Víkurfréttir - 13.12.2017, Page 28
28 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
„Og frú Ása stóð við sitt. Upp frá þessu
stóð Duusverslunin fyrir glæsilegum
jólatrésskemmtunum í Bryggjuhúsinu
um 20 ára skeið. Þar komu saman öll
börn bæjarins allt upp undir 300 börn
og sáu þá mörg þeirra jólatré í fyrsta
sinn,“ segir í samantekt frá þessum
tíma fyrir ríflega 100 árum í Keflavík.
Fyrsta sunnudag í aðventu var
jólaballið í Bryggjuhúsinu haldið
annað árið í röð. og horft um öxl
og rifjuð upp þessi 100 ára gamla
og merkilega stund með jóla-
trésskemmtun í Bryggjuhúsinu
í anda gömlu skemmtananna.
Frú Ása Olavsen tók á móti börn-
unum eins og forðum og dansað var
í kringum jólatréð við undirleik Guð-
mundar Hermannssonar. Auðvitað
kom jólasveinn af gamla skólanum
á svæðið, sjálfur Giljagaur. Helgina
áður en jólaball frú Ásu var haldið var
haldin notaleg föndurstund þar sem
búin voru til kramarhús, jólahjörtu
og músastigar og salurinn síðan
skreyttur hátt og lágt fyrir jólatrés-
skemmtunina.
Ljósmyndari Víkurfrétta heimsótti
Bryggjuhúsið, bæði þegar skrautið
var útbúið og eins þegar boðið var
til jólaskemmtunar eins og um alda-
mótin 1900. Myndirnar eru frá báðum
viðburðunum.
Ása Olavsen tók á móti gestum í Bryggjuhúsinu
„Ég ætla að muna eftir ykkur á jólunum“. Þetta
sagði kaupmannsfrú Duusverslunarinnar Ása
Olavsen við börnin í Keflavík sem hún hafði boðið
til sín í veislu, í fínasta hús bæjarins Fischershús
um aldamótin 1900. Ása var mætt „ljóslifandi“ í
Bryggjuhús Duus safnahúsa á dögunum. Leikkonan
Halla Karen Guðjónsdóttir skellti sér í gervi Ásu.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
JÓLAFÖNDUR Í BRYGGJUHÚSI