Víkurfréttir - 13.12.2017, Blaðsíða 43
43VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinn-
ar þarf varla að kynna fyrir okkur
Íslendingum en hann ásamt hljóm-
sveit sinni mun stíga á stokk á Fish
House þann 16. desember nk. klukkan
22. Jónas sjálfur kom fyrst fram með
Sólstrandagæjunum sem nutu mikilla
vinsælda á tíunda áratug síðustu aldar
en hann, ásamt Ritvélum framtíðar-
innar, hafa getið af sér gott orð og eru
þekkt fyrir lifandi flutning, texta sem
lætur engan ósnortinn og tónlist sem
hrífur fólk með sér. Hljómsveitin gaf
út „live“ plötu í vor og mun hún taka
ýmis lög sveitarinnar á tónleikum
sínum á Fish House.
„Þetta verður svakalega gaman,
þau munu eflaust taka sín vinsæl-
ustu lög, Jónas er með bakraddir
og blásturshljóðfæraleikara og eru
þau átta saman í hljómsveitinni. Við
ákváðum að halda þessa tónleika í
byrjun nóvember þannig að fyrirvar-
inn var frekar stuttur. Hljómsveitin
hefur komið einu sinni áður fram í
Grindavík en það var á Sjóaranum
Síkáta, þá kom hún fram ásamt Fjalla-
bræðrum, lúðrasveit Þorlákshafnar
og kór Vestmannaeyja. Þeir tónleikar
voru risastórir og flottir, þau eru svo
hress og skemmtileg á sviði og ég bíð
spenntur,“ segir Kári.
Stebbi Jak, söngvari Dimmu, og Andri
Ívars gítarleikari koma fram á Fish
House þann 14. desember. Þar munu
þeir spila jólalög, þungarokk, hug-
ljúfar ballöður, poppmúsík og allt þar
á milli. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
þeir félagar koma fram á Fish House
og hefur alltaf myndast skemmtileg
stemning þegar þeir mæta til Grinda-
víkur.
Hreindýraborgarinn hans Kára hefur
notið mikilla vinsælda undanfarin ár
og margir hafa beðið spenntir eftir
komu hans og hefur verið ágætis
jólatraffík hjá Kára og félögum í
desember.
Þann 30. desember nk. mætir grind-
víska hljómsveitin Hált í Sleipu á Fish
House en í henni eru gamalreyndir
tónlistarmenn úr Grindavík sem nutu
mikilla vinsælda á meðal bæjarbúa
fyrir „nokkrum“ árum síðan. Þar
munu þeir rifja upp gamla takta og
halda uppi skemmtilegri stemningu.
Á gamlárskvöld verður síðan opið hús
og DJ á staðnum til að halda uppi
fjörinu.
Miðasala er í fullum gangi á tónleika
Jónasar og Ritvéla framtíðarinnar á
midi.is. Á tónleikunum verður einnig
hægt að kaupa „best of“ plötu sem
inniheldur öll vinsælustu lög Jónasar
ásamt lifandi upptökum og áður óút-
gefnu efni.
Hreindýr og
tónleikahald
á Fish House
Fish House hefur fengið létta yfir-
halningu en staðurinn geymir
margar góðar minningar í hjörtum
íbúa Grindavíkur og jafnvel annarra
Suðurnesjamanna. Kári Guðmundsson hefur verið duglegur að halda tón-
leika á árinu og hefur meðal annars Mugison, Greta Salóme, Stebbi Jak,
Valdimar og fleiri stigið á stokk á staðnum. Jólavertíðin er á fullu núna
og hinn sívinsæli hreindýraborgari er á matseðlinum og mun hann vera
það á meðan á jólahátíðinni stendur eða fram að þrettándanum. Blaða-
maður Víkurfrétta hitti Kára, eiganda Fish House í Grindavík, snemma
að morgni en kvöldið áður hafði Kári eldað mat fyrir hundrað hressar
kvenfélagkonur í Grindavík.
Þetta verður svaka-
lega gaman, þau
munu eflaust taka
sín vinsælustu lög.
VIÐTAL Rannveig Jónína Guðmundsdóttirrannveig@vf.is
- lægra verð
Við bjóðum ykkur hjartanlega
velkomin í desember
Apótekarinn Keflavík
Suðurgötu 2
S: 421 3200
Apótekarinn Fitjum
Fitjum 2
S: 534 3010
Apótekarinn Keflavík
Þorláksmessa 23. desember kl. 10–23
Aðfangadagur 24. desember kl. 10–12
Jóladagur 25. desember LOKAÐ
Annar í jólum 26. desember kl. 10–14
27. desember kl. 10–19
Gamlársdagur 31. desember kl. 10–12
Nýársdagur 1. janúar LOKAÐ
Þriðjudagur 2. janúar 2018 kl. 10–19
Apótekarinn Fitjum
Þorláksmessa 23. desember kl. 12–16
Aðfangadagur 24. desember LOKAÐ
Jóladagur 25. desember LOKAÐ
Annar í jólum 26. desember LOKAÐ
Gamlársdagur 31. desember LOKAÐ
Nýársdagur 1. janúar LOKAÐ
Þriðjudagur 2. janúar 2018 kl. 10–18
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í desember.
Fjöldi glæsilegra tilboða og kaupauka fyrir jólin. Hlökkum til að sjá ykkur.