Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Side 14
14 Helgarblað 1. desember 2017fréttir
L
ánasjóður íslenskra náms
manna hefur undanfarið
höfðað 137 dómsmál gegn
viðskiptavinum sjóðsins.
Viðskiptavinirnir eiga það sam
eiginlegt að hafa orðið gjaldþrota
í kjölfar hrunsins og var tilgangur
LÍN að freista þess að rjúfa fyrningu
námslánanna. Þannig yrðu hinir
gjaldþrota einstaklingar skyldaðir
til þess að halda áfram að greiða af
láninu. Það gekk ekki eftir og töp
uðust fimm prófmál í Hæstarétti á
dögunum. Kostnaður LÍN vegna
þessara mála mun hlaupa á millj
ónum króna. Mesti ágóðinn kem
ur í hlut lögfræðistofu Lánasjóðs
ins, Þorbergsson & Loftsdóttir.
Reikna má með að þóknun stof
unnar sé á bilinu 21–54 milljónir
króna. Þá er ótalinn málskostn
aður þeirra lögmanna sem vörðu
einstaklinga gegn kröfum LÍN. Sá
kostnaður gæti orðið upp á bil
inu 60–120 milljónir króna. „Þessi
málarekstur er einkennilegur því
lögin eru mjög skýr,“ segir Vil
hjálmur Þ. Á. Vilhjálmsson lög
maður. Þá telur hann að LÍN hefði
getað sparað sér mikinn kostnað
með því sleppa því að fara fram á
greinargerð í hverju einasta máli.
Svipuð aðstaða og í
greiðsluaðlögun
Í vikunni, nánar tiltekið þriðju
daginn 28. nóvember, var fyrirtaka
í fimmtán af áðurnefndum 137
dómsmálum LÍN gegn viðskipta
vinum sínum. Öll málin eiga það
sameiginlegt að viðskiptavinirnir
gengu í gegnum gjaldþrot en LÍN
höfðaði gegn þeim mál til þess
að rjúfa fyrningu námslánanna.
Á dögunum féllu dómar í fimm
prófmálum og voru dómarnir allir
á þá leið að ekki var fallist á sjón
armið LÍN. Sú niðurstaða gerir að
verkum að öll fimmtán málin sem
voru á dagskrá á þriðjudaginn
voru sjálfkrafa töpuð sem og hin
117 málin sem hafa verið fyrir
ferðarmikil á dagskrá héraðsdóms
undanfarna daga og vikur. Að
sögn Hrafnhildar Ástu Þorvalds
dóttur, framkvæmdastjóra LÍN,
taldi sjóðurinn ástæðu til þess
að láta reyna á málin því aðstað
an sé um margt lík því sem á við
þegar um greiðsluaðlögun ræðir
eða nauðasamninga til greiðslu
aðlögunar. „Kröfur LÍN falla ekki
niður leiti lántaki slíkra úrræða,“
segir Hrafnhildur Ásta. Hæsti
réttur féllst ekki á þessi sjónarmið
LÍN eins og áður segir og því mun
sjóðurinn ekki geta slitið fyrningu
krafna sinna á hendur þeim sem
verða gjaldþrota.
Um ástæðu þess að 137 mál
voru höfðuð segir Hrafnhildur
Ásta að sérstakur fyrningarfrestur
hefði byrjað að líða hjá hverjum og
einum frá skiptalokum. „Slíta þarf
fyrningu með sjálfstæðum hætti
gagnvart skuldara og ábyrgðar
manna. Þar af leiðandi varð að
höfða mál innan tveggja ára fyrn
ingarfrestsins. Öll önnur mál en
þau sem voru flutt sem prófmál
biðu á meðan leyst var úr próf
málunum fimm,“ segir Hrafnhild
ur Ásta.
Ábyrgðarmenn gætu setið í
súpunni
Að hennar sögn voru öll lán sem
LÍN veitti fram til ársins 2009
tryggð með sjálfskuldarábyrgð.
