Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Page 51
Vikublað 1. desember 2017 3
Höfuðborgin okkar er í stöð-ugum vexti en á þessum myndum má sjá hversu
gríðarlegar breytingar hafa orðið,
ekki bara á borgarumhverfinu,
heldur einnig á lifnaðarháttum og
lífsstíl landsmanna frá því þessar
myndir voru festar á filmu fyrir
rúmlega hálfri öld.
Á Íslandi voru fyrstu braggarnir
reistir í kringum 1940 eftir hernám
Breta sem komu sér upp bragga-
herbúðum í Reykjavík og víðar.
Eftir stríðið voru braggar notaðir
sem bráðabirgðahúsnæði fyrir
húsnæðislaust fólk en voru smám
saman rifnir og meðal annars
byggðar leiguíbúðir í fjölbýlishús-
um fyrir íbúana. Helstu bragga-
hverfi í Reykjavík voru Camp
Knox, Múlakampur og Laugarnes-
kampur.
Sigfríð Maggý Breiðfjörð deildi
þessum mögnuðu myndum af
braggalífinu í Reykjavík í Face-
book-hóp sem heitir Gamlar
ljósmyndir og gaf Birtu góðfúslegt
leyfi til að deila þeim með lesend-
um. Á myndunum má einnig sjá
daglegt líf í bragga Fæðiskaup-
endafélags Reykjavíkur sem opnaði
samvinnumötuneyti árið 1946 í
Kamp Knox. Vinsældir Fæðiskaup-
endafélagsins voru miklar en þar
komu saman menn af öllum stétt-
um til að gæða sér á mat sem þótti
betri, fjölbreyttari og ódýrari en á
venjulegum matsölustöðum.
margret@dv.is
Mögnuð myndasyrpa af lífinu í Reykjavík um miðja síðustu öld
Einu sinni var Á þessari merkilegu loftmynd virðist rétt búið að leggja grunn að Hallgrímskirkju, Iðnskólinn ekki risinn og Landspítalahúsið
einmanalegt á stórri lóð. Það má gefa sér góðan tíma í að skoða þessa skemmtilegu mynd.
BEðið Eftir matartíma Í Fæðiskaupendafélaginu komu saman menn af öllum stéttum til að fá sér í svanginn. Hér sitja nokkr-
ir vel klæddir herramenn og tefla meðan beðið er eftir matnum en smátt og smátt varð Fæðiskaupendafélagið að mjög vinsælum
samkomustað í borginni.
víðimElur í mótun R 118 Ford Junior fólksbifreið á ómalbikuðum Víðimel.
Samkvæmt bílabókinni sem kom út árið 1945 var eigandi þessarar sjálfrennireiðar
maður að nafni Karl Schram.
íslEnsk kjötsúpa? Unga konan sem stendur við súpupottinn og skenkir mjólk í
glas heitir Sigurbjörg samkvæmt heimildarmanni. Auðvelt er að álykta að hún hafi dreg-
ið að sér einhverja aðdáendur í mat hjá Fæðiskaupendafélaginu enda afburða lagleg.
moldarsvað Stóra húsið fyrir miðju er Háteigsvegur númer 50. Fyrir aftan glittir í
turn Stýrimannaskólans.
stjórnarmEnn Stjórn Fæðiskaupendafélagsins skipuðu þeir Páll
Helgason, framkvæmdastjóri og formaður, Guðmundur Sigtryggsson
ritari og Gunnar Össurarson gjaldkeri. Meðstjórnendur voru þeir Jón
Levi Jónsson og Sigurður Sveinsson frá Hvítsstöðum. Hvort þeir eru
allir samankomnir á þessari mynd vitum við ekki fyrir víst.
Börn að lEik Í hverjum bragga bjuggu oftast fleiri en ein fjölskylda.
Oftast ungt fólk með börn og því var braggalífið oft mjög líflegt.
Hátíð í Bæ Sjómannadagurinn á Skólavörðuholti árið 1938.
annar heimur í 101