Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Síða 38
38 menning Helgarblað 1. desember 2017
Þ
að er ljúfsár og hressileg
nostalgía sem svífur yfir
vötnum í Passamyndum,
nýjustu bók Einars Más
Guðmundssonar – þeirri tuttug-
ustu og áttundu á tæplega fjórum
áratugum. Bókin byggir að nokkru
leyti á eigin reynslu Einars frá því á
seinni hluta áttunda áratugar síð-
ustu aldar. Hér rifjar sögumaður-
inn, Haraldur M., upp afdrifaríkt
sumar í lífi sínu, þegar hann var
ungur og ævintýragjarn róttæk-
lingur með skáldadrauma. Þetta
sumar heldur hann til Noregs með
félaga sínum þar sem þeir ætla að
púla í byggingarvinnu uppi á fjalli,
safna peningi, stefna svo í ferða-
lag, drekka í sig heiminn, fá inn-
blástur fyrir listsköpun og kannski
finna sjálfa sig í leiðinni.
Atburðarásin er kannski ekki
jafn æsileg, og ferðalagið hefð-
bundnara en það sem Jörund-
ur hélt í forðum og Einar sagði frá
í síðustu skáldsögu sinni, verð-
launabókinni Hundadögum. En
þar sem sögumaðurinn ferðast
eftir þjóðbrautum og úr alfaraleið
verða á vegi hans ýmsir einstakir
karakterar, ógleymanleg atvik og
að lokum sjálf ástin sem setur stórt
strik í reikninginn og breytir öllum
áætlunum. Það er sem sagt tekist
á við sígild þemu þroskasögunn-
ar: hugsjónir og skáldskap, vonir
og vonbrigði, langanir, lærdóm og
kannski umfram allt ástina. Þarna
er einhver eilífð þó að tímarnir
hafi eflaust breyst.
Blaðamaður DV sló á þráðinn
til Einars Más – sem var nýlentur
úr upplestrarferð um Brasilíu – og
ræddi við hann um ferðalög og
Passamyndir, róttækni og ástina,
Rósku og Knut Hamsun.
Tímaflakk á sannleikanum
Það virðist nokkuð ljóst að Passa-
myndir er (að minnsta kosti að
einhverju leyti) byggð á reynslu
og minningum Einars sjálfs frá
þessum tíma, rímar til dæmis um
margt við það hvernig hann hefur
sagt frá eigin ævi í viðtölum í gegn-
um tíðina. Engu að síður ber bókin
undirtitilinn, skáldsaga.
Af hverju segir þú að þetta sé
„skáldsaga“?
„Ég held að merking orðsins
skáldsaga sé alltaf á reiki. Það er til
dæmis stundum sagt að sagnfræði
eins og hún var stunduð í fornöld
sé skyldari skáldsögum nútímans
en sagnfræði nútímans. Mörkin
á milli staðreyndar og sögu vilja
þannig færast úr stað, alveg eins
og hugarórar geta orðið að vísind-
um – stafræni heimurinn hefði til
dæmis verið hreinn súrrealismi
fyrir nokkrum misserum. Það er
því svona tímaflakk á sannleikan-
um,“ útskýrir Einar.
„Ég hef einhvern tíma sagt að
því dýpra sem þú kafir því hærra
fljúgir þú. Þessi óvissa eða mörk
eru að mínu mati ákveðinn drif-
kraftur. Eins merkir orðið saga á
íslensku allt þetta, sanna sögu og
skáldsögu. Þetta eru skemmti-
leg landamæri eða kannski engin
landamæri. Það sem mér finnst
hins vegar frjóast við skáldsöguna
er frelsið. Skáldsagan er að því
leyti aðferð. Staðreyndirnar eru
þarna en þú getur líka búið þær
til eða spunnið út frá þeim í allar
áttir. Einhvers konar sannleikur
er líka inni í myndinni, en sann-
leikurinn er líka varasamur leikur
eins og dæmin sanna. Þess vegna
skáldar maður, ævi sína og annað,“
segir Einar, en hans eigin upplif-
un og fjölskylda hafa einmitt verið
efniviður í aðrar skáldsögur hans,
sem tengjast að vissu leyti inn-
byrðis.
„Haraldur, sögumaður Passa-
mynda, er bróðir Páls sem er að-
alpersónan í Englum alheimsins.
Rabbi, bróðir þeirra, var sögu-
maður í ættarþríleiknum Fótspor
á himnum, Draumar á jörðu og
Nafnlausir vegir. Útlínur eru oft
réttar en þar fyrir innan ríkir frá-
sögnin, tímarnir eins og ég miðla
þeim. Þess vegna eru heimarnir
mjög ólíkir.“
Myndir þú segja að allar sög-
ur sem við segjum um okkur, all-
ar frásagnir, séu einhvers konar
skáldskapur?
