Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Qupperneq 46

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Qupperneq 46
46 fólk Helgarblað 1. desember 2017 V ertu ósýnilegur er ný ung- lingaskáldsaga eftir Krist- ínu Helgu Gunnarsdóttur, byggð á viðtölum, fréttum og heimildum um borgarastyrj- öldina í Sýrlandi. Ljósmyndir sem eru við kaflaskil í bókinni eru eftir Þóri Guðmundsson. Sagan segir frá hinum fjórtán ára Ishmael sem neyðist til að leggja á flótta. Á sama tíma er fjölskylda í Kópa- vogi að reyna að fóta sig í nýju landi. Kristín Helga er spurð af hverju sögur fólks í þessum aðstæðum hefðu leitað svo mjög á hana að hún hefði fundið hjá sér þörf fyrir að setja þær í skáldsögu. „Ég hef aldrei komið til Sýr- lands en hef fylgst mjög vel með stríðinu þar, auk þess sem ég vann sem fréttamaður í erlendum frétt- um í tíu ár og kynntist ástandinu fyrir botni Miðjarðarhafs. Ég vildi kanna hvernig leiðangur það er fyrir fólk að flýja heimili sitt annars staðar á hnettinum vegna stríðsógnar. Mig langaði líka til að vita hvaða lífsreynslu mann- eskjan sem er að vinna við hliðina á okkur úti í samfélaginu býr að eftir slíka för. Mig langaði til að fara í þetta ferðalag og rithöfund- urinn og gamli blaðamaðurinn í mér ákváðu að skrifa saman bók. Ég lagðist í rannsóknarvinnu, las og kannaði heimildir. Ég talaði við marga Sýrlendinga sem búa hér, eru ýmist nýkomnir eða hafa búið hér lengi. Og úr varð þessi saga. Til að fá sem skýrasta mynd af því sem flóttafólk gengur í gegn- um datt mér upphaflega í hug að best væri að fylgja sögu einnar fjölskyldu frá Sýrlandi og hingað heim. Ég áttaði mig svo á að það yrði bara saga einnar fjölskyldu en mig langaði til að segja stærri sögu, sögu margra. Þetta er skáldsaga, heimilda- skáldsaga. Efnið er þannig að ég vinn með veruleikann. Hann er of stór til að reyna að breyta honum og krefst þess að ég fylgi honum eftir. Allar persónur eru skáldaðar í aðstæðum sem byggja á heimildum.“ Glímt við stór sár Þú hittir Sýrlendinga sem búa hér á landi, hvernig líður því fólki? „Það er mjög misjafnt. Margir eru að glíma við mjög stór sár. Við Íslendingar búum í óskap- lega vernduðu og mjúku umhverfi og okkur finnst eðlilegt að þeir einstaklingar sem hingað koma frá stríðshrjáðum löndum eigi að vera mjög þakklátir fyrir að fá skjól hér, og þeir eru það, en flesta langar aftur heim. Ein ástæðan fyrir því að ég réðst í þetta verkefni er að eftir því sem heimurinn minnkar og við verðum fleiri og nær hvert öðru, þá þurfum við í auknum mæli að setja okkur hvert í annars spor og í umræðunni hefur það oft ekki verið gert. Mig langaði að standa í þessum sporum og reyna að finna hvernig þessu fólki líður. Börnin eru yfirleitt mjög fljót að aðlagast og læra tungumálið eins og skot. Þau eiga sum leynimál og skipta yfir í íslensku þegar þau vilja ekki að mamma eða pabbi skilji það sem þau eru að segja, sem er örugglega erfitt fyrir foreldrana. Ég tók eftir því að margir af eldri kynslóð voru að fylgja unga fólkinu sínu þannig að það gæti átt framtíð og lifað af, en hinir eldri eru sjálf- ir með hugann við Sýrland. Þeir einstaklingar munu aldrei fara andlega frá Sýrlandi. Hér eru kon- ur sem fara ekki út úr húsi og horfa á Al Jazeera allan sólarhringinn til að missa ekki af neinu. Það er ekki bara að þessa einstaklinga langi heim, eins og okkur langar oftast öll þegar við erum lengi í burtu, heldur þjást þeir líka af samvisku- biti yfir að vera komnir í öruggt skjól og þurfa að fylgjast með fólki sínu þjást.“ Fyrst og fremst að segja sögu Er þetta ekki bók með boðskap? Í upphafi hvers kafla er vitnað í klausur úr Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. „Ef kærleikurinn er boðskapur þá er þetta bók með boðskap. Ég er samt fyrst og fremst að segja sögu, þetta er mósaík af lífsreynslu fólks. Mannréttindasáttmálinn breið- ir sig yfir allar síður til að minna á grunnreglur sem við ættum öll að vera meðvituð um. Til Íslands koma árlega tíu fylgdarlaus börn og það eru afskaplega takmörkuð úrræði fyrir þau. Núna eru rúm- lega 300.000 fylgdarlaus flótta- börn að ráfa um stræti stórborga Evrópu.“ Þér finnst greinilega mjög mik- ilvægt að unglingar kynnist heimi þeirra sem þurfa að flýja heima- land sitt vegna ófriðar. „Þessi bók teygir sig í allar áttir. Fullorðið fólk hefur lesið þessa bók og hafði ekki hugmynd um þessar aðstæður og þótti upplýsandi að fræðast um þær. Auðvitað er svo mjög mikilvægt að eiga þetta sam- tal við unga fólkið sem er að nálg- ast fullorðinsárin. Þeirra er fram- tíðin til að móta. Mér finnst fjölmiðlaheimurinn að mörgu leyti hafa verið stærri þegar ég var að alast upp. Þá horfðum við öll á fréttir í sjón- varpinu, ekki mátti anda á meðan útvarpsfréttir voru og það var alltaf verið að ræða það sem var að gerast. Dagblöðin töluðu öll saman, einhver skrifaði grein í Morgun- blaðið og henni var svarað í Þjóð- viljanum. Núna, á þessum rafrænu tímum, er fjölmiðlaheimur ungrar manneskju mjög þröngur. Hún er á sínum samfélagsmiðlum og á þar sína vini og hinn rafræni heim- ur reiknar mjög fljótlega út hvað henni líkar og dembir því yfir hana og heldur henni þannig í sínum heimi og skapar um leið ákveðna einangrun. Ég held því fram að það sé fjöldinn allur af ungu fólki sem fer á mis við hið stóra daglega sam- tal sem mín kynslóð tók þátt í sem börn og unglingar.“ n n Vertu ósýnilegur er ný unglingaskáldsaga eftir Kristínu Helgu n Segir sögu flóttafólks Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is „Efnið er þannig að ég vinn með veruleikann. Hann er of stór til að reyna að breyta honum og krefst þess að ég fylgi honum eftir. Kristín Helga „Rithöfundurinn og gamli blaðamaður- inn í mér ákváðu að skrifa saman bók.“ Mynd SiGtryGGur Ari MóSaíK af lífS- reynSlu fólKS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.