Víkurfréttir - 13.12.2017, Page 26
26 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
„Ég sá auglýsingu
frá unglingaleik-
félaginu þegar ég var
í 10. bekk og ákvað
að prófa þetta bara
og hef ekki losnað
síðan,“ segir tón-
listarmaðurinn
og áhugaleikarinn
Sigurður Smári
Hansson, en síðustu
ár hefur hann verið
allt í öllu í menn-
ingar- og félagslífinu
á Suðurnesjum.
Sigurður hefur tekið þátt í sjö upp-
færslum hjá Leikfélagi Keflavíkur,
bæði keppt og þjálfað í MORFÍs,
mælsku- og rökræðukeppni fram-
haldsskólanna, og syngur einnig með
sönghópnum Vox Felix, undir stjórn
Arnórs Vilbergssonar, sem keppti fyrir
stuttu í úrslitum söngkeppninnar
Kórar Íslands. Þess á milli kemur
Sigurður Smári fram við alls kyns
tilefni með gítarinn við hönd og segist
ekki vera á leiðinni að hætta því neitt
á næstunni. „Maður fær náttúrulega
bara einhverja fáránlega unun við
það að spila tónlist. Ef ég set tón-
list í eyrun get ég gleymt mér í fleiri
klukkutíma,“ segir hann.
Þessa dagana tekur Smári, eins og
hann er oftast kallaður, þátt í upp-
færslu Leikfélags Keflavíkur á Dýr-
unum í Hálsaskógi sem hefur fengið
frábærar viðtökur. Þar fer hann með
hlutverk Lilla klifurmúsar. „Þetta er
örugglega skemmtilegasta sýning sem
ég hef tekið þátt í. En ég leik oftast
svo mikinn sprellikarl að mér finnst
rosalega gaman að fá að breyta til
stundum og fá að vera aðeins alvar-
legri,“ segir hann. Litla Hryllings-
búðin var síðasta leikrit sem Smári
tók þátt í, en þar fór hann með hlut-
verk Baldurs sem hann segir hafa
verið mesta áskorunin fyrir hann
síðan hann byrjaði í leikfélaginu.
Í grunnskóla tók Smári þátt í alls kyns
skemmtunum. „Maður var notaður
í allt, árshátíðir og svoleiðis. Í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja var ég í nem-
endaráðinu og þegar ég færði mig
í Leikfélag Keflavíkur tók ég þátt í
öllu þar.“
Aðspurður hvað heilli sig svona við
leiklistina svarar Smári því að fólkið
sem hann vinnur með sé svo skemmti-
legt. „Ég ákvað að mæta og prófa fyrir
mörgum árum og hef ekki farið út
síðan.“
Aðeins 10 ára gamall eignaðist Smári
gítar sem hann með tímanum lærði að
spila á sjálfur. Í dag spilar hann einn-
ig á píanó og trommur en kemur þó
oftast fram með gítarinn. „Það hjálpar
manni helling að vera sviðsvanur
þegar maður kemur fram.“ Hann
segir þó að söngurinn og leiklistin sé
aðallega áhugamál og stefnir að því
að verða húsasmiður. Smári starfar
nú hjá Braga Guðmundssyni ehf. í
Garðinum, en hann ákvað að byrja að
læra húsasmíði eftir að hafa unnið hjá
honum í nokkur sumur og líkað vel.
Smári segist stefna að því einn daginn
að semja tónlist sjálfur en það verði
þó líklegast ekki fyrr en hann hefur
fundið út úr því hvernig hægt sé að bæta
fleiri klukkutímum við sólarhringinn.
„Þá kannski reynir maður að setjast
niður og búa eitthvað til. En þangað
til, á meðan það eru 24 klukkutímar í
sólarhringnum, þá gefst lítill tími í það.“
Hægt er að panta miða á
Dýrin í Hálsaskógi eftir ára-
mót í síma 421-2540. Þá er
einnig hægt að bóka Sigurð
Smára á viðburði í gegnum
Facebook.
Sólborg Guðbrandsdóttir
solborg@vf.is
VIÐTAL
Lilli klifurmús
er ekki stór
en smíðar hús
og syngur í kór
Dýrin í Hálsaskógi hafa slegið í gegn hjá Leikfélagi Keflavíkur
- Sigurður Smári Hansson ákvað
að mæta og prófa hjá Leikfélagi
Keflavíkur fyrir nokkrum árum
og hefur ekki farið út síðan
Uppáhaldsmaturinn þinn:
Lambalæri með Bernaise.
Uppáhaldsdrykkur: Ískalt vatn
er lúmskt, maður gleymir því alltaf
hvað það er gott.
Uppáhaldstónlistarmaður: Ed
Sheeran.
Uppáhaldsleikari: Hilmir Snær.
Skemmtilegasta gigg sem þú
hefur spilað: Brúðkaup sem ég
spilaði í í sumar, safnaði saman
hljómsveit. Það var mjög gaman.
Ef þú værir fastur á eyðieyju,
hvaða þrjá hluti myndirðu taka
með þér? Gítar, íslenska vatnið og
Hilmar Braga frænda.
Ef þú ættir 500 kall, hvað mynd-
irðu kaupa þér? Ég myndi kaupa
nokkrar raðir í Lottó og athuga
hvort ég næði ekki að búa til meiri
pening.
Ertu hjátrúarfullur? Nei.
Hvort ertu meiri söngvari eða
leikari? Þetta er eins og að gera
upp á milli barnanna minna.
Hvað vildirðu verða þegar þú varst
lítill? Fótboltamaður held ég.
Hvað ætlarðu að verða þegar
þú verður stór? Ég stefni á það að
verða húsasmiður. Við byrjum bara á
því og svo sér maður hvað gerist.
Hvað er það fyrsta sem þér
dettur í hug þegar þú heyrir...
Vegan: Próteinskortur
Peningur: Mánaðarmót
Tónlist: Gítar
Kvenmaður: Sólný
Maður fær náttúrulega
bara einhverja fáránlega
unun við það að spila
tónlist. Ef ég set tónlist í
eyrun get ég gleymt mér
í fleiri klukkutíma.
Marteinn skógarmús, sem leikinn er af Höllu Kareni
Guðjónsdóttur, og Smári í upphitun fyrir sýningu.
Lilli klifurmús og hin dýrin í Hálsaskógi.
Sigurður Smári rómantískur
í Frumleikhúsinu í Keflavík.
Gítar er eitt af þeim
fjölmörgu hljóðfærum
sem Smári leikur á.