„Sjálfskuldarábyrgðir halda gildi
sínu þótt lántaki verði gjaldþrota,
enda sé gætt að því að höfða mál
á hendur ábyrgðarmanni inn
an tveggja ára fyrningartíma.
Gjaldþrot lántaka leiða til þess að
sjálfskuldarábyrgð sem veitt var í
þágu viðkomandi verður virk og
LÍN heimilt að krefja um greiðslu
sjálfskuldarábyrgðar. Tilvitnaður
dómur Hæstaréttar hefur tak
markaða þýðingu hvað varðar þau
mál þar sem ábyrgð er til staðar
þar sem greiðsluskyldan fellur á
ábyrgðarmenn lántakandans. Til
framtíðar litið er ljóst að fjártjón
LÍN mun verða umtalsvert fjölgi
gjaldþrotum þeirra lántaka sem
hafa ekki lagt fram tryggingar fyrir
greiðslu námslánaskulda sinna,“
segir Hrafnhildur Ásta.
Illa farið með fé
Einn þeirra sem tók að sér að verja
gjaldþrota einstaklinga sem fengu
stefnu frá LÍN er Vilhjálmur Þ. Á.
Vilhjálmsson, lögmaður hjá Lög
fræðistofu Reykjavíkur. Hann setur
spurningarmerki við þann fjölda
málsókna sem LÍN réðst í. Lögin
séu skýr og ef löggjafinn hefði vilj
að að námslán væru undanskilin
þá hefði verið einfalt að taka það
sérstaklega fram í lögunum. Fyrst
LÍN taldi að slíkur vafi væri fyrir
hendi þannig að á þetta þyrfti að
reyna í hverju og einu máli, þá er
umhugsunarefni hvers vegna það
þurfti að fá móttekna greinargerð
í hverju og einu máli í stað þess að
setja málin í ótímabundinn frest
þangað til niðurstaða Hæstaréttar
lægi fyrir.
„Þess í stað þá var þetta bara
í hefðbundnu ferli hjá LÍN. Lög
menn skiluðu greinargerðum og
meira að segja voru mál dómtek
in í þeim tilvikum þar sem við
komandi mætti ekki fyrir dóm til
að móttaka stefnu. Nú liggur fyrir
að LÍN þarf að greiða málskostn
að í öllum þessum málum þar
sem tekið var til varna með hefð
bundnum hætti. Unnt hefði verið
að komast hjá því með því að
annaðhvort sleppa þessum mál
sóknum nú eða mælast til þess
að málin væru sett í frest eftir að
LÍN skilaði stefnu. Verst er þetta
þó fyrir þá einstaklinga sem ekki
mættu og LÍN vann því málin
gegn á grundvelli mætingarleysis,“
segir Vilhjálmur.
Að hans sögn var í þeim tilvik
um fallist á kröfur LÍN. „Það er vert
að benda á að einstaklingar sem
voru í þessari aðstöðu voru búnir
að ganga í gegnum gjaldþrota
skipti og voru því ólíklegri til þess
að bregðast við enn einu kröfu
bréfinu eða stefnunni. Miðað við
dóm Hæstaréttar þá tel ég líklegt
að hægt sé að fá einhver þessara
mála endurupptekin, en til að svo
geti orðið þurfa viðkomandi aðilar
að gera slíkar kröfur eða fá sér að
stoð lögmanns til slíks,“ segir Vil
hjálmur.
Tugmilljóna tap
Kostnaðurinn við málaferli LÍN
er umtalsverður. Alls þurfti lög
maður sjóðsins, Sigurbjörn Ársæll
Þorbergsson, að útbúa 137 mis
munandi stefnur í málunum og
innheimtir hann gjald fyrir hverja
og eina stefnu. DV hefur feng
ið upplýsingar frá nokkrum lög
mönnum um að þóknun hans
hafi verið 400 þúsund krónur í
nokkrum málum. Í svari frá LÍN
kemur fram að áætlaður lögfræði
kostnaður við hvert mál sé á bilinu
150–200 þúsund krónur. Það þýðir
að greiðsla LÍN til lögfræðistofu
Sigurbjörns, Þorbergsson & Lofts
dóttir, mun vera á bilinu 21–54
milljónir króna. Lögmaður LÍN
mun því hlæja alla leið í bankann.
