Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2017, Síða 38
KYNNINGARBLAÐ Helgarblað 15. desember 2017Múlinn
Þú leggur til húsnæðið –
Leigutekjur sjá um allt annað
Fyrirtækið Leigutekjur, Ármúla 4, veitir heildarþjónustu til þeirra sem vilja leigja út frá sér hús-
næði sitt til ferðamanna. Töluverð
vinna fylgir slíkri umsýslu, finna leigj-
endur, þrífa og skipta um á rúmum á
milli leigjenda og svo framvegis. „Auk
þess er það þannig að ef þú ert að
fara í tveggja vikna utanlandsferð og
ætlar að leigja út íbúðina eða húsið
þitt til ferðamanna á meðan, þá er
ekki auðvelt fyrir þig að taka á móti
gestunum og standa í þrifum og að
búa um rúm og þess háttar,“ segir
Böðvar Rafn Reynisson hjá Leigu-
tekjum en hann rekur fyrirtækið með
Jórunni Steinsson.
„Við tökum við lyklunum og sjáum
um allan pakkann á meðan þú ert í
fríi erlendis eða úti á landi. Við sjáum
um allt ferlið frá upphafi til enda,
komum á staðinn, tökum ljósmyndir
og skráum eignina. Við sjáum um öll
samskipti við ferðamennina, tökum
á móti þeim og skiptum á rúmum og
þrífum á milli gesta. Þetta er heildar-
þjónusta,“ segir Böðvar og þarf sá
sem vill leigja út frá sér í raun ekki
að gera annað en hafa samband við
Leigutekjur.
Samkvæmt lögum hafa allir að
uppfylltum einföldum skilyrðum
heimild til að leigja út húsnæði sitt
í 90 daga á ári eða fyrir 2 milljónir
króna. Ef útleigan fer yfir þau mörk
þarf að sækja um gistiheimilaleyfi.
„Þó ber að sækja um leyfi hjá sýslu-
manni fyrir heimagistingu sem er
einfalt í sniðum og kostar bara nokkur
þúsund á ári, en við getum einnig að-
stoðað við þá umsókn. “ segir Böðvar.
Leigutekjur vanda sig mjög við að
finna góða og trausta leigjendur: „Við
gerum okkur far um að finna trausta
og góða leigjendur en ferðamenn fá
einkunnir í einkunnakerfi Airbnb, sem
er mikilvægur upplýsingabanki fyrir
okkur. Ferðamaður fær t.a.m. ekki
fimm stjörnu einkunn nema að hann
sé fyrrirmyndarleigjandi.“
Allir þeir sem hafa áhuga á því að
leigja húsnæði sitt til ferðamanna og
næla sér þannig í drjúgar aukatekjur
með þægilegum hætti án fyrirhafnar
og streitu ættu að hafa samband við
Leigutekjur í síma 519 8484 eða með
því að senda fyrirspurn á netfangið
leigutekjur@leigutekjur.is.
Böðvar og Jórunn reka einnig fyrir-
tækið Itravel.is þar sem íslenskir sem
erlendir ferðamenn geta bókað hina
ýmsu afþreyingu og ferðir, en þau
bjóða einnig erlendum ferðamönnum
upp á heildarpakka í Íslandsferðum
og eru því í miklum samskiptum við
erlenda ferðamenn. Vinna starfsemi
Itrvel og Leigutekna því vel saman.
Böðvar segist finna fyrir mikilli eftir-
spurn eftir Airbnb gistingu núna yfir
hátíðirnar og því er þetta góður tími
til að leigja út frá sér.
Nánari upplýsingar um Leigutekjur
er að finna á heimasíðunni leigutekj-
ur.is og heimasíða Itravel er itravel.is.
Jórunn Steinsson og
Böðvar Rafn Reynisson.