Víkurfréttir - 13.12.2017, Page 56
56 ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
JÓLASÝNING FRAMTÍÐARFIMLEIKASTJARNA
Árleg jólasýning fimleikafélags
Grindavíkur var haldin þann
3. desember sl. Þar sýndu iðkendur
það sem þau hafa lært í vetur og
sýndu meðal annars æfingar á slá,
loftdýnu og afstökk á dýnu. Guðrún
Lilja, jólastjarnan 2016, söng jóla-
lag áður en sýningin hófst og árlegi
kökubasar deildarinnar var einnig
á sínum stað en afrakstur hans er
notaður til þess að fjármagna áhöld
fyrir deildina. Meðfylgjandi myndir
tók Rannveig Jónína á sýningunni.
Við óskum samstarfsaðilum
okkar á Suðurnesjum og
landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári
Ungmennafélögin á Suðurnesjum tóku höndum saman og héldu sam-
stöðumót til að sýna Guðmundi Atla Helgasyni samhug í verki en hann er
nú staddur í Svíþjóð í lyfjameðferð eftir að hafa greinst með bráðahvítblæði
í annað sinn aðeins níu ára gamall.
Sunddeild ÍRB ákvað að gefa ekki jóla-
kort í ár og gáfu þess í stað ágóða
þeirra til Guðmundar og á Aðvent-
umóti þeirra var söfnunarbaukur þar
sem tekið var við frjálsum framlögum.
Þann 3. desember sl. mættu ungmen-
nalið frá Suðurnesjum til Grinda-
víkur þar sem keppt var í fjölmörgum
íþróttagreinum.
Sunddeild Grindavíkur synti og tók
Gunnar langafi Guðmundar meðal
annars sundsprett með krökkunum.
Í körfubolta mættust Grindavík og
Keflavík og júdódeild Grindavíkur og
Voga tóku æfingu saman. Fjölmargir
mættu til þess að tefla en fólk kom alls
staðar að til þess að tefla við hvort
annað, meðal annars úr Reykjavík.
Stórt fótboltamót var í Hópinu, knatt-
spyrnuhúsi Grindavíkur, þar sem lið
frá Grindavík, Keflavík, Njarðvík og
Reyni/Víði kepptu en þar mættust
stelpur og strákar og léku þvert hvert
á annað og sýndu þannig samstöðu.
Samtals voru 17 lið sem mættu til
leiks, 84 einstaklingar og allir fæddir
árið 2008.
Pylsur voru í boði Bónus ásamt
drykkjum og gaf Sigurjónsbakarí
kleinur fyrir svanga keppendur þegar
leikjum þeirra og æfingum lauk.
Sundgarpar úr Grindavík ásamt
Jórmundi, þjálfara sínum.
Vel heppnað
samstöðumót Grindavík gegn Njarðvík í knattspyrnu.
Ung skákstúlka.
Júdófélög Grindavíkur og Voga tóku létta æfingu.
Lið Keflavíkur í knattspyrnu.
Ungir körfuboltaiðkendur.
Hin árlega jólasýning fimleikadeildar Keflavíkur
var haldin síðasta laugardag í Íþróttaakademíunni
í Reykjanesbæ. Þátttakendur stóðu sig með prýði og
var þétt setið á öllum fjórum sýningum dagsins.
Meðfylgjandi myndir tók Sólborg Guðbrandsdóttir á jólasýningunni.
Kraftaverkasýning fimleikadeildarinnar