Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Page 57
Vikublað 1. desember 2017 9
sig í hárgreiðslunám við Iðnskólann
í Reykjavík.
„Svo var ég að vinna á börum,
veitingastöðum og kaffihúsum á
kvöldin. Ég held að ég hafi örugg-
lega unnið á hverjum einasta bar í
bænum,“ rifjar hún upp og fær sér
lítinn sopa af espresso macchiato.
Sköpunargleðin og frumkvöðla-
eðlið gerðu það að verkum að Ásdís
lét sér ekki duga að vinna bara
við að afgreiða drykki. Ekki leið
á löngu þar til hún var byrjuð að
skipuleggja hvers konar skemmti-
kvöld og fegurðarsamkeppnir, til
dæmis Ungfrú Hawaiian Tropic,
Miss Kiss og fleiri fjöruga viðburði
sem djammarar um fertugt eiga
auðvelt með að rifja upp í dag. Í
gegnum þessa viðburði má segja
að hún hafi verið uppgötvuð sem
glamúrfyrirsæta og þar með byrj-
uðu draumar sveitastelpunnar að
rætast.
Var ekkert ofsalega ánægð með mig
Hún rifjar upp hvernig hún, sem
krakki, heillaðist af tískufyrir-
sætum á borð við Kate Moss,
Naomi Campbell og þessum helstu
næntís fyrirsætum sem mynduðu
fyrstu kynslóð fyrirsæta sem urðu
heimsþekktar eins og leikkonurnar
í Hollywood.
„Eins og margar stelpur á þessum
árum var ég alveg með stjörnurnar
í augunum yfir þessum skvísum
þótt ég hafi ekki verið mikið efni í
fyrirsætu á þessum tíma. Ég var bara
svona sveitastelpa, svolítið þykk,
kannski ekkert rosalega fríð þannig
séð, ég veit það ekki, ég var að
minnsta kosti ekkert ofsalega ánægð
með mig. Svo rættist allt í einu
úr mér á kynþroskaaldrinum. Ég
skánaði aðeins ef svo mætti að orði
komast,“ segir hún og skellir upp úr.
„Ég varð alveg svakalega hissa þegar
ég var fyrst beðin um að sitja fyrir.
Trúði því varla að fólk vildi fá mig
í þetta. En svo fór ferillinn í gang
og ég naut þess í botn að æsku-
draumurinn um að gerast fyrirsæta
væri að rætast,“ segir Ásdís sem þá
var sautján ára og nýbúin að eiga sitt
fyrsta barn, soninn Róbert sem nú
er orðinn tvítugur.
Vílaði ekki fyrir sér að sitja fáklædd
fyrir á myndum
Sjálf segist Ásdís strax hafa gert sér
fulla grein fyrir því að útlit hennar
hentaði ekki vel í tískufyrirsætustörf.
Tískufyrirsætur séu bæði hærri og
grennri, en hún íturvaxin með ávalar
línur. Því lá það fyrir henni að gerast
„pin-up“ eða glamúrfyrirsæta. Hún
vílaði ekki fyrir sér að sitja fyrir
fáklædd á myndum en til þess þurfti
talsvert hugrekki í fámenninu hér
á Íslandi í kringum síðustu alda-
mót. Nafnið Ásdís Rán varð fljótt
á allra vörum enda var hún, og er
líklegast enn, eina íslenska konan
sem hefur gert þessa tegund fyrir-
sætustarfa að sínu aðalstarfi. Hún
veltir þessu aðeins fyrir sér og þá
sérstaklega breytingunni sem hefur
orðið á tíðarandanum síðustu árin.
Viðhorfum samfélagsins til kvenna
og líkamlegs kynþokka þeirra, ef svo
mætti að orði komast.
„Þetta er svolítið mótsagna-
kennt. Í dag má ekkert gera af hlut-
um sem þóttu sjálfsagðir í kringum
2000 og áður. Þá birtust reglulega
myndir af fáklæddum glamúrfyrir-
sætum í innlendum tímaritum. Ég
var meira að segja með sjónvarps-
þátt sem gekk út á að finna flottasta
bikinímódel landsins. Ég sé það
ekki gerast núna en á sama tíma er
fólk samt búið að slaka mjög mikið
á dómhörku í garð kvenna og bara
fólks almennt. Fólk má vera meira
eins og það langar til held ég, en
svona myndir eru samt alls ekki
vel séðar. Ég furða mig oft á því
hvað það leyfist lítið á Íslandi sem
þykir sjálfsagt mál annars staðar.
Í öllum þeim löndum sem ég hef
búið í er glamúrfyrirsætum tekið
fagnandi enda mikil sala í þessum
útgáfubransa. Maxim, Playboy,
FHM, dagblöðin … alls staðar sér
maður glæsilegar og kynþokkafull-
ar konur sem skilgreina mætti sem
glamúrmódel en hér á litla Íslandi
er þessi tegund fyrirsætustarfa ekki
vel séð lengur,“ segir hún hugsi.
„Ég veit ekki alveg hvað veldur
þessari breytingu. Ætli það sé ekki
kvenréttindabaráttan? Nú fá stelpur
frekar þannig uppeldi að þær langar,
eða þora síður, að verða glamúrfyr-
irsætur. Þegar ég var ung þá fannst
flestum stelpum hins vegar svaka-
lega eftirsóknarvert að vera „hot“ og
þannig er það enn í öllum löndum
sem ég hef búið í. Ætli ég sé ekki
bara síðasta íslenska glamúrmódel-
ið,“ segir hún og hlær dátt.
Elskuð og dáð í Búlgaríu sem tekur
glamúrfyrirsætum opnum
örmum
Það var einmitt í
gegnum glamúr
fyrirsætustörfin sem
Ásdís kynntist seinni
barnsföður sínum,
fótboltamanninum
Garðari Gunnlaugs-
syni. Hún var
tuttugu og tveggja ára,
einstæð móðir og um-
boðsmaður Hawaiian
Tropic en hann nítján
ára knattspyrnumaður
og fyrirsæta. Hún fékk hann til að
sitja fyrir í auglýsingu fyrir sólar-
vörurnar og þau felldu saman hugi.
Ekki leið á löngu þar til Garðari
bauðst að starfa sem atvinnumaður
í knattspyrnu á erlendum vettvangi
og hjónin fluttu úr landi.
Árið 2005 fæddist þeim son-
urinn Hektor og tveimur árum
síðar fæddist Viktoría. Fjölskyldan
bjó meðal annars í Svíþjóð,
„Ég var
ekkert
ofsalega
ánægð
með mig“
„áfallastreituröskun er svo hræðilegt
fyrirbæri. Þetta eru eins og öldur sem
bara hellast yfir mann og maður veit ekkert
hvenær þær koma.
LífstíLshandbók
fyrir konur
„Mig langar að
beina þessari bók og
skilaboðum mínum
til kvenna sem hafa
kannski staðið í
sömu sporum. Eru
fastar í einhverju fari,
neikvæðar, kannski
með lítið sjálfsálit og
langar að ná sér upp úr því. Bók-
inni er ætlað að hjálpa lesendum
að þekkja sjálfa sig betur og koma
sér af stað með að láta draumana
rætast. Ná tökum á lífinu, meðal
annars með markmiðasetningu og
sjálfsskoðun.“