Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Side 35
Fædd og uppalin? Fædd
og uppalin í Nafla alheimsins, vest-
urbænum í Kópavogi.
Mér Finnst gaMan að
... standa á sviði með míkrófón
og kynna í hinum ýmsu verkefn-
um sem ég fæ í hendurnar. Næsta
verkefni hjá mér er Miss Universe
Iceland, þar sem ég verð kynnir og
ég hlakka mikið til. Er svo hrikalega
athyglissjúk, sjáið þið til.
síðasta kvöldMáltíðin:
Djúsí pitsa með extra osti, ananas
og skinku. Ég mundi slafra henni í
mig á fallegri strönd við sólarlag. Ég
væri einungis íklædd bikiníi. Mjög
mikilvægt atriði.
Brennd eða graFin? Ég
held að þetta sé það eina í lífinu –
eða eftir lífið sem mér er sama um.
Hvað gerirðu Milli kl.
17–19? Klæði mig í húsmæðra-
búninginn, set rúllur í hárið, elda
mat og sinni börnunum.
saMFélagsMiðlar eða
dagBlöðin? Samfélagsmiðl-
arnir. Regla númer eitt: Ef það
er ekki á samfélagsmiðlunum þá
gerðist það ekki.
Hvað ertu Með í vinstri
vasanuM? Er klædd í kyn-
þokkafullar tigernáttbuxur akkúrat
núna sem eru vasalausar.
Bjór eða Hvítvín? Hvor-
ugt, þar sem ég hef aldrei bragðað
áfengi.
Hver stjórnar Fjar-
stýringunni á þínu
HeiMili? Ég er drottning fjarstýr-
ingunnar og stýri dagskránni með
harðri hendi. Eða ekkert svo harðri,
en ég á hana og enginn má snerta
hana þegar ég sest við sjónvarpið.
Hvernig var Fyrsti
kossinn? Vandræðalegur,
sveittur (var á Spáni) og óþarflega
mikil tunga upp um allan munn
frá mótkyssara mínum. Gef honum
það að við vorum ung og óreynd.
Koss sem leiddi ekki til ástarsam-
bands.
Hver væri titill
ævisögu þinnar? „Þetta
reddast“. Grjótharður titill sem lýsir
mér mjög vel. Er að eðlisfari mjög
jákvæð og sé sjaldan fram á að
eitthvað reddist EKKI.
Hver er drauMaBíllinn?
Rauður blæju Lamborghini og ef
hann er ekki til rauður að þá læt
ég sprauta hann rauðan því ég væri
mjög rík ef ég ætti hann.
Fyrsta starFið? Kópavogs-
bær tapaði líklega gríðarlega mikið
á að borga mér laun sem starfsmað-
ur unglingavinnunnar þar sem ég
eyddi flestum dögum undir runna
einhvers staðar og reyndi að gera
sem minnst. Er sem betur fer með
meiri metnað í dag.
Hvaða oFurkraFt værir
þú til í að vera Með? Ég
vildi að ég gæti flogið.
gist í FangakleFa? Nei,
jesús minn almáttugur, þá myndi
lögreglumaðurinn hann afi minn
snúa sér við í gröfinni og hund-
skamma mig.
sturta eða Bað? Sturta.
HúðFlúr eða ekki? Húð-
flúr. Fallegt flúr er sexí.
Hvaða leynda
HæFileika HeFur þú? Ég
held að ég sé búin að flagga öllum
mínum hæfileikum fyrir þá sem
fylgjast með mér. Ég ligg ekki eins
og ormur á gulli á svoleiðis. Ég
leyfi þeim (hæfileikunum) bara að
flakka og vona svo það besta.
Hvað Fékk þig til að
tárast síðast? Ég er hri-
iikalega viðkvæmt blóm og það
þarf lítið til að ég tárist. Ég táraðist
síðast yfir mjög svo ósorglegu
atriði í þáttunum Empire, þar sem
hún Rhonda dó. Getið rétt ímynd-
að ykkur hvernig ég hora og grenja
yfir alvöru sorglegum atriðum fyrst
að ég felldi tár yfir Rhondu.
FyrirMynd í líFinu?
Mamma og pabbi. Klassískt svar
en kemur beint frá hjartanu. Svo er
vinkona mín hún Ellen DeGeneres
kona sem ég lít mikið upp til.
Hvaða sögu segja
Foreldrar þínir endur-
tekið aF þér? Sagan af því
þegar ég hljóp á harðaspretti beint
á ljósastaur og nýju gleraugun mín
enduðu inni í enninu á mér. Svo
kem ég útgrenjuð heim og það
fyrsta sem mamma sagði var: ,, æi,
Eva mín. Þetta voru ný gleraugu.“
Aumingja mamma og pabbi, voru
í endalausum útgjöldum að splæsa
í ný gleraugu þar sem ég braut
þau flest um leið og þau lentu á
nefinu á mér. Sagan þegar ég datt í
Tjörnina í Kraftgallanum lifir góðu
lífi ennþá líka.
ertu Með einHverja
FoBíu? Hata, hata pöddur. Allt
sem hreyfist og er í pödduætt hata
ég.
