Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Blaðsíða 67
Betri pizzur 3Helgarblað 1. desember 2017 KYNNINGARBLAÐ
Ölverk Pizza & brugghús
Ölverk Pizza & brugg-hús er einstakur veitingastaður í
hveragerði sem opnaður
var 28. maí í vor. einkenn-
ismerki staðarins eru tvö,
annars vegar framúrskarandi
eldbakaðar pizzur, hins vegar
sérbruggaður, íslenskur
eðalbjór, þar sem jarðgufa úr
nágrenninu er nýtt í fram-
leiðsluferlinu – sem gerir
framleiðsluferlið einstakt.
eigendur Ölverks eru
laufey sif lárusdóttir, elvar
Þrastarson og ragnar karl
gústafsson. Það er laufey
sem verður fyrir svörum og
nefnir hún að hópapantanir
séu mjög algengar hjá þeim.
„hér eru mjög oft hópar en
við getum tekið á móti allt að
50 manns í einu í sérstökum
sal. Það eru ýmsar séróskir
um hlaðborð og þess hátt-
ar og við reynum að koma
til móts við allar óskir,“ segir
laufey. hópapantanir fara
fram með tölvupósti á net-
fangið olverk@olverk.is.
enn fremur er Ölverk mjög
vinsæll staður hjá ferðafólki.
„Það er til dæmis vinsælt
að koma hingað eftir dags-
ferð í reykjadal, eftir að fólk
hefur tekið þar góða göngu
í einstakri náttúruperlu.
göngufólk af hengilssvæð-
inu kemur líka oft hingað og
nærir sig eftir góð-
an göngudag og svo
auðvitað fólkið sem
hefur verið að skoða
suðurlandsundirlendið.“
Pizzurnar hjá Ölverki eru
12 tommu og flokkast sem
handverkspizzur. Mikil áhersla
er lögð á vandað hráefni og
að sneiða hjá öllum fjölda-
framleiðslubrag. „ekkert er
tilbúið heldur er allt unnið á
staðnum frá grunni og við
leggjum alúð og ást í það
sem við gerum,“ segir lauf-
ey. „Á staðnum starfrækjum
við einnig lítið brugghús og
þar eru bruggaðir hinir ýmsu
bjórar sem gaman er að
bragða á með pizzunum.“
Það tekur stutta stund að
baka pizzurnar á hjá Ölverki
en þær eru bakaðar í opn-
um viðareldofni, að ítölskum
sið. Öllu lengri tíma tekur að
undirbúa deigið en það er
kaldgerjað í heilan sólarhring.
að sögn laufeyjar eru pizz-
urnar léttar í maga.
Meðal vinsælustu pizzanna
á Ölverk er pizza númer 5 á
matseðli en á henni er pepp-
eróní, beikon, piparostur og
gilla-sósa. Númer 6 er álíka
vinsæl en á henni er ostur,
beikon, döðlur og gráðostur.
Nýjasta nýtt er síð-
an bragðmikil og girnileg
jólapizza: Tvíreykt hangikjöt
með rauðkáli og sýrðum
rjóma með piparrót. Með
henni eru síðan paraðir
bragðmiklir jólabjórar sem
bruggaðir eru á staðnum.
Ölverk er opið alla daga
vikunnar frá 11.30. Á föstu-
dögum og laugardögum er
opið er til klukkan 23.00 en
aðra daga er opið til klukkan
22.00. slökkt er á eldofninum
klukkutíma fyrir lokun.
Sjá nánar á
Facebook síðunni facebook.
com/olverkbrugghus/
Handgerðar pizzur,
hlaðnar alúð og ást
Pizzur eru farnar að leika stórt hlutverk í nýsköpun listakokksins
heimsfræga, Jamies Oli-
ver, en pizzur rötuðu fyrst á
matseðla hans fyrir örfáum
árum. Á Jamie's italian á
hótel borg, sem var opn-
aður um mitt síðasta sum-
ar, eru pizzur ásamt pasta
vinsælustu réttirnir. Jón
haukur baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Jamie's italian
á Íslandi, fræðir okkur örlítið
um stutta en glæsta sögu
pizzugerðar hjá Jamie Oliver:
„Jamie's italian-staðirnir
hófu fyrst rekstur í bretlandi
árið 2009 en pizzur komust
ekki á matseðilinn fyrr en
nokkrum árum síðar, þess
í stað einbeitti hann sér að
pasta og öðrum hefðbundn-
um ítölskum réttum, til dæmis
sinni útgáfu af steikum að
ítölskum sið. Á englandi eru
aðeins þrír Jamie's italian-
staðir með pizzur en mark-
miðið er að allir staðirnir verði
með pizzur innan skamms
enda vinsældirnar það mikl-
ar. Pizzurnar hafa hins vegar
slegið svo rækilega í gegn
að núna er orðin til ný Jamie
Oliver keðja, Jamie's Pizzeria.“
að sögn Jóns hauks var
ekki borðleggjandi að pizzur
yrðu á nýja staðnum á hótel
borg en íslensku rekstraraðil-
arnir vissu hvað pizzur eru
vinsælar á Íslandi og lögðu
þunga áherslu á að þær yrðu
á matseðlinum. sem er eins
gott því að sögn Jóns hauks
eru pizzur og pastaréttir
vinsælustu réttirnir á Jamie's
italian á hótel borg. Jón
haukur segir okkur dálítið frá
þessum pizzum sem renna
svo ljúflega niður í landann
og erlenda ferðamenn:
„Þetta eru súrdeigspizzur
og mikið af hráefninu sem við
notum kemur beint frá Ítalíu,
til dæmis hráskinkan, pylsur,
ólífur og fleira. Þessu bland-
ast íslenskt gæðahráefni,
sérstaklega ostur, en hinn
dýrlegi búri er helsti osturinn
sem notaður er á pizzurnar.
ein vinsælasta pizzan heitir
„The Porkie“ en á henni er
svínakjöt, svokallað pancetta,
sem er ítölsk útgáfa af
beikoni, pepperóní, búra-
ostur og oreganó ásamt
fleira góðgæti. „The Funghi“
er síðan afar vinsæl villis-
veppapizza með sveppasósu,
ristuðum villisveppum og
búra. Þá má nefna „red
rocket“ sem er meðal annars
með búra-ostinum og ekta
Prosciutto.“
að sögn Jóns hauks eru
pizzurnar gífurlega vinsælar
hjá öllum aldurshópum og á
öllum tímum dags, jafnt hjá
vinnandi fólki í hádegismat
sem fjölskyldum að lyfta sér
upp á kvöldin eða um helgar.
sem fyrr segir var Jamie's
italian á hótel borg opnaður
síðasta sumar og að sögn
Jóns hauks er aðsóknin mjög
góð. erlendir ferðamenn eru
vissulega áberandi en ís-
lenskir matargestir eru samt
í greinilegum meirihluta og
hafa vinsældir staðarins
meðal Íslendinga farið fram
úr björtustu vonum. sjá nánar
á vefsíðunni jamiesitalian.is.
Pizzurnar vinsælastar
JaMie's iTaliaN Á hóTel bOrg: