Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Blaðsíða 52
Vikublað 1. desember 2017 4
Inn
lit
Íbúar
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir,
41 árs, Karl Olgeirsson, 45 ára,
Lára Björk Hall, 8 ára, og
Fróði Karlsson, 17 ára.
stærð
100 fermetar, 4 herbergi
staður
Mávahlíð
byggingarár
1946
Við Kalli erum búin að vera í fjögur ár í sambúð. Við höfðum reyndar bæði búið
erlendis áður en við rugluðum
saman reytum svo það var ekkert
mikið vesen með húsgögnin eins
og oft vill verða þegar fólk byrjar að
búa saman á fullorðinsárum,“ segir
Sigga Eyrún söng- og leikkona sem
kynntist sambýlismanni sínum,
Karli Olgeirssyni, í gegnum tón-
listina fyrir rúmlega fjórum árum.
„Við fluttum hingað í Mávahlíð-
ina fyrir um það bil tveimur árum
og kunnum mjög vel við okkur í
þessu hverfi. Kalli ólst upp hérna
en sjálf hef ég búið hér meira eða
minna öll mín fullorðinsár, það er
að segja þegar ég hef ekki búið í
öðrum löndum.“
Hvernig kom það til að þið fóruð
að búa saman?
„Hann var píanóleikari í
tónleikaröð sem ég og nokkrir
listamenn stóðum að saman. Tón-
leikana kölluðum við Ef lífið væri
söngleikur og við fluttum þá bæði í
Salnum í Kópavogi og fórum á tón-
leikaferð um landið. Svo var þetta
svona eins og gengur, eitt leiddi
af öðru og eftir hálft ár vorum við
byrjuð að búa saman,“ segir Sigga.
Spurð að því hvað henni þyki
skipta miklu máli á heimilinu segir
hún að kósíheit séu ofarlega á blaði.
„Ég vil til dæmis hafa huggulegt
og notalegt í kringum mig og drasl
truflar mig til dæmis ekki svo mik-
ið ef umhverfið er kósí. Ef dóttir
mín hefur til dæmis skilið eftir
dót á stofugólfinu þá finnst mér
það kannski bara kósí þótt sumir
myndu kannski upplifa það sem
drasl. Ég er sem sagt mikið fyrir
þetta sem Danir kalla „hygge“ en
þar bjó ég jú sem barn. Svo hef ég
líka búið í Toronto í Kanada og þar
er einnig mikið lagt upp úr nota-
legheitum, enda kalt land eins og
Ísland. Hér á norðurslóðum erum
við meira fyrir kertaljós, viðar-
húsgögn, teppi og stóra notalega
sófa enda á það vel við þegar kaldir
vindar blása úti meira eða minna
allt árið.“
Talandi um kalda vinda. Sambýl-
ingarnir Sigga Eyrún og Kalli stefna
á að halda notalega jólatónleika í
Iðnó þann 17. desember og aftur
þann 20. í Seljakirkju. „Við ætlum
að spila gömul og ný jólalög, bæði
á ensku og íslensku. Kalla fram
lágstemmdan og notalegan jólaanda
sem ætti að koma öllum, bæði ung-
um og öldnum í jólagírinn,“ segir
Sigga Eyrún að lokum.
margret@dv.is
Sigga og Kalli
vilja hafa það KóSí„Svo var þetta
svona eins og
gengur, eitt leiddi af
öðru og eftir hálft ár
vorum við byrjuð að
búa saman.
raggi
bjarna Hér
má sjá nýút-
komna plötu
með Karli,
Orgeltríói
og Ragga
Bjarna þar
sem þeir flytja
frumsamin lög
og ábreiður af
nýlegum popp-
lögum, til dæm-
is með Pink,
Björk, GusGus
og fleiri
skemmtilegum
listamönnum.
„Þessi er
alveg tilvalin í
jólapakkann.
Fæst bæði sem
geisladiskur
og vínylplata,“
segir Sigga
hvetjandi.
sigga og skuggi Í sófanum
„Þennan sófa keyptum við Kalli í
Húsgagnahöllinni þegar við fluttum
hingað. Ætli þetta sé ekki fyrsta
sameiginlega húsgangið sem við
keyptum okkur. Borðið keyptum við af
nágrönnum okkar en lampann fékk
Kalli hjá foreldrum sínum. Plönturnar í
glugganum vaxa ótrúlega vel í þessari
íbúð. Hún er eins og gróðurhús. Ég var
að minnsta kosti ekki með græna fingur
fyrr en ég flutti hingað.“ Myndir Sigtryggur Ari
Innlit til tónlistarpars í Mávahlíð