Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Blaðsíða 24
24 fólk - viðtal Helgarblað 1. desember 2017
M
argt hefur drifið á daga
Jóns Viðars Arnþórs
sonar þrátt fyrir ungan
aldur. Hann starfaði sem
lögreglumaður í hruninu en sneri
sér síðan að uppbyggingu bar
dagafélagsins Mjölnis og gerði
það að stærsta bardaga félagi
Evrópu. Í kjölfar átaka innan
félagsins steig hann til hliðar frá
daglegum rekstri þess sem hann
segir vera það erfiðasta sem hann
hefur gengið í gegnum. Kristinn
H. Guðnason, blaðamaður DV,
settist niður með Jóni Viðari og
ræddi við hann um æskuna, lög
reglustörfin, bardagafélagið
Mjölni, áhugann á Íslendinga
sögunum og framtíðina.
Slóst alltaf við yngri systur sína
Jón Viðar býr í Hveragerði í dag,
ásamt Sóllilju Baltasarsdóttur,
unnustu sinni, en sem barn bjó
hann á höfuðborgarsvæðinu og í
Borgarfirði. „Ég segist alltaf vera
frá Reykholti. Mér leið svo vel þar
og náði tengingu við staðinn.“
Jón Viðar flutti þangað með
foreldrum sínum þegar hann var
tveggja ára en þeir skildu þegar
hann var ellefu ára. Eftir það voru
Jón Viðar og systir hans, Ingibjörg
Helga, sem er fimm árum yngri,
hjá móður þeirra. Jón Viðar og
Ingibjörg eru mjög náin og hafa
verið samferða í bardagaíþróttun
um frá unglingsaldri. „Við erum
mjög góðir vinir og búin að æfa
saman lengi. Þegar við vorum
yngri vorum við alltaf að slást.“
Jón Viðar byrjaði að æfa karate
með Þórshamri árið 1996. Hann
var Íslandsmeistari unglinga
fimm ár í röð og í landsliðinu.
Tveimur árum síðar byrjaði Ingi
björg að æfa. „Ég sá MMA fyrst
á myndböndum á netinu. Áður
en ég smalaði í fyrstu Mjölnis
æfinguna árið 2003 æfði ég brögð
in á systur minni á eldhúsgólfinu
heima.“ Jón Viðar segir að Ingi
björg hafi herst við að glíma við
hann. „Hún hefur orðið Íslands
meistari í hnefaleikum og karate.
Nú stefnir hún á feril í MMA.“
Meiri tími í Bruce Lee en
menntaskólann
Skömmu eftir að Jón Viðar hóf
að æfa karate fór hann að hafa
mikinn áhuga á lífi Bruce Lee. „Ég
varð alveg dolfallinn, bæði af hon
um sem íþróttamanni og heim
spekingi. Hann brúaði bilið milli
Kína og Bandaríkjanna og minnk
aði fordóma gagnvart Kínverjum á
Vesturlöndum. Hann gerði það að
verkum að mig langaði svolítið til
að vera Kínverji þegar ég var ung
lingur.“
Jón Viðar segist ekki hafa verið
sérstaklega vinsæll á gagnfræði
og menntaskólaárunum. Hann
gekk í MK en hætti eftir rúmlega
fjögur ár. „Ég var aðallega að
hugsa um bardagaíþróttir og æfði
tvisvar til þrisvar á dag. Ég keypti
bækur og heimildamyndir um
Bruce Lee og var farinn að eyða
meiri tíma í að læra um hann en
„Sennilega
eitt það
erfiðasta
sem ég
hef
gert“
Jón Viðar Arnþórsson byggði bardagafélagið
Mjölni upp frá grunni en nú hefur hann stigið
til hliðar á þeim vettvangi. DV ræddi við hann
um æskuna, lögreglustörfin, Mjölni, áhugann á
Íslendingasögunum og framtíðina.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
„Ég prófaði
líka flest
sem ég sá í Bruce
Lee- myndunum,
bæði á systur
minni og vinum
mínum.