Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Side 50
instagram.com/Birta_vikuBlad vikublað - Ritstjóri: Margrét H. Gústavsdóttir Ábyrgðarmenn: Sigurvin Ólafsson og kolbrún bergþórsdóttir Markaðssamstarf: Svava kristín Gretarsdóttir s: 690 6900
Margrét H.
gústavsdóttir
margret@dv.is
Da
gur
í l
ífi
Vikublað 1. desember 2017 2
Stundum gerum við okkur grein fyrir eigin fordómum og stundum ekki. Þegar ég var yngri var ég til dæmis
mjög meðvituð um fordóma mína í garð
ungmenna sem í dag ganga undir nafninu
„trustafarians“.
Nafnið er annars vegar dregið af orðinu
„trustfund“, sem þýðir sjálfseignasjóður,
og hins vegar „rastafarian“, sem er nafn á
vinsælum trúarbrögðum á Jamaíku. Bob
Marley var til dæmis rastafari. Þú þekkir
þá á hárinu. Svona kögglahár sem kallast
„dreadlocks“ á ensku. Svo reykja þeir oft
mikið af kannabisefnum.
Trustafarian er bleiknefjað ungmenni
sem þiggur endalausa peninga úr sjóðum
vel efnaðra foreldra. Þessi týpa spanderar
formúu í að láta sérhæfða hárgreiðslu-
meistara búa til „dreddlokka“ í ljósa
hárið, kaupir lífrænt ræktað kaffi og er að
sjálfsögðu vegan. Á hund með hálsklút.
Rúllar eigin sígarettur í lífrænan sígarettu-
pappír. Reykir ógrynni af kannabis.
Á sama tíma og þessi trustafarian þarf
ekkert að hafa fyrir lífinu, hefur viðkoman-
di gjarna mjög háværar stjórnmálaskoðanir
og sannarlega er krakkinn ekki hægri
sinnaður. Nei. Ríkið á sko helst að sjá um
allt saman frá A-Ö. Alveg eins og mamma
og pabbi.
Ekki að ég hafi neitt á móti vinstrisinnuðu
fólki. Báðar áttir eru bráðnauðsynlegar. Ég
nota til dæmis fingur bæði vinstri og hægri
handar á lyklaborðinu, en svona dulbúnir
kampavínskommar þykja mér alltaf ferlega
vandræðalegir.
Skoh! Þarna kom ég upp um mig. Ég hef
enn fordóma fyrir þessum týpum og meira
til.
Akkúrat núna er ég með meðvitaða
fordóma fyrir fólki sem vill ekki ferðast til
útlanda, fólki sem leggur ofsalega mikla
áherslu á að grænmeti sé ekki matur og svo
hef ég auðvitað fordóma fyrir körlum sem
hafa fordóma fyrir konum. Körlum sem
halda að konur eigi eitthvað erfiðara með
að hugsa skýrt en þeir.
Hvernig skyldi ástandið í
hausnum á þeim vera? Ætli
þeir geri sér grein fyrir
eigin fordómum?
Maar speer seg.
Játning: Ég hef fordóma fyrir …
Hvað er besta ráð sem
þér Hefur verið gefið?
Ég er alinn upp við það að ég sé
ekki merkilegri en aðrir og aðrir
eru ekki merkilegri en ég. Þess
vegna tala ég eins við alla. Ég held
að þetta sé besta ráð sem ég hef
fengið.
Hvað myndir þú vilja
ráðleggja öðrum?
að taka fulla ábyrgð á eigin lífi. Ef
einhver móðgar þig, þá er það þér
að kenna að þú móðgist. Hættu að
vorkenna þér.
Hvað vildir þú að
þú Hefðir vitað fyrr?
að erfiðleikar eru ekki slæmir.
Þorkell Máni Pétursson, eða Máni í Harmageddon, fæddist á vetrarsólstöðum,
þann 21. desember árið 1976.
Foreldrar hans eru þau Áslaug
Björnsdóttir hjúkrunarfræðing-
ur og Pétur Þorkelsson vélstjóri.
Máni á eina yngri systur, Árdísi
Ýr. Útvarpsmaðurinn skeleggi sleit
barnsskónum í Garðabæ og þar
býr hann enn. Hann er í sambúð
með Bjarneyju Björnsdóttur, 39
ára leikskólastjóra á Litlu Ásum.
Þau eiga tvo syni, Pétur Mána, 17
ára, og Róbert Frosta, 12 ára. Máni
flosnaði upp úr menntaskólanum
í Garðabæ á sínum tíma en lauk
þó stúdentsprófinu með húfu og
tilbehör þegar hann var 36 ára.
