Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Síða 4
4 Helgarblað 1. september 2017fréttir
V
on er á kínverskri sendi-
nefnd 10. september næst-
komandi sem kemur hing-
að til lands til að kynna sér
opinbert eftirlit og framleiðslu í
landbúnaði. Fyrst og fremst snýr
heimsóknin að sauðfjárræktinni,
framleiðslu og vinnslu lamba- og
kindakjöts. Koma sendinefndar-
innar tengist fríverslunarsamningi
Íslands og Kína sem tók gildi 1. júlí
2014 og er þáttur í að fá heilbrigðis-
vottun kínverskra yfir valda svo
unnt verði að flytja á Kínamarkað
kindakjötsafurðir. Verði af því gætu
opnast mikilvægir markaðir, bæði
fyrir dýrari afurðir en ekki síð-
ur fyrir þá hluta lambsins sem eru
ódýrari og seljast síður hér á landi.
Formaður Landssambands slát-
urleyfishafa segir að menn treysti á
að af þessu geti orðið strax á næsta
ári.
Staða sauðfjárbænda tvísýn
Sláturleyfishafar hafa boðað veru-
lega lækkun á afurðaverði til sauð-
fjárbænda nú í haust, allt að 35
prósenta lækkun hjá sumum fyrir-
tækjum. Slík lækkun, ofan á tíu
prósenta lækkun í fyrrahaust, er
reiðarslag fyrir sauðfjárbændur og
ljóst að sumir þeirra munu ekki
standa af sér svo gríðarlegt tekju-
tap. Lækkunin jafngildir því að
laun sauðfjárbænda skerðist um
í það minnsta helming. Ástæður
lækkunarinnar segja afurðastöðvar
vera lokun á mörkuðum erlendis,
einkum Rússlandsmarkaði og
Noregs markaði, sem valda því að
ekki fæst viðunandi verð fyrir út-
flutt kindakjöt. Fríverslunarsamn-
ingur milli Kína og Íslands tók gildi
1. júlí 2014 en enn á eftir að opna
fjölmarga kafla samningsins, þar á
meðal nálega alla kafla sem snúa
að innflutningi á matvælum til
Kína. „Það var fljótlega upp úr því
að samningurinn var gerður að
óskað var eftir heimild til útflutn-
ings á þessum afurðum en þá kom
í ljós að Kínverjar eru með ákveðn-
ar vinnuaðferðir sem felast í því að
þeir vilja fá ítarlegar upplýsingar
héðan, leggja mat á þær og koma
því síðan til að gera úttekt af þessu
tagi,“ segir Þorvaldur Þórðarson,
framkvæmdastjóri markaðsstofu
Matvælastofnunar.
Kínverjarnir koma
Sendinefndin kínverska er sem fyrr
segir væntanleg hingað til lands 10.
september og mun hún kynna sér
hvernig opinberu eftirliti er hátt-
að, sækja heim afurðastöðvar og
kynna sér sauðfjárrækt á Íslandi.
Að því loknu heldur nefndin heim á
leið, skrifar skýrslur og afhendir kín-
verskum yfirvöldum. „Þeir eru hing-
að komnir til að sannreyna að opin-
bert eftirlit sé með þeim hætti sem
þeir hafa fengið upplýsingar um og
hvort það uppfylli þær kröfur sem
gerðar eru varðandi heilbrigðis-
þætti í kindakjötsframleiðslu sem
gerðar eru í Kína,“ segir Þorvaldur
enn fremur.
Slíkt vinnulag þarf að viðhafa
þegar kemur að hverjum þætti frí-
verslunarsamningsins fyrir sig,
hvað varðar matvælainnflutning.
