu
þau út plötuna Ekkert vesen árið
2010. Hljómsveitin hætti síðan
störfum árið 2013. „Fyrsta lagið,
sem ég gaf út undir mínu eigin
nafni, ekki með öðrum hljóm-
sveitum, var lagið Mad Crazy, sem
kom út árið 2013. Textinn er eftir
mig, en lagið á ég ásamt Einari Val
Sigurjónssyni.“
Setti upp sýningar með hárbursta að
vopni
„Þetta er hefðbundna klisjan,
foreldrar mínir segja að ég hafi
byrjað að syngja áður en ég byrjaði
að tala,“ svarar Thelma um hvaðan
söngáhuginn hafi komið og hvort
að hún hafi alltaf sungið, „ég var
alltaf að syngja og setja upp leik-
sýningar. Foreldrar mínir eru sjálfir
ekkert í tónlist, pabbi og systkini
mín eru að vísu mjög tónelsk, en
ekkert meira, þannig að ég veit ekki
alveg hvaðan söngáhuginn kemur.“
„Áður en ég fór á Dýrin í Hálsa-
skógi, Ronju ræningjadóttur og
Hárið var ég búin að læra öll lögin
og vildi bara ólm komast úr sætinu
mínu og fara upp á svið. Söngurinn
hefur alltaf fylgt mér og meðan
aðrir voru í hand- og fótbolta þá
var ég í söngtímum og leiklist.“
Kaus að einbeita sér að eigin efni
Thelma er deildarstjóri iðjuþjálf-
unar á hjúkrunarheimilinu Mörk
þar sem verkefnin hennar snúa
að félagsstarfi, endurhæfingu og
hjálpartækjum aldraðra. Tíminn
þar fyrir utan fer í tónlistina og
fjölskylduna.
Eins og áður kom fram gaf
Thelma út plötu með hljóm-
sveitinni Silfur, hún hefur líka
komið fram reglulega með
„cover“böndum á skemmtistöðum
og í einkasamkvæmum eins og
árshátíðum, afmælum, brúðkaup-
um, fermingum og fleira, en þá er
hún ekki að syngja sín lög. „Þannig
að þetta var ekki mitt hugarfóstur
og á ákveðnum tímapunkti fannst
mér þetta orðið gott og vildi fara
að flytja mína eigin tónlist. Eftir
að sonur okkar fæddist þá kaus ég
alla jafna að vera frekar heima hjá
honum. Mér finnst gaman að koma
fram, syngja og fá útrás, en ég færði
fókusinn frekar á að vera mamma
og semja sjálf.“
Kántrískotin plata byggð á eigin
reynslu
„Maður er komin ansi nálægt sín-
um hjartarótum og þetta er í fyrsta
sinn sem ég er að gera eitthvað frá
mínu hjarta á mínum forsendum,“
segir Thelma um væntanlega plötu
sína. „Og það er öðruvísi, þegar
maður stendur og fellur með sjálf-
um sér, en ógnvekjandi um leið. En
það er líka ákveðin huggun í því, ég
er svo sátt við það sem ég er að gera
núna. Og það er bara plús ef öðrum
líkar tónlistin líka,“ segir Thelma.
Platan verður kántrískotin og
kántrítónlist snýst um að segja
sögur. Lögin fjalla ekki bara um
ástina eða hjartasorg, heldur er hún
uppgjör á fólki og aðstæðum í lífi
Thelmu. „Sumir hafa komið og far-
ið, sumir gefið manni gott og aðrir
ekki, bara eins og lífið er. Þetta er
svolítið mitt uppgjör á því. Þannig
að þetta hefur bæði verið erfitt en
jafnframt hollt ferli.“
„Ég hef miklar skoðanir, hef frá
mörgu að segja og hef aldrei verið
talin kona fárra orða. Ég er að segja
ákveðnar sögur, í stað þess að leggja
mesta áherslu á að semja grípandi
lag eins og ég hef stundum gert.“
Thelma semur bæði lög og texta,
en segist ekki spila svo vel á hljóð-
færi. „Ég fæ laglínuna í hausinn
á mér. Sú sem helst þar er sú sem
á að koma í gegn og það er hún
sem ég held áfram með. Maðurinn
minn á hins vegar mun auðveldara
með þetta og semur til dæmis ara-
grúa af lögum á gítar eins og ekkert
sé. Hann aðstoðar mig við að lenda
lögunum mínum ef svo má segja.
