Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Blaðsíða 35
Fædd og uppalin? Fædd og uppalin í Nafla alheimsins, vest- urbænum í Kópavogi. Mér Finnst gaMan að ... standa á sviði með míkrófón og kynna í hinum ýmsu verkefn- um sem ég fæ í hendurnar. Næsta verkefni hjá mér er Miss Universe Iceland, þar sem ég verð kynnir og ég hlakka mikið til. Er svo hrikalega athyglissjúk, sjáið þið til. síðasta kvöldMáltíðin: Djúsí pitsa með extra osti, ananas og skinku. Ég mundi slafra henni í mig á fallegri strönd við sólarlag. Ég væri einungis íklædd bikiníi. Mjög mikilvægt atriði. Brennd eða graFin? Ég held að þetta sé það eina í lífinu – eða eftir lífið sem mér er sama um. Hvað gerirðu Milli kl. 17–19? Klæði mig í húsmæðra- búninginn, set rúllur í hárið, elda mat og sinni börnunum. saMFélagsMiðlar eða dagBlöðin? Samfélagsmiðl- arnir. Regla númer eitt: Ef það er ekki á samfélagsmiðlunum þá gerðist það ekki. Hvað ertu Með í vinstri vasanuM? Er klædd í kyn- þokkafullar tigernáttbuxur akkúrat núna sem eru vasalausar. Bjór eða Hvítvín? Hvor- ugt, þar sem ég hef aldrei bragðað áfengi. Hver stjórnar Fjar- stýringunni á þínu HeiMili? Ég er drottning fjarstýr- ingunnar og stýri dagskránni með harðri hendi. Eða ekkert svo harðri, en ég á hana og enginn má snerta hana þegar ég sest við sjónvarpið. Hvernig var Fyrsti kossinn? Vandræðalegur, sveittur (var á Spáni) og óþarflega mikil tunga upp um allan munn frá mótkyssara mínum. Gef honum það að við vorum ung og óreynd. Koss sem leiddi ekki til ástarsam- bands. Hver væri titill ævisögu þinnar? „Þetta reddast“. Grjótharður titill sem lýsir mér mjög vel. Er að eðlisfari mjög jákvæð og sé sjaldan fram á að eitthvað reddist EKKI. Hver er drauMaBíllinn? Rauður blæju Lamborghini og ef hann er ekki til rauður að þá læt ég sprauta hann rauðan því ég væri mjög rík ef ég ætti hann. Fyrsta starFið? Kópavogs- bær tapaði líklega gríðarlega mikið á að borga mér laun sem starfsmað- ur unglingavinnunnar þar sem ég eyddi flestum dögum undir runna einhvers staðar og reyndi að gera sem minnst. Er sem betur fer með meiri metnað í dag. Hvaða oFurkraFt værir þú til í að vera Með? Ég vildi að ég gæti flogið. gist í FangakleFa? Nei, jesús minn almáttugur, þá myndi lögreglumaðurinn hann afi minn snúa sér við í gröfinni og hund- skamma mig. sturta eða Bað? Sturta. HúðFlúr eða ekki? Húð- flúr. Fallegt flúr er sexí. Hvaða leynda HæFileika HeFur þú? Ég held að ég sé búin að flagga öllum mínum hæfileikum fyrir þá sem fylgjast með mér. Ég ligg ekki eins og ormur á gulli á svoleiðis. Ég leyfi þeim (hæfileikunum) bara að flakka og vona svo það besta. Hvað Fékk þig til að tárast síðast? Ég er hri- iikalega viðkvæmt blóm og það þarf lítið til að ég tárist. Ég táraðist síðast yfir mjög svo ósorglegu atriði í þáttunum Empire, þar sem hún Rhonda dó. Getið rétt ímynd- að ykkur hvernig ég hora og grenja yfir alvöru sorglegum atriðum fyrst að ég felldi tár yfir Rhondu. FyrirMynd í líFinu? Mamma og pabbi. Klassískt svar en kemur beint frá hjartanu. Svo er vinkona mín hún Ellen DeGeneres kona sem ég lít mikið upp til. Hvaða sögu segja Foreldrar þínir endur- tekið aF þér? Sagan af því þegar ég hljóp á harðaspretti beint á ljósastaur og nýju gleraugun mín enduðu inni í enninu á mér. Svo kem ég útgrenjuð heim og það fyrsta sem mamma sagði var: ,, æi, Eva mín. Þetta voru ný gleraugu.