Fram til þessa hefur aðeins verið
gengið frá heilbrigðisvottun til-
tekinna afurða villtra fiska. Sendi-
nefnd frá Kína kom hingað til
lands í maí árið 2016 og í lok júní
sama ár var undirritaður samning-
ur sem staðfesti að umræddar af-
urðir uppfylltu heilbrigðiskröfur
kínverskra stjórnvalda. Þorvaldur
segir að þótt svo skammur tími
hafi liðið í því tilfelli sé ekki hægt
að spá fyrir um hversu langan tíma
það muni taka að ná niðurstöðu
varðandi lambakjöt. Spurður
hvort nokkuð bendi þó til annars
en að niðurstaða kínversku sendi-
nefndarinnar verði jákvæð hvað
þetta varðar vill Þorvaldur ekki
fullyrða um það. „Það hafa auð-
vitað farið á milli upplýsingar en
þeir eru komnir hingað til að vinna
sitt áhættumat og meta stöðuna
og munu að því loknu kynna þær
niðurstöður.“
Treysta á að af þessu verði
Ágúst Andrésson, forstöðumaður
Kjötafurðastöðvar Kaupfélags
Skagfirðinga og formaður Lands-
samtaka sláturleyfishafa, segir að
sláturleyfishafar treysti á að Kína-
markaður opnist innan skamms.
„Við treystum algjörlega á að af
þessu verði. Við vitum að það eru
mikil gæði í verkferlum og fram-
leiðslu í sláturhúsum og afurða-
stöðvum hér á landi, með því betra
sem gerist í heiminum. Ég reikna
því ekki með öðru en við fáum
grænt ljós á þetta og við gerum ráð
fyrir því í okkar framtíðarplönum.
Ég á von á að eftir þessa heimsókn
þeirra, úttekt á sláturhúsunum og
sauðfjárbúgreininni sem slíkri, þá
gangi þetta allt saman eftir og að
heimild fáist til að flytja lambakjöt
og sauðfjárafurðir til Kína. Þá líklega
mun það hins vegar ekki ganga eft-
ir fyrr enn næsta haust, árið 2018,
því svona vottun er sjaldnast aftur-
virk og slátur tíð nú í haust verður
yfirstaðin þegar gengið verður frá
þessu.“
Tækifæri á markaðnum
Mjög miklir hagsmunir eru í húfi
því í Kína eru umtalsverðir markað-
ir fyrir lambakjöt og er það vel þekkt
vara á Kínamarkaði. Markaðurinn
þar er mjög stór og vaxandi, kaup-
máttur í Kína hefur farið gríðarlega
vaxandi með stækkandi millistétt
en einnig er þar markaður fyrir dýr-
ar afurðir. „Við sláturleyfishafar höf-
um gert rannsóknir á tækifærum á
markaðnum og vitum að það væri
hægt að markaðssetja þar bæði
það sem teljast vera dýrari bitar en
sömuleiðis afurðir sem almennt eru
ódýrari. Með beinum innflutningi
á markaðinn myndum við fá verð
sem munar töluvert um í þessum
efnum, þetta á bilinu 15 til 20 pró-
sent hærra verð.“
Hægt að afsetja ódýrara kjöt
Þær lambakjötsbirgðir sem í
landinu eru nú saman standa eink-
um af ódýrari afurðunum. Hryggir
eru nánast uppurnir og læri langt
komin. Einkum eru það síður og
frampartar sem ekki hafa selst.
Ágúst segir að markaður sé fyrir
þær afurðir í Kína. „Klárt mál. Við
þekkjum að ódýrari hlutar af lamb-
inu, síður og hálsar og þess háttar,
hafa verið að seljast á Asíumarkaði
og eru eftirsótt vara þar. Allt er þetta
hluti af lambaskrokknum og þess
vegna partur af uppgjöri við sauð-
fjárbændur sem slátra hjá okkur.