Þá er ekki öll sagan sögð því
enn eru ógreiddir reikningar lög
manna þeirra sem tóku að sér
að verja þá sem LÍN stefndi.
„LÍN mun þurfa að greiða þeim
sem stefnt var málskostnað. Það
verður leitað eftir samkomulagi
við lögmenn stefndu um greiðslu
kostnaðar,“ segir Hrafnhildur Ásta.
Samkvæmt heimildum DV er
kostnaður lögmannanna frá 450
þúsundum og allt upp í 900 þús
und krónur á mál. Það þýðir að
kostnaður LÍN vegna málsvarnar
launanna mun nema frá 62 millj
ónum og allt upp í 120 milljónir
króna. n
Lánasjóður íslenskra námsmanna Ljóst
er að tap sjóðsins vegna málaferla mun hlaupa
á hundruðum milljóna króna. Þá eru ótaldar
afskriftir lána. Mynd SIgTryggur ArI
Hrafnhildur Ásta Þorvalds-
dóttir Framkvæmdastjóri LÍN
segir að sjóðurinn hafi talið ástæðu
til þess að láta reyna á málin því
aðstaðan sé um margt lík því sem
á við þegar um greiðsluaðlögun
ræðir eða nauðasamninga til
greiðsluaðlögunar. „Kröfur LÍN
falla ekki niður leiti lántaki slíkra
úrræða,“ segir Hrafnhildur.
Vilhjálmur Þ. Á. Vilhjálmsson
„Þessi stefna kom
mér mjög á óvart“
S
teinar Immanúel Sörens
son er einn þeirra sem
fengu stefnu frá LÍN.
Hann var úrskurðaður
gjaldþrota í febrúar 2015 og átti
að verða laus allra mála tveim
ur árum síðar. Málarekstur LÍN
hefur því komið honum illa því
það hefur þýtt að hann hefur
haldist á vanskilaskrá í tæpt ár
í viðbót eða þar til leyst væri úr
dómsmálunum. Það hefur gert
honum erfiðara fyrir um ýmis
legt, meðal annars að finna sér
leiguíbúð. „Þessi stefna kom mér
mjög á óvart og það má segja að
það hafi verið áfall að fá að vita
að ríkisstofnun ætlaði að hund
elta mann með þessum hætti,“
segir Steinar.
Fjárhagsstaða hans var, eðli
málsins samkvæmt, slæm á
þessum tíma og því voru kostn
aðarsöm málaferli það síðasta
sem hann þurfti á að halda. „Ég
ráðfærði mig við lögmann og
varð rólegri þegar hann sagði
mér að líkur LÍN á að vinna mál
ið væru litlar. Ég ætti ekkert og
því hefði ég litlu að tapa,“ segir
Steinar. Hann ákvað því að verja
sig sjálfur og mætti fyrir dóm á
vordögum.
„Það tók aðeins stutta stund
og þar var mér tilkynnt að mál
inu yrði frestað þar til niður
staða í prófmálunum lægi fyrir.
Þessum málum er nú lokið og
því fer ég aftur fyrir dóm núna
á eftir og þá verður málið látið
niður falla,“ segir Steinar. Hann
fær engan málskostnað eða bæt
ur greiddar fyrir ómakið. „Nei,
nei. Maður verður víst að bíta í
þetta súra epli,“ segir Steinar.
Lögmaður LÍN hlær
alla leið í bankann
n Lánasjóðurinn tapaði 137 dómsmálum n Kostnaður um og yfir 100 milljónir króna
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is