Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2017, Side 42
Dinosaur jr. var stofn­uð árið 1984 af þeim J Mascis gítarleikara, Lou Barlow bassaleikara og Murph trommara og tóku þeir upp þrjár plötur áður en mannabreytingar urðu á síðustu öld. Árið 2005 komu upprunalegir meðlimir aftur saman og hafa þeir gefið út fjórar plötur eftir sameininguna. Alls hefur Dinosaur jr. gefið út ellefu plötur og kom sú nýjasta, Give a Glimpse of What Yer Not, út árið 2016. Platan innihélt tals­ vert af nýju efni og hlaut mikið lof gagnrýnenda og aðdáenda sveitarinnar. Kynntist Dinosaur jr. í gegnum hjólabrettin Kvikmyndagerðarmaðurinn Haraldur Sigurjónsson er mikill aðdáandi Dinosaur jr. og hefur beðið spenntur eftir komu þeirra hingað til lands og ætlar að sjálf­ sögðu að mæta á tónleikana, sem verða hans fyrstu með Dinosaur jr. „Ég kynnist þeim í gegn­ um hjólabrettin seint á níunda áratugnum,“ segir Haraldur. „Ég var að vinna í hjólabretta­ búðinni Hazar Bazar, sem var á Skólavörðustíg og í hjólabretta­ blöðunum voru alltaf auglýsingar frá hinum og þessum hljómsveit­ um. Þarna uppgötvaði ég sveitir eins og Red Hot Chili Peppers, Smashing Pumpkins og Dinosaur jr.“ „Maður heyrði líka lögin í hjólabrettamyndunum, ekki leiknum myndum, heldur klukku­ tímalöngum myndum frá helstu hjólabrettafyrirtækjum,“ segir Haraldur. „Í þeim voru gæjar að skeita fyrir fyrirtækin og taka rosaleg trikk á brettin og spiluð rokktónlist yfir. Á þessar myndir horfðu allir skeitarar dáleiddir til að læra ný trikk og að sjá upp­ áhaldsgæjann sinn skeita.“ Eftir að hafa kynnst Dinosaur jr. í gegnum hjólabrettin fór Haraldur að kaupa plötur með sveitinni og var Kiddi í Hljóma­ lind (Kristinn Sæmundsson) duglegur að aðstoða hann. „Kiddi fylgdist vel með og benti manni á hitt og þetta, „heyrðu þú fílar svona, ég er með eina plötu fyrir þig“ átti hann til að segja þegar maður kom,“ segir Haraldur. „Dinosaur jr. urðu mjög frægir í Englandi þegar þeir tóku lag Cure, Just Like Heaven, árið 1989. En tónlist þeirra er ekki fyrir alla. Þetta er hjólabretta­pönk­, söngv­ arinn er með sérstakan söngstíl og þetta er hrátt rokk. Þeir gáfu út sína fyrstu plötu árið 1985, en sú sem seldist mest var sjötta plata þeirra árið 1994, þá voru allir mínir vinir í hljómsveitum og ég með kameru að taka upp.“ Upphitunarsveit sækir inn- blástur í Dinosaur jr. Reykvíska sveitin Oyama mun sjá um upphitun, en hún spilar jaðarrokk í anda tíunda áratugarins og sækir mikinn innblástur í Din­ osaur jr. Sveitin gaf plötuna Coolboy út árið 2014 við góðar undirtektir og síð­ astliðið vor kom smáskífan Handsome Devil út. Oyama vinnur nú að efni fyrir næstu plötu. Áhrifamikið jaðarrokk Dinosaur jr. Haraldur Sigurjónsson er mikill aðdáandi sveitarinnar Bandaríska jaðarrokksveitin Dinosaur jr. sækir nú Ís- lendinga heim, en hún mun halda tónleika í Silfurbergi í Hörpu á morgun, laugardaginn 22. júlí. Einn af þeim sem býður spenntur eftir tónleikunum er Haraldur Sigur- jónsson, sem hefur verið aðdáandi sveitarinnar frá því seint á níunda áratugnum. AðdáAndi SveitArinnAr Haraldur Sigurjónsson kvik-myndargerðarmaður hefur verið aðdáandi Dinosaur jr. síðan á níunda áratugnum. BjóðA upp á jAðArrokk Meðlimir dinosaur jr. oyAmA HitAr upp Sveitin oyama er undir miklum áhrifum frá dinosaur jr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.