Með því að koma þessum afurðum
á Kínamarkað værum við að skjóta
styrkari stoðum undir reksturinn og
auka heildartekjumyndunina fyrir
þessar afurðir. Það eru hins vegar
líka markaðir þarna fyrir bestu bit-
ana.“
Jafnvægi þarf að nást
En eru sláturleyfishafar, í þessu
ljósi, að skjóta sig í fótinn með
þessari miklu lækkun á afurðaverði
núna í haust? Ef sauðfjárbænd-
ur skera verulega niður, fækka fé,
bregða jafnvel búi vegna þess, eiga
sláturleyfishafar þá ekki á hættu að
geta ekki annað eftir spurn á þenn-
an markað þegar hann opnast?
„Nei, ég held að staðan sé sú
að við erum búin að trúa því mjög
lengi að þetta sé alveg að fara að
gerast, að þessi markaður sé að
opnast, það sé bara alveg hand-
an við hornið. Í raun á það við
um fleiri verkefni sem hafa verið í
gangi varðandi markaðssetningu á
lambakjöti. Það sem er nýtt núna
er að í nýjum sauðfjársamningi eru
teknir frá fjármunir í markaðsstarf
erlendis, 140 milljónir á ári fyrstu
þrjú árin af samningnum. Það
munar um það en það tekur tíma
að fá ávöxtun þess starfs. Það er það
sem við þurfum að gera núna, að
draga úr framleiðslunni tímabund-
ið og reyna að hafa einhverja stjórn
á því hvernig hún dregst saman. Í
öðru lagi eigum við að setja aftur á
útflutningsskyldu til að jafna stöðu
afurðastöðva og bænda til að koma
á jafnvægi milli framboðs og eftir-
spurnar á okkar mikilvægasta
markaði, innanlandsmarkaðnum.“
En hvernig á að vera hægt að
setja á útflutningsskyldu, ef ekki eru
markaðir til að taka við því kjöti líkt
og nú er staðan?
„Nei, við erum hins vegar að
framleiða 20 prósentum of mikið,
eins og komið hefur fram í máli
landbúnaðarráðherra og ég tek bara
undir það. Innanlandsmarkaðurinn
er í dag um 65 prósent af því sem við
framleiðum og hefur verið það. Það
þýðir að 35 prósent þurfa að fara á
erlenda markaði. Af því eru svona
15 prósent sem eru raunhæfur út-
flutningur í dag, þar sem er verið
að borga hærra verð eða svipað og
gerist hér á landi. Það er í sjálfu sér
markaður fyrir afganginn en það
eru markaðir sem borga mun lægra
verð.“
Gæti orðið skortur
Hafið þið ekki af því áhyggjur, ef
af þessum samdrætti í framleiðslu
verður, að hér á heimamarkaðnum,
mikilvægasta markaðnum, verði
vöntun á vinsælustu bitunum. Það
gætu þá verið hryggir og þar með
lambafille, svo dæmi séu tekin. Ef af
því yrði, er þá ekki hætt við að kall-
að yrði eftir innflutningi sem myndi
veikja ykkar stöðu á markaði?
„Við munum ekki geta staðið í
vegi fyrir innflutningi því það er
til staðar heimild fyrir slíku. Það er
jú alveg viðbúið að ef framleiðsla
myndi dragast saman um 20 pró-
sent þá gæti orðið erfitt fyrir okkur
að ná endum saman með að eiga
nægjanlegt magn af slíkum afurð-
um.“ n
Kínverjarnir koma Von er á kínverskri sendinefnd til
landsins til að taka út sauðfjárræktina. Í framhaldinu
gætu opnast markaðir í Kína fyrir kindakjöt sem gætu
haft verulega jákvæð áhrif fyrir greinina.
Kínverjar
gætu bjargað
sauðfjárbændum
n Von á sendinefnd til að taka út kindakjötið n Miklir möguleikar á markaði með sívaxandi millistétt„Við erum
hins vegar
að framleiða 20
prósent of mikið
Ágúst Andrésson Forstöðumaður
Kjötafurðastöðvar Kaupfélags Skagfirðinga
og formaður Landssamtaka sláturleyfis-
hafa.
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is