Síðan segist hann hafa prófað að
skrá sig á flestar brautir Háskólans
en ekkert hefur heillað hann meira
en útvarpsstarfið sem hann hefur
nú sinnt nánast sleitulaust í tuttugu
ár, þá aðallega á X-inu 977.
07.15
Ég læt klukkuna hringja korter
yfir sjö en er yfirleitt ekki kominn
á lappir fyrr en átta. Snúsa í þrjú
korter. Mér finnst í fyrsta lagi
leiðinlegt að vakna en svo dreymir
mann líka oft svo skemmtilega á
þessu snús tímabili. Í morgunmat
reyni ég yfirleitt að fá mér eitthvað
smúþísull eða dós af skyri og ef ég
vakna mjög snemma þá renni ég
við hjá Te og Kaffi í Hamraborg og
fæ mér sojalatte eftir að hafa skutl-
að yngri syninum í skólann.
08.45
Ég er vanalega mættur í vinnuna
svona korter í níu. Klukkan níu
byrjar útvarpsþátturinn sem við
æskuvinur minn, Frosti Logason,
höfum stjórnað í tíu ár. Við höfum
reyndar unnið á X-inu frá því við
vorum krakkar. Það eru orðin
tuttugu ár frá því við byrjuðum í
útvarpi. Á þessum árum höfum við
breyst í gamla karla með pólitískar
skoðanir. Ég hef reyndar alltaf haft
áhuga á pólitík en þetta kom seinna
hjá Frosta. Hann er óþroskaðari en
ég og hefur alltaf verið.
12.00
Þegar þátturinn er búinn fer ég
í það að setja inn klippur úr þættin-
um og annað útvarpsefni á visi.is til
sirka þrjú. Ég borða sjaldnast í há-
deginu en ef ég náði ekki í sojalatte
í Hamraborg um morguninn þá
skýst ég í Borgartún um þetta leyti
og fæ mér einn. Svo fer restin af
deginum í að bóka Friðrik Dór
Jónsson í alls konar partí í gegnum
bókunarstofuna mína Paxal.
17.00
Að vinnudegi loknum reyni ég yfir-
leitt að kíkja í World Class í Laug-
um, einungis vegna þess að það er
enn ekki komin stöð í Garðabæ.
Einhver sagði að aðalmálið væri að
mæta í ræktina svo ég legg áherslu
á það og ef ég geri eitthvað þá hleyp
ég á brettinu af því mér leiðast
lyftingar.
18.00
Ég er oftast kominn heim milli
klukkan sex og sjö. Kvöldmatar-
tímar heima hjá mér eru hins vegar
mjög óskipulagðir og það skrifast á
æfingar og tómstundir strákanna.
Sjálfur elda ég ekki mikið en það
stendur þó alltaf til að breyta því
enda er ég hræðilegur kokkur og
hef átt stórslysastundir í eldhúsinu.
Hef meira að segja brennt hakk.
Það er alltaf á planinu að fara á
kokkanámskeið en svo geri ég ekk-
ert í því. Kannski að ég prófi bara
YouTube. Ég lærði að minnsta kosti
að gera bindishnút þar.
20.00
Á kvöldin kemur fyrir að ég kíki
á fundi hjá leynifélagi sem ég er í
og að þeim loknum fer ég yfirleitt
heim að horfa á eitthvert rusl
í sjónvarpinu þrátt fyrir áform
um bókalestur. Ég horfi oftast á
einhverja ofurhetjuþætti, vísinda-
skáldsögur eða annað óraunveru-
legt. Lífið er of raunverulegt til að
maður fari líka að horfa á raun-
verulegt sjónvarpsefni.
Máni Pétursson
- sojalatte, vísindaskáldsögur, brennt hakk og bindishnútanámskeið á YouTube„Á þessum
árum höfum
við breyst í gamla
karla með pólitískar
skoðanir. Ég hef
reyndar alltaf haft
áhuga á pólitík en
þetta kom seinna
hjá Frosta. Hann er
óþroskaðari en ég
og hefur alltaf verið.
smúþísull í morgunmat
Í morgunmat reyni ég yfirleitt að fá mér
eitthvað smúþí sull eða dós af skyri og
ef ég vakna mjög snemma þá renni
ég við hjá Te og kaffi í Hamraborg og
fæ mér sojalatte eftir að hafa skutlað
yngri syninum í skólann. Mynd Sigtryggur Ari