Víkurfréttir - 13.12.2017, Page 31
31MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
Þórhalla Gísladóttir er búsett í
Keflavík en hún starfar í Gallerí
Keflavík. Á hverju ári býr fjöl-
skylda hennar til laufabrauð
saman og Þórhalla mælir með
því að íbúar rölti niður í bæ á Þor-
láksmessu og skoði úrvalið í búð-
unum. Hún hefur áður gefið pakka
til Fjölskylduhjálpar og stefnir að
því að gera það aftur í ár.
Hvar verður þú um jólin?
„Ég verð líklega heima hjá mér
þetta árið með börnunum mín-
um og nánustu fjölskyldu.“
Ert þú byrjuð að kaupa jóla-
gjafir? „Ég held ég hafi aldrei
verið eins skipulögð í jóla-
gjafa innkaupum! Ég er nán-
ast komin með allt. Planið
var að klára gjafirnar fyrir
1. desember en náði því ekki
alveg.“
Ert þú með einhverjar hefðir
um jólin? „Það er hefð hjá mér
er að gera laufabrauð með fjöl-
skyldunni fyrir jólin og svo er
alltaf jólaboð hjá mömmu á
jóladag. Annað er aðeins
breytilegt frá ári til árs.
Hvað verður í matinn á að-
fangadag? „Það er alltaf tví-
réttað hjá okkur á aðfangadag,
rjúpur og hamborgarhryggur.
Rjúpnalyktin er jólalyktin
mín.“
Er eitthvað hér á Suðurnesjum
sem þú mælir með að fólk nýti
sér/geri um jólin? „Ég mæli
með að kíkja á einhverja tón-
leika, bæði í kirkjunni og
Hljómahöllinni. Allir ættu
að rölta niður í bæ á Þorláks-
messu og skoða úrvalið í búð-
unum sem við höfum. Alltaf
gaman að vera á röltinu þá og
hitta vini og kunningja úti,
flestir á síðustu stundu með
að klára síðustu jólagjafainn-
kaupin en allir svo glaðir og
komnir í jólaskapið.“
Ætlar þú að láta eitthvað gott
af þér leiða um jólin? Ef svo er,
hvernig? „Ég hef gefið pakka í
fjölskylduhjálp og hugsa að það
verði eitthvað í þeim dúr. Ég
veit að þeim vantaði oft fyrir
unglinga svo ég mæli með því
að skoða það.“
Mælir með að
aðstoða Fjöl-
skylduhjálp
Jónas Sig
og Ritvélar framtíðarinnar
spila í Fish House í Grindavík laugardaginn 16. desember!
Tónleikar hefjast kl. 22.00
Miðaverð er 4500 í forsölu á midi.is en 4900 í hurð
Fish House Bar & Grill Hafnargata 6 240 Grindavík S: 426-9999
HAFNARGÖTU 90 - REYKJANESBÆ
ÞAÐ VERÐUR
HJÁ OKKUR Á ÞORLÁKSMESSU