„Að einhverju leyti. Þegar fólk
segir sögu er það að túlka veruleik-
ann. Við þekkjum það úr svo
mörgum áttum, þetta nánast forn-
kveðna, að þegar fimm menn lýsa
sama hlutnum þá gerir enginn
það eins. Það á sér alltaf stað ein-
hver endurvinnsla á atvikum. En
skáldsagan og skáldskapurinn
vinnur síðan með þessa þætti og
þróar þá upp á annað plan.“
Það er einbeiting í útúrdúrnum
Hugtakið „skáldævisaga“ kemur,
að ég held, upphaflega frá Guð-
bergi Bergssyni en hefur heyrst
nokkuð reglulega í umræðum á
undanförnum árum þegar rætt er
um rithöfunda sem nálgast eigin
ævi með tæki skáldskaparins að
vopni. Að vissu leyti gæti hugtak-
ið átt við um Passamyndir,
en Einar segist ekki hafa velt
þessu mikið fyrir sér – þetta
sé ekki beint hans ær og kýr.
„Mér finnst svolítið skrít-
ið að ævisaga skáldsins eigi
að vera sérstök bókmennta-
grein, frekar en annarra
stétta – hvað með ævisögur
múrara? Þótt það sé auðvitað
áhugavert hvernig tiltekinn
höfundur verður til þá lang-
aði mig í þessari bók frekar
að lýsa því sem á vegi þessa
manns verður, til að mynda
þessir vinnustaðir, til að
mynda róttæknin, bókmennt-
irnar og vinirnir. Ég held að
þegar listamaður er að skrifa
um sjálfan sig og sína mót-
un, þá skiptir hann sem slíkur
í rauninni minnstu máli. Það
er frekar hvernig heimurinn
kemur til þessarar persónu.“
Frásögnin fer eins og oft í verk-
um Einars í ýmsar áttir, út og suður,
og sögumaður þarf að hafa sig allan
við að týna sér ekki í hinum fjöl-
mörgu hliðarsögum. Útúrdúrinn
minnir mann kannski umfram allt á
það hvernig sögur hafa verið sagðar
munnlega frá örófi alda en verður
að sérstöku stílbragði á blaði.
Er það eðli sumra sagna að þær
skuli sagðar með krókaleiðum og
útúrdúrum – eða áttu bara svona
erfitt með að einbeita þér að aðeins
einni sögu í einu?
Vinsælast
á Spotify
Mest spilun 30. nóvember
Metsölulisti
Eymundsson
Vikuna 19.–25. nóvember
1 Gatið - Yrsa Sigurðardóttir
2 Myrkrið veit - Arnaldur Indriðason
3 Mistur - Ragnar Jónasson
4 Saga Ástu - Jón Kalman Stefánsson
5 Amma best - Gunnar Helgason
6 Útkall - Reiðarslag í Eyjum
- Óttar Sveinsson
7 Þitt eigið ævintýri - Ævar Þ. Benediktsson
8 Sakramentið - Ólafur Jóhann Ólafsson
9 Sonurinn - Jo Nesbø
10 Sönglögin okkar - Ýmsir höfundar
Vinsælast í bíó
Helgina 24.–26. nóvember
1 Coco
2 Justice League
3 Thor: Ragnarok
4 Wonder
5 Murder on the Orient Express (2017)
6 A Bad Moms Christmas
7 Litla Vampíran - The Little Vampire
8 Reynir sterki
9 Blade Runner 2049
10 Nut Job 2 / Hneturánið 2
1 Já ég veit - Birnir og Herra Hnetusmjör
2 Rockstar - Post Malone og 21 Savage
3 Too good at goodbyes - Sam Smith
4 B.O.B.A - JóiPé og Króli
5 Havana - Camila Cabello og Young Thug
6 Snjókorn falla - Laddi
7 Oh Shit - JóiPé og Króli
8 Ef ég nenni - Helgi Björnsson
9 All I want for Christmas is You -
Mariah Carey
10 Gucci Gang - Lil Pump
Að
drekka
í sig
heiminn
Einar Már Guðmundsson skrifar um ævintýraþrá
og ástina í nýjustu bók sinni Passamyndir
„Hin ríkjandi
viðhorf voru að þú
gætir ekki þjónað öllu í
senn; listinni, ástinni og
ævintýrunum, en kannski
er þetta allt sama
tóbakið þegar öllu er á
botninn hvolft.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is