Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2017, Qupperneq 63
menning 39Helgarblað 1. september 2017
Úr listheiminum
n Íslenski sviðslistahópurinn
Marble Crowd var nýlega til-
nefndur til gagnrýnendaverðlauna
tímaritsins Tanz
fyrir verkið
„Moving
Mountains
In Three
Essays“ sem
var frumsýnt
í mars á aðal-
sviði Kampnagel-
leikhússins í Hamborg. Tímaritið
Tanz er stærsta og virtasta útgáfa
um dans í Evrópu og Marble Crowd
var þar í hópi þekktra danshöf-
unda á borð við Sidi Larbi Cherka-
ouis, Damien Jalet og Akram Khan.
n Á dögunum var Kristín
Eysteinsdóttir endurráðin
leikhússtjóri Borgar-
leikhússins og
mun því gegna
stöðunni næstu
fjögur árin, til 31.
júlí 2021.
n Í vikunni var tilkynnt að þýski
leikstjórinn Werner Herzog
yrði heiðursgestur á alþjóðlegri
kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF,
sem hefst í lok
september.
Herzog,
sem er
einhver
virtasti
og sér-
stæðasti
kvikmynda-
gerðarmaður
samtímans og hefur gert 19 leiknar
myndir í fullri lengd og 29 heim-
ildamyndir, verður með meistara-
spjall á hátíðinni. Áður hafði verið
tilkynnt að franski Cannes-verð-
launaleikstjórinn Olivier Assayas
mundi einnig heimsækja hátíðina.
n Uppáhaldsóperuaría Íslendinga
er þokkafullur söngur sígauna-
stúlkunnar Carmen úr samnefndri
óperu eftir Frakkann Georges
Bizet. Þetta kom í
ljós í kosningunni
Klassíkin
okkar – heimur
óperunnar sem
fór fram á vef
RÚV í sumar.
Í öðru sæti var
arían Nessun dorma úr óperunni
Turandot eftir Puccini og í því
þriðja var dúettinn Au fond du
temple saint úr Perluköfurunum
eftir Bizet. Verkin verða leikin á
tónleikum í Hörpu föstudags-
kvöldið 1. september.
n Nokkrar listahátíðir fara fram
á landinu um helgina. Gjörn-
ingahátíðin A! fer fram í þriðja
sinn um helgina, íslenskir sem
erlendir mynd- og sviðslistamenn
sýna gjörninga víðs vegar um
Akureyri og víðar á Norðurlandi. Á
Flateyri fer Gamanmyndahátíð
Flateyrar fram.
Verða alls sýndar
23 íslenskar
gamanmyndir,
þar af sjö
frumsýningar á
nýjum íslenskum
myndum. Meðal
leikstjóra mynda í ár má nefna
Jón Gnarr, Grím Hákonarson og
Benedikt Erlingsson. Í Kópavogi
fer svo mynd- og tónlistarhátíðin
Cycle Art Festival fram í þriðja
sinn, en þema hátíðarinnar í ár er
Fullvalda/Nýlenda. Listasýning,
tónleikar, gjörningar, umræður
og bíósýningar eru meðal annars
á dagskránni sem stendur yfir
í rúmlega þrjár vikur. Á meðal
þeirra sem eiga verk á hátíðinni er
Ragnar Kjartansson.
n Þriðjudaginn 5. september hefst
Bókmenntahátíð í Reykjavík
2017. Aldrei þessu vant fara fyrstu
viðburðirnir fram á Akureyri en
formleg opnun
hátíðarinnar er
á miðvikudag
í Reykja-
vík. Fjöldi
þekktra
erlendra
rithöfunda
auk íslenskra les
upp úr verkum sínum og ræðir þau
á fjölda viðburða víðs vegar um
borgina. Meðal þátttakenda eru
Han Kang, Jonas Hassan Khemiri,
Morten Strøksnes, Esmeralda
Santiago og sagnfræðingurinn
Timothy Snyder.
„Þarna fékk ég
staðfest að það
sem við lögðum í þessa
litlu sýningu var að segja
eitthvað meira og dýpra
en við höfðum áttað
okkur á sjálfar.
korsettum og gátu ekki andað,“
bætir Kolbrún við. „Það er heil
mikil pólitík í því. Svo fóru kon
ur að gera kröfu um að geta and
að og klæddu sig úr korsettunum.