En hann á að mestu leyti lögin á
plötunni og ég textana.“
Eiginmaður Thelmu, Magnús
Örn Magnússon, er alinn upp á
tónlistarheimili, en faðir hans er
Magnús Eiríksson, „þannig að þetta
er bara í erfðunum og uppeldinu
hjá honum. Eiginmaðurinn er upp-
tökustjóri líka, hljóðjafnar og sér
um grafíkina líka. Þannig að platan
verður svo sannarlega heimagerð.
Við erum listamaðurinn, um-
boðsmaðurinn, útgefandinn og
dreifingaraðilinn og það á alla jafna
við um íslenska tónlistarmenn,
nema þú sért stærra nafn.“
Fékk áskorun um að gefa út eigið efni
„Ég fór í viðtal hjá Kristínu Ruth
á FM957 í tilefni af því að við
komumst í úrslit í jólalagakeppni
Rásar 2 fyrir síðustu jól með lagið
Viskí um jól. Við Kristín Ruth
þekkjumst frá því við vorum yngri
og hún segir við mig: „Jæja, Thelma
mín, er svo ekki kominn tími á
eigin plötu? Eigum við ekki að
segja bara að árið 2017 verðir þú
komin með eigin plötu, Spotify-
reikning og málið er dautt! Og ég
bara: „Uhh, jú.“
Thelma segir að það sé gott að
hafa viðmið og setja sér markmið,
það setji ákveðna pressu á mann
og einnig sé nauðsynlegt að standa
með sjálfum sér. „En svo er þetta
alltaf ákveðið ferli, bæði huglægt
og verklegt, þannig að ég hef ekki
viljað setja ákveðinn punkt. En við
stefnum á 2017 og miðum við það,
en svo leyfi ég bara lífinu að gerast,
enda snýst platan um það.“
Hvort það næst verður tíminn
að leiða í ljós, en á meðan verða
fleiri sögur til í lögum Thelmu.
Thelma Hafþórsdóttir Byrd vinnur að fyrstu plötu sinni
Thelma Hafþórsdóttir Byrd hefur sungið frá því að hún var barn að aldri, tók þátt í
Bandinu hans Bubba og söng með hljómsveitunum Trútón og Silfur. Tónlistin er hennar
ástríða og vinnur hún nú að útgáfu sinnar fyrstu plötu, sem mun eingöngu innihalda
frumsamið efni. Fyrsta smáskífan, Humming My Song, var frumflutt á Bylgjunni þann
13. júlí síðastliðinn.
Semur um perSónulega
reynSlu í kántríStíl
Vinnur að eigin plötu
Thelma vinnur nú að sinni fyrstu
plötu sem mun eingöngu inni-
halda frumsamið efni. Stefnir
hún á að platan komi út í ár.
thelma á æskuárunum „Þegar ég
var krakki setti ég upp söng- og leiksýn-
ingar vopnuð blýanti, hárbursta eða öðru
áþekku.“
Fjölskyldan Við gullFoss
Thelma er gift tónlistarmanninum Magnúsi Erni
Magnússyni og eiga þau saman Magnús Þór, sem
er að verða þriggja ára. Fyrir átti Magnús Örn
Helga Örn sem er 11 ára.
maggi Við upptökur
Maggi við upptökur lagsins
Humming my song. Hinn
hæfileikaríki Davíð Sigurgeirs-
son spilaði síðan inn sóló-gítar.
Bandið hans
BuBBa Thelma
tók þátt í Bandinu
hans Bubba og
flytur hér lag á
sviði árið 2008.
textaBrot úr laginu When
push Comes to shoVe, sem
Verður næsta smáskíFa
Væntanlegrar plötu thelmu
When they think I am about to surrender
after they put me up against the wall
When it‘s better to say nothing at all I
will speak my mind
And no matter what they try to tell me
I‘m gonna keep on spreading my wings
while I‘m moving up against the stream
with my head held high
Höfundur: Thelma Byrd maí 2017