Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Síða 2
2 Helgarblað 1. september 2017fréttir
Spurning vikunnar
Nei. Ég fer þangað einhvern tímann en það er ekki á
dagskrá á næstunni.
Guðrún Jónsdóttir
Nei, og ég fer alveg hundrað prósent ekki. Ég á ekki
viðskipti við búðir sem eru með fjöldaframleiðslu eins
og er þarna.
Elín Arna Kristjánsdóttir
Hefurðu farið í H&M?
Já, og það var fínt. Dóttir mín keypti fyrir rúmar 8.000
krónur.
Björk Þráinsdóttir
Nei, það hef ég ekki gert og það er ekki á stefnuskránni.
Hildur Evlalía Unnarsdóttir
„ Barnapössunin
vatt hratt upp á
sig. Það var brjálað að
gera hjá mér í júlí en er
aðeins rólegra núna.
Svo er ég orðin mjög
mikið bókuð í kringum
jól og áramót.
Í dýragarðinum Sara kveðst alla tíð
hafa verið mikil barna- og dýramanneskja.
„Það skemmti-
legasta sem ég geri“
n Sara Lind passar börn á Tenerife n Gefur íslenskum foreldrum frí í fríinu
É
g hef passað börn frá því að ég
man eftir mér. Svo það kom
engum á óvart þegar ég fór
að bjóða upp á barnapössun
hérna á Tenerife.“ Þetta segir Sara
Lind Annþórs dóttir sem flutti frá Ís-
landi til Tenerife fyrir sjö mánuðum.
Söru hafði alltaf langað að búa í út-
löndum og ákvað að prófa Tenerife
af tveimur ástæðum. „Í fyrsta lagi
er alltaf sól hérna. Síðan var leigu-
verðið svo lágt.“
Frí í frínu
Fyrstu mánuðina bjó Sara Lind,
sem er 22 ára, með vinkonu sinni
og systur en þær eru nú báðar
komnar aftur til Íslands. Sara ákvað
þó að vera lengur og hefur ekki hug
á að flytja heim á næstunni. Áður
en hún flutti út vann Sara á ung-
barnaleikskóla í Reykjavík. Sam-
hliða barnapössun á Tenerife er
Sara í fjarþjálfun og hefur náð
miklum árangri síðustu mánuði. Þá
leggur hún mikið upp úr heilbrigð-
um lífsstíl og í september byrjar
Sara í spænskunámi.
Tenerife er einn vinsælasti ferða-
mannastaður Íslendinga. Út frá því
kviknaði sú hugmynd að bjóða ís-
lenskum ferðamönnum upp á
barnapössun. „Ég er búin að passa
óteljandi börn á Íslandi. Það er alltaf
einhvern sem þekkir einhvern sem
getur mælt með mér. Fólk setur
barnið sitt ekki í hendurnar á mann-
eskju sem það veit ekkert um,“ segir
Sara sem kveðst einstaklega lunkin
og fær þegar kemur að því að hugsa
um börn. „Barnapössunin vatt hratt
upp á sig. Það var brjálað að gera hjá
mér í júlí en er aðeins rólegra núna.
Svo er ég orðin mjög mikið bókuð í
kringum jól og áramót.“
Passar á öllum tímum
sólarhringsins
Sara segir að ýmsar ástæður séu
fyrir því að foreldrar óski eftir pöss-
un fyrir börnin sín í fríinu. Stundum
vilji þeir geta farið út að borða í ró og
næði eða einfaldlega tekið einn dag
til að liggja í sólbaði og slaka á. „Þá
kem ég sterk inn. Ég fer til dæmis oft
með börnin á ströndina, eða leik við
þau á hótelinu. Ég hef líka farið með
þau á hótelskemmtanir og stundum
koma þau heim til mín. Ég hef líka
passað yfir nótt.“
Þá ætlar Sara að bjóða upp á nýja
þjónustu í vetur en það er að fara
með fjölskyldum í ferðir um eyj-
una, til dæmis í skemmtigarða, þar
sem hún sér um börnin á meðan
foreldrarnir skella sér í stóru renni-
brautirnar. „Allir sem ég hef passað
fyrir hafa hrósað mér. Það eina sem
fólk kvartar yfir er að það hefði vilj-
að vita af mér fyrr. Ég hef engan hug
á að hætta þessu í náinni framtíð.
Enda er þetta það skemmtilegasta
sem ég geri.“
Áhugasamir geta fylgt Söru á
Snapchat undir nafninu saralind94.
Þá er hún með síðu á Facebook sem
heitir Íslenskumælandi pössun á
Tenerife. n
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Sara Lind Annþórsdóttir Nýtur lífsins á Tenerife.