“ Aumingja mamma og pabbi, voru í endalausum útgjöldum að splæsa í ný gleraugu þar sem ég braut þau flest um leið og þau lentu á nefinu á mér. Sagan þegar ég datt í Tjörnina í Kraftgallanum lifir góðu lífi ennþá líka. ertu Með einHverja FoBíu? Hata, hata pöddur. Allt sem hreyfist og er í pödduætt hata ég. Hver er Besta ákvörðun seM þú HeF- ur tekið? Að bragða aldrei áfengi. Furðulegasti Matur seM þú HeFur Borðað? Ekki séns að ég borði mat sem er furðulegur. Hvað er neyðarlegasta atvik seM þú HeFur lent í? Henda snappi í my story þar sem ég hristi ákaft ber brjóstin. Átti að fara á vinkonur mínar. Ekki spyrja af hverju ég var að senda það snapp á þær samt. klukkan Hvað Ferðu á Fætur? Er A-manneskja og er vöknuð flesta morgna um 7.30. Ég þarf að nýta daginn. leigirðu eða áttu? Er eins og kóngarnir í landinu og á. Hvaða Bók er á nátt- Borðinu? Það eru alltaf háklassabókmenntir á mínu borði. Akkúrat núna liggur þar OK! slúðurblað, People Magazine og ævisaga Caitlyn Jenner (fyrrum Bruce Jenner). Með HverjuM líFs eða liðnuM Myndir þú vilja verja einni kvöld- stund? Ellen DeGeneres. Ávísun á gott kvöld. Hver er Fyrsta endur- Minning þín? Ég sit á traktornum í Króatíu með Marko frænda og rúnta um sveitina. Ilmurinn sem er í loftinu er blandaður af grasi og grilllykt. Traktorinn keyrir að virðist yfir fugl. Marko stoppar traktorinn og fuglinn hoppar undan honum. Ég anda léttar og við höldum rúntin- um áfram. Good times. líFsMottó? Stay where the sun shines. Ég held mig sólar- megin í lífinu og þó að blessuð sólin skíni ekki alltaf þá bý ég bara til mína eigin sól. uppáHalds útvarps- Maður/stöð? Ég hlusta yfir- leitt á K100 og eru Svali og Svavar í uppáhaldi hjá mér. Svo verð ég að nefna Sigga Hlö stórvin minn líka. uppáHalds Matur/ drykkur? Ég er einföld og það þarf lítið til að gleðja mig. Pitsa með skinku, ananas og extra osti klikkar seint og svo er það Cockta, ávaxtakók frá hinu landinu mínu, Króatíu, sem er mitt uppáhald. uppáHalds tónlistar- Maður/HljóMsveit? Bruno Mars á sérstakan stað í hjarta mínu og eftir að hafa farið á tónleika með honum í apríl, þá held ég að enginn muni taka sess hans. Gjörsamlega geggjaður. uppáHalds kvikMynd/ sjónvarpsþættir? Klár- lega Notebook. Ástarsaga sem læt- ur mann horgrenja svo mikið að það er vandræðalegt. Elska hana. Svo eru það hið klassíska svar um þættina, en það eru Friends. Engir þættir munu nokkurn tímann toppa þá snilld. uppáHalds Bók? Me Before You. Bók sem hélt mér frá upphafi til enda. Lét mig grenja með ekka (ok, ég grenja samt ekki yfir öllu) og brosa og hlæja. Svona ástarvæl sem ég elska. uppáHalds stjórn- MálaMaður? Fylgist svo lítið með pólitík að það er hálfvandræðalegt. Þannig að svar mitt er pass. Hef enga skoðun á stjórnmálafólki. „Flagga öllum hæfileikum mínum og vona það besta“ Gleðigjafinn Eva Ruza heldur sig sólarmegin í lífinu Eva Ruza Miljevic, gleðigjafi, kynnir, skemmtikraftur og Snapchat-drottning (evaruza), er löngu orðin landsþekkt fyrir kynningar sínar í meðal annars Color Run, Miss Uni- verse Iceland og Kvennahlaupinu og meðal fylgjenda hennar á Snapchat sem skipta orðið þúsundum. Undirbúningur fyrir Miss Universe í september er hafinn og verður Eva Ruza kynnir aftur í ár. Eva Ruza svarar spurningum vikunnar. uppHitun Fyrir kvenna- Hlaupið Eva Ruza var kynnir í Kvennahlaupinu í sumar. eva elskar Bruno Snapchat-verkefni fyrir Gaman Ferðir og Bruno Mars. silFurdrottning Eva Ruza klæddist silfurkjól þegar hún var kynnir á Miss Universe Iceland 2016. Hún verður einnig kynnir í keppninni í ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.