Víkurfréttir - 22.12.2003, Síða 50
Gengið er inn í ævintýraveröld
þegar komið er inn í bílskúrinn
hjá Sveinbirni Sigurðssyni upp-
stoppara í Grindavík. Sveinbjörn
stundar sjómennsku á Erninum
KE og býr í Keflavík. Sveinbjörn
segist ætla að vera áfram á sjón-
um og sinnir uppstoppun þegar
hann er í landi. „Það koma góð
frí inn á milli þegar maður er á
sjónum og þá gefst tími til að
taka að sér verkefni í uppstopp-
uninni. En ég ætla að hætta eftir
þessa vertíð á sjónum og fara á
fullt í uppstoppunina,“ segir
Sveinbjörn.
„Það er langmesta vinnan í
kringum fiskana og meðhöndlun
þeirra er mikið vandaverk,“ segir
Sveinbjörn Sigurðsson úr Kefla-
vík sem nýlokið hefur námi í
uppstoppun dýra. Sveinbjörn
hefur haft nóg að gera frá því
hann útskrifaðist úr Dan Rinehart
skólanum í Bandaríkjunum.
Skólinn er kenndur við Dan
Rinehart sem er f immfaldur
heimsmeistari í uppstoppun
fiska. Sveinbjörn hefur haft að-
stöðu í bílskúr móður sinnar í
Grindavík, en hann leitar nú að
hentugu húsnæði í Keflavík þar
sem hann mun í framtíðinni hafa
vinnuaðstöðu.
Sveinbjörn segist alltaf haft
áhuga á uppstoppun dýra, en
þegar hann reyndi að komast í
læri hjá íslenskum dýrauppstopp-
urum var honum ekki tekið vel.
„Það vildi enginn taka mig í læri.
Það eru fáir sem stoppa upp dýr
á Íslandi og samkeppnin er mikil
á milli þeirra sem vinna við
þetta,“ segir Sveinbjörn.
Sveinbjörn fær fyrirspurnir
hvaðanæva af landinu frá áhuga-
sömum einstaklingum sem vilja
VÍKURFRÉTTIR - JÓLABLAÐ II VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!50
G
le
ð
il
e
g
a
h
á
tí
ð
!
➤ S T O P P A R U P P D Ý R Í Ö L L U M S TÆ R Ð U M
Sveinbjörn með haus af Hirti sem hann stoppaði upp í Bandaríkjunum. Á myndinni eru Arnar Már og Sigurður Pétur synir sveinbjörns, en þeir hafa
mikinn áhuga á starfi pabba síns. „Þeir segjast ætla að læra uppstoppun þegar þeir verða stórir,“ segir Sveinbjörn með bros á vör.
Hluti af starfi uppstoppara
er að finna uppstillingar úr
náttúrunni og þarna má sjá
smyril veiða skógarþröst.
Fuglarnir eru á hraungrjóti.
Sveinbjörn segir að slíkar
uppstillingar séu vinsælar
hjá fólki.
Dýr sem öðlast eilíft líf-dýrauppstoppari í Keflavík
Elma Valgerður dóttir Sveinbjörns með tvo fiska úr safni pabba síns.
Jolablad II - 64 sidur pdf3 20.12.2003 4:17 Page 50