Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Page 50
26 fólk - viðtal Helgarblað 1. september 2017
V
iðar, sem er 32 ára, er
fæddur og uppalinn á
Akur eyri. Sautján ára gam
all flutti hann til Reykjavík
ur og hefur meira og minna búið á
höfuðborgarsvæðinu síðan. Í dag
leigir hann íbúð á Völlunum þar
sem honum líkar vel. Dóttir hans,
Carmen Lind, sem er átta ára býr
með móður sinni í Bretlandi. Við
ar er öryrki, sem má rekja til bak
meiðsla eftir slys sem hann lenti
í árið 2003, en hann hefur verið
frá vinnu í tæpt ár. Alkóhólism
inn hefur víða komið við sögu í
fjölskyldu Viðars en systir hans
lést eftir tíu ára baráttu við fíkni
efnadjöfulinn. Veikindi hennar og
andlát gáfu Viðari nýja sýn á lífið.
Hann tekur engu sem gefnu og
er þakklátur fyrir lífið. Með húmor
inn að vopni, sem og skemmtilega
sýn á fótbolta, hefur Viðar náð til
fjölda fólks á Snapchat. Þá hefur
miðillinn hjálpað Viðari að yfir
stíga ýmsar hindranir en á milli
fjögur og fimm þúsund manns
horfa á hvert einasta myndskeið
sem hann setur á Snapchat. Við
ar setur markið hátt en hann vill
ná upp í tíu þúsund áhorf, á hvert
myndskeið, áður en hann fer að
leita leiða til að hagnast fjárhags
lega á því að vera snappari.
Aðspurður hvernig það kom til
að hann ákvað að reyna fyrir sér
sem snappari svarar Viðar að hug
myndin hafi komið til hans uppi
í rúmi. „Fyrrverandi kærastan
mín lá öll kvöld uppi í rúmi, að
horfa á hina og þessa snappara.
Ég lá alltaf við hliðina á henni og
var orðinn mátulega þreyttur á að
hlusta á stelpur tala um snyrtivör
ur öll kvöld. Eitt kvöldið fékk ég þá
hugmynd að ég gæti gert mitt eig
ið snapp, þar sem ég gæti talað um
enska boltann, sem er mitt helsta
áhugamál.“
Morguninn eftir hófst Viðar
handa við að taka upp sitt fyrsta
myndskeið. Hann viðurkennir fús
lega að hann hafi alltaf verið mjög
athyglissjúkur. Draumastarfið,
þegar hann var yngri, var að verða
leikari. Sá áhugi kom sér vel þegar
hann byrjaði að stilla sér upp fyrir
framan símann. Í fyrstu var snapp
ið þó aðeins hugsað fyrir vini Við
ars sem vita hvað hann er mikill
viskubrunnur um enska boltan
um. „Það gerðist ekki mikið fyrstu
tvo mánuðina. Það voru kannski
á milli 100 og 200 að horfa á hvert
myndskeið. Í vor stækkaði þetta
svo allt í einu. Þá var ég líka að
gefa bíómiða og pítsur á snappinu
til að fá fleiri til að adda mér. Ég
þarf þess þó ekki lengur. Þetta er
orðinn svo mikill snjóbolti,“ segir
Viðar og tekur upp símann. Hann
opnar Snapchat og rennir yfir
vinabeiðnirnar sem hafa hrannast
upp síðustu 20 mínúturnar, frá því
að við settumst niður og byrjuð
um að tala saman. „Þetta er alltaf
svona. Núna er ég að fá um 200
nýja inn á snappið mitt á dag.“
Besta vinna í heimi
Viðar segist fyrst í vor hafa gert
sér grein fyrir því hvað
Snapchat er öflugur miðill. „Þá fór
ég líka að leggja meiri kraft í þetta.
Síðan varð algjör sprengja núna í
ágúst. Núna er fólk farið að biðja
mig um að vera aðeins persónu
legri í bland við boltann. Það er
aldrei að vita nema ég láti verða
af því. Svo ætla ég brydda upp á
alls konar nýjungum á snappinu
í vetur. Til dæmis að taka viðtöl
og mögulega láta einhvern annan
taka yfir snappið mitt í einhverja
klukkutíma, af og til.“
Þrátt fyrir að vera kominn
með mörg þúsund fylgjendur
á Snapchat þá segist Viðar ekki
vera farinn að hagnast á því fjár
hagslega. „Ég er auðvitað búinn
að fá hitt og þetta en mig langar
að stækka meira áður en ég fer
að reikna með tekjum. Ég er ein
faldlega ekki kominn á þann stað
að ég nenni því. Mér hefur staðið
til boða að setja inn auglýs
ingar, og fá borgað fyrir að segja
einhverja vitleysu, en maður segir
ekki já við hverju sem er.“
Taplaus eftir átta heimaleiki
Í október fer Viðar með hóp Ís
lendinga á Anfield í helgarferð
til Bretlands þar sem Liver
poolmenn fá erkifjendurna í
Manchester United í heimsókn.
Viðar verður fararstjóri en til
stendur að hann fari reglulega til
Bretlands með hópa frá Íslandi.
„Þetta er nýtt verkefni og tækifæri
sem mér bauðst eftir að ég byrjaði
að snappa. Fólk hefur gaman af
mér. Það hefur áhuga á því sem ég
er að gera og fyrir það er ég þakk
látur.
Að vera snappari er skemmti
legasta vinna sem hægt er að vera
í. Ég get unnið heima hjá mér,
þegar ég nenni því og gert það
sem mig langar.“ Hann segir mestu
vinnuna fólgna í því að svara pósti
frá fólki. „Ef ég lít ekki á símann
í hálftíma þá bíða mín allavega
20 skilaboð. Fólk talar, meira að
segja, stundum við mig eins og
ég sé þjálfari Liverpool en ég les
auðvitað bara sömu fréttir og allir
aðrir.“
Það fer ekki á milli mála að
Viðar er grjótharður stuðnings
maður Liverpool. Liverpool
skrautmunir eru víða um íbúð
ina og hann sjálfur er klæddur
Liverpoolpeysu. Það er því ekki
að undra að gleðin skíni úr and
liti hans þegar hann segir blaða
manni að hann hafi átta sinnum
gert sér ferð á Anfield til að sjá liðið
sitt spila. Í öll skiptin hefur Liver
pool sigrað andstæðinginn. „Það
eru ekki margir aðdáendur sem
hafa náð þeim árangri.“
Þá gagnrýnir Viðar, líkt og
Viðar Skjóldal
er um þessar mundir einn
umtalaðasti snappari Ís-
lands. Viðar er með þús-
undir fylgjenda á sam-
félagsmiðlinum þar sem
hann ræðir aðallega um
enska boltann. Blaða-
maður DV heimsótti
Viðar í Hafnarfjörðinn í
vikunni þar sem spjallað
var um fótbolta, daglegt
amstur og systur hans,
Sigrúnu Kristbjörgu, sem
lést árið 2010.
Langar í kærustu
Kristín Clausen
kristin@dv.is
„Þá fór ég líka að
leggja meiri kraft
í þetta. Síðan varð algjör
sprengja núna í ágúst.
Núna er fólk farið að biðja
mig um að vera aðeins
persónulegri í bland við
boltann.
„Fólk talar, meira að
segja, stundum við mig
eins og ég sé þjálfari Liverpool