Þó svo að við höfum ákveðið að
hafa sýninguna létta og leikandi
er þarna ákveðinn pólitískur þráð
ur sem gefur henni dýpt. Sýningin
er þannig samfélagsleg líka, ekki
bara sjónræn.“
„Hugsið ykkur bara charles
tontímabilið,“ segir Vilborg, „the
roaring 20’s – það var þvílík bylting
og pönk og frelsi. Í fyrsta sinn gátu
konur sýnt að þær væru kynverur.“
„Tíska er líka skúlptúr“
En þetta er engin venjuleg tísku
sýning, því konurnar köfuðu
líka í tónlist og hreyfingar hvers
tímabils. Kolbrún og Vilborg tóku
að sér að leggjast yfir Youtube og
finna lög og dansspor sem rím
uðu við hvert tímabil. „Eftir að
hlusta lon og don komum við svo
til Ásdísar ballerínu með hug
myndirnar okkar, og hún setti
upp ramma sem við gátum hreyft
okkur innan,“ útskýrir Kolbrún.
„Tíska er líka skúlptúr,“ segir
Vilborg, „visst rými utan um lík
amann og ákveðin dansspor ríma
svo við klæðnað hvers tíma. Mað
ur finnur af hverju rokkið kom
með ákveðin spor – pilsin voru jú
ástæðan. Svo er ég stolt af því að
við skyldum ákveða að hafa eins
mikla tónlist og mögulegt var eftir
konur. Það gefur okkur ennþá
meiri kraft.“
Eins og áður sagði voru við
brögð við sýningunni 17. júní
feiki góð og fagnaðarlátunum ætl
aði aldrei að linna. Eftir lok sýn
ingarinnar fóru listakonurnar
fram í sal og blönduðu geði við
áhorfendur. Kolbrún segir það
hafa verið ómetanlegt að finna
þessi sterku viðbrögð eftir allan
hláturinn, hitann og svitann.
„Þarna var heill saumaklúbb
ur kvenna um sjötugt, sem réðu
sér vart fyrir kæti. Þær sögðust
sjá sjálfar sig í svo mörgum atrið
anna. Svo kom þarna til mín kona
sem hafði lengst af búið erlendis.
Hún þurfti að faðma mig í bak og
fyrir og sagði mér svo fallega að
orkan sem við hefðum framkall
að á sviðinu væri hreinlega ekki
til neins staðar annars staðar í
heiminum, þessi hráa kvenorka.
Það kom í ljós að þarna var kom
in engin önnur en Janis Carol –
söngkona sem var ein af stjörnun
um okkar þegar við vorum ungar.
Þarna fékk ég staðfest að það sem
við lögðum í þessa litlu sýningu
var að segja eitthvað meira og
dýpra en við höfðum áttað okkur
á sjálfar,“ segir Kolbrún.
„Já, talandi um kvenorkuna,
hvað er eiginlega að í íslensku
leikhúsi, af hverju eru þessar kon
ur ekki sjáanlegar í meira mæli á
sviðum leikhúsanna?“ spyr Vil
borg. „Við erum flottar og hávær
ar og dönsum og erum í frábæru
formi. Það er í það minnsta ekki
hægt annað en að taka eftir okk
ur.“
Blaðakona skýtur inn spurn
ingu um hvort túristaútgáfu sé
að vænta, eða hvort þær hyggi á
fleiri sýningar en þessar þrjár í
september. Óvissan með fram
tíð Iðnó setur dálítið strik í reikn
inginn, því Leikhúslistakonur
50+ eiga sér engan annan fastan
samastað.
Vilborg harðneitar því að
túristaútgáfa verði sett á fjalirnar
en það eru líka nokkur ljón í veg
inum.
Kolbrún bendir á að verk með
svona mörgum konum úr mis
munandi áttum sé alls ekki auð
velt í framkvæmd. „Fjöldinn er
dálítil bremsa, því allar þurfa
jú að hafa tíma og þetta er ekki
launuð vinna fyrir neina okkar.
Það er leiðigjarnt heilkenni á
listum hversu mikið við gefum
vinnuna okkar og getum það
bara að ákveðnu marki. Flestar
okkar eru komnar með upp í
kok af slíku. Samt kemur fyrir að
maður dettur inn í hóp sem verð
ur svona ótrúlega skemmtileg
ur, og þá er hægt að gera undan
tekningu með bros á vör.“ n
Leikhúslistakonur
50+ Það er mikil gleði og
skemmtun í sýningunni.
Glæsileiki Vilborg Halldórsdóttir sýnir innlifun á sviði Iðnós.