Hver er Besta
ákvörðun seM þú HeF-
ur tekið? Að bragða aldrei
áfengi.
Furðulegasti Matur
seM þú HeFur Borðað?
Ekki séns að ég borði mat sem er
furðulegur.
Hvað er neyðarlegasta
atvik seM þú HeFur lent
í? Henda snappi í my story þar
sem ég hristi ákaft ber brjóstin.
Átti að fara á vinkonur mínar. Ekki
spyrja af hverju ég var að senda
það snapp á þær samt.
klukkan Hvað Ferðu á
Fætur? Er A-manneskja og er
vöknuð flesta morgna um 7.30. Ég
þarf að nýta daginn.
leigirðu eða áttu? Er eins
og kóngarnir í landinu og á.
Hvaða Bók er á nátt-
Borðinu? Það eru alltaf
háklassabókmenntir á mínu borði.
Akkúrat núna liggur þar OK!
slúðurblað, People Magazine og
ævisaga Caitlyn Jenner (fyrrum
Bruce Jenner).
Með HverjuM líFs eða
liðnuM Myndir þú vilja
verja einni kvöld-
stund? Ellen DeGeneres.
Ávísun á gott kvöld.
Hver er Fyrsta endur-
Minning þín? Ég sit á
traktornum í Króatíu með Marko
frænda og rúnta um sveitina.
Ilmurinn sem er í loftinu er
blandaður af grasi og grilllykt.
Traktorinn keyrir að virðist yfir
fugl. Marko stoppar traktorinn og
fuglinn hoppar undan honum. Ég
anda léttar og við höldum rúntin-
um áfram. Good times.
líFsMottó? Stay where the
sun shines. Ég held mig sólar-
megin í lífinu og þó að blessuð
sólin skíni ekki alltaf þá bý ég bara
til mína eigin sól.
uppáHalds útvarps-
Maður/stöð? Ég hlusta yfir-
leitt á K100 og eru Svali og Svavar
í uppáhaldi hjá mér. Svo verð ég að
nefna Sigga Hlö stórvin minn líka.
uppáHalds Matur/
drykkur? Ég er einföld og það
þarf lítið til að gleðja mig. Pitsa
með skinku, ananas og extra osti
klikkar seint og svo er það Cockta,
ávaxtakók frá hinu landinu mínu,
Króatíu, sem er mitt uppáhald.
uppáHalds tónlistar-
Maður/HljóMsveit?
Bruno Mars á sérstakan stað í
hjarta mínu og eftir að hafa farið
á tónleika með honum í apríl, þá
held ég að enginn muni taka sess
hans. Gjörsamlega geggjaður.
uppáHalds kvikMynd/
sjónvarpsþættir? Klár-
lega Notebook. Ástarsaga sem læt-
ur mann horgrenja svo mikið að
það er vandræðalegt. Elska hana.
Svo eru það hið klassíska svar um
þættina, en það eru Friends. Engir
þættir munu nokkurn tímann
toppa þá snilld.
uppáHalds Bók? Me Before
You. Bók sem hélt mér frá upphafi
til enda. Lét mig grenja með ekka
(ok, ég grenja samt ekki yfir öllu)
og brosa og hlæja. Svona ástarvæl
sem ég elska.
uppáHalds stjórn-
MálaMaður? Fylgist
svo lítið með pólitík að það er
hálfvandræðalegt. Þannig að svar
mitt er pass. Hef enga skoðun á
stjórnmálafólki.
„Flagga öllum hæfileikum
mínum og vona það besta“
Gleðigjafinn Eva Ruza heldur sig sólarmegin í lífinu
Eva Ruza Miljevic, gleðigjafi, kynnir, skemmtikraftur og Snapchat-drottning (evaruza),
er löngu orðin landsþekkt fyrir kynningar sínar í meðal annars Color Run, Miss Uni-
verse Iceland og Kvennahlaupinu og meðal fylgjenda hennar á Snapchat sem skipta
orðið þúsundum. Undirbúningur fyrir Miss Universe í september er hafinn og verður
Eva Ruza kynnir aftur í ár. Eva Ruza svarar spurningum vikunnar.
uppHitun Fyrir kvenna-
Hlaupið Eva Ruza var kynnir í
Kvennahlaupinu í sumar.
eva elskar Bruno
Snapchat-verkefni fyrir Gaman
Ferðir og Bruno Mars.
silFurdrottning Eva Ruza
klæddist silfurkjól þegar hún var kynnir á
Miss Universe Iceland 2016. Hún verður
einnig kynnir í keppninni í ár.