Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.12.2017, Síða 17

Víkurfréttir - 13.12.2017, Síða 17
SUMARSTÖRF Í FRÍHÖFNINNI Ein vinsælasta verslunin í flugstöðinni óskar eftir að ráða starfsfólk í sumarafleysingar 2018 Um er að ræða sumarstörf í verslunum, á lager og skrifstofu Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli. Við leitum að þjónustulunduðum, glaðlyndum, snyrtilegum og reyklausum einstaklingum sem hafa góða samskiptahæfileika, eiga auðvelt með að nálgast fólk, hafa lipra og þægilega framkomu, eru sveigjanlegir og geta unnið undir álagi. UMSÆKJENDUR SKULU VERA 20 ÁRA EÐA ELDRI Umsækjendur þurfa að geta hafið störf um miðjan maí og starfað fram yfir miðjan ágúst. Umsóknum skal skilað inn rafrænt á www.dutyfree.is/atvinna. UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 21. JANÚAR 2018 Fríhöfnin hefur hlotið gullmerki jafnlaunaúttektar PwC og er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi. Hún hefur einnig hlotið fjölda viðurkenninga síðastliðin ár, m.a. í starfsmenntamálum, fyrir að vera besta fríhöfn í Evrópu og fjölskylduvænt fyrirtæki. Stærstu vöruflokkarnir í verslunum félagsins eru áfengi, tóbak, snyrtivörur og sælgæti. Fríhöfnin hefur sett sér það markmið að vera ávallt til fyrirmyndar í jafnréttismálum og leggur áherslu á góðan starfsanda. www.dutyfree.is VERSLUN LAGER SKRIFSTOFA Starfið felst í sölu og þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins og áfylling- um í verslun. Unnið er í vaktavinnu. Hæfniskröfur • Söluhæfileikar og rík þjónustulund • Reynsla af verslunarstörfum er kostur • Hæfni í mannlegum samskiptum • Gott vald á íslenskri og enskri tungu Starfið felst í almennum lagerstörfum. Unnið er í vaktavinnu. Hæfniskröfur • Meirapróf og/eða lyftarapróf er æskilegt • Hæfni í mannlegum samskiptum • Góð tölvukunnátta • Gott vald á íslenskri og enskri tungu Starfið fellst í símsvörun, móttöku viðskiptavina, skráningu reikninga, tollskýrslugerð auk almennra skrifstofu- starfa. Vinnutími er kl. 8–16 virka daga. Hæfniskröfur • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði • Góð tölvukunnátta og þekking á Navision er kostur • Gott vald á íslenskri og enskri tungu VIð BJÓÐUM UPP Á FRÍAR RÚTUFERÐIR TIL OG FRÁ HÖFUÐBORGARSVÆÐINU

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.