Víkurfréttir - 22.12.2003, Side 34
Margir hafa notað tækifærið og
komið í bæinn til að versla og
gist í góðu yfirlæti á hótelinu
nóttina eftir.
Þeirra á meðal voru hjónin Bald-
ur Þór Baldvinsson og Sigrún
Þorláksdóttir frá Kópavogi sem
eyddu nóttinni hér í bæ eftir
verslunarleiðangur á laugardeg-
inum. „Gistingin var bara rosa-
lega fín í alla staði og eins og
maður gat best ímyndað sér“,
sagði Baldvin í samtali við Vík-
urfréttir, og bætti við að þau hafi
rekist á auglýsinguna í Morgun-
blaðinu og ákveðið að slá til.
„Það er allt annað að versla hér
fyrir jólin, enda ekki sama stress-
ið í gangi og í verslunarmið-
stöðvunum á höfuðborgarsvæð-
inu á þessum tíma. Svo kom líka
nokkuð á óvart að konurnar voru
að sjá nokkrar vörur hér á betra
verði en tíðkast í Reykjavík.“
Baldvin hefði þó viljað sjá að
fleiri verslanir hefðu verið opnar
á laugardaginn, en segir að þau
hjónin muni örugglega koma aft-
ur næsta ár ef sama tilboð verður
í gangi. „Það er að segja ef mað-
ur kemst þá að! Við höfum nefni-
lega ekki verið feimin við að
segja vinum og kunningjum frá
þessari frábæru upplifun.“
Ásta Ólafsdóttir og eiginmaður
hennar, Einar Norðfjörð, eru úr
Reykjavík en fóru á jólahlaðborð
í Stapa og, þar sem þau voru í
Reykjanesbæ á annað borð,
ákváðu þau að nýta sér tilboðið
og gista á Hótel Keflavík. „Hót-
elið var mjög fínt og morgunmat-
urinn var frábær. Svo verð ég að
minnast á jólahlaðborð Stapans
en það var alveg glæsilegt sem
og allur viðgjörningur hjá þeim.“
Ásta var sérstaklega ánægð með
verðið í búðunum hér í bæ, og
tók sem dæmi að hún hefði séð
margar vörur í Stapafelli sem
væru ódýrari en í búðunum í
Reykjavík. „Ég hefði samt viljað
sjá fleiri búðir opnar frameftir
því að margar búðir sem okkur
langaði í voru lokaðar þegar við
komum.“
Engu að síður voru þau hjónin
ákaflega ánægð með ferðina í
heild sinni. „Þetta var mjög
ánægjulegur sólarhringur og við
komum aftur á næsta ári í versl-
unarferð, sérstaklega til að fara
aftur á jólahlaðborðið í Stapan-
um.“
Una Hauksdóttir og Eggert Jóns-
son eru bæði af Suðurnesjum en
búa nú í Kópavogi og segir Egg-
ert að þau hafi nýtt sér tilboð
Hótel Keflavíkur öll árin sem það
hefur verið í boði. „Þetta árið
hóuðum við í vini okkar og vor-
um 10 saman. Eftir verslunar-
leiðangurinn fórum við öll út að
borða á Soho og kíktum svo á
skemmtistaðina um kvöldið.“
Aðspurður um verslanirnar hér
suður frá fannst honum sem úr-
valið mætti vera meira, en kost-
urinn væri sá að hér væri hægt að
ljúka flestu af á litlum tíma og að
ekki væri eins mikið stress í
gangi og í Kringlunni eða Smára-
lindinni.
Eggert er alveg handviss um að
koma aftur að ári ef sama tilboð
verður á næsta ári. „Verslunar-
ferðin og gistingin á Hótel Kefla-
vík er orðin eins mikilvægur
hluti af jólaundirbúningnum og
skatan á Þorláksmessu.“
VÍKURFRÉTTIR - JÓLABLAÐ II VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!34
G
le
ð
il
e
g
a
h
á
tí
ð
!
➤ G I S TA F R Í T T Á H Ó T E L K E F L A V Í K Í D E S E M B E R
E ins og áður hefur komiðfram stendur HótelKeflavík fyrir átaki til
styrktar verslun og þjónustu í
Reykjanesbæ. Átakið felst í því
að utanbæjarfólk sem kemur
til Reykjanesbæjar og verslar
fyrir ákveðna upphæð fær,
gegn framvísun kvittana, út-
tekt að sömu upphæð hjá Hót-
el Keflavík.
„Verslunarferðin og gistingin á Hótel
Keflavík er orðin eins mikilvægur hluti af
jólaundirbúningnum og skatan á Þorláksmessu“
Baldur Þór Baldvinsson og Sigrún Þorláksdóttir frá Kópavogi
Una Hauksdóttir og
Eggert Jónsson eru
bæði af Suðurnesjum
en búa nú í Kópavogi.
Ásta Ólafsdóttir og eiginmaður hennar, Einar Norðfjörð.
Jolablad II - 64 sidur pdf2 20.12.2003 3:24 Page 34