Víkurfréttir - 13.12.2017, Side 61
61ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg.
Ingibjörg Sigurðardóttir komin til Svíþjóðar
ÆTLAÐI ALLTAF AÐ VERÐA ATVINNUMAÐUR
- Hlakkar til að takast á við verkefni atvinnumennskunnar
Knattspyrnukonan Ingibjörg Sigurðardóttir skrifaði
undir samning við sænska liðið Djurgården á dögunum,
en að sögn Ingibjargar ætlar liðið sér stóra hluti í
sænsku deildinni á næsta ári.
Ingibjörg ólst upp í Grindavík og lék með liðinu til ársins
2011 en aðeins þrettán ára gömul lék hún sína fyrstu
leiki með meistaraflokki Grindavíkur. Síðastliðin sex ár
hefur hún leikið með Breiðablik í efstu deild kvenna í
knattspyrnu.
Þegar Ingibjörg er spurð hvers vegna hún valdi það að fara
til Svíþjóðar segir hún að Djurgården sé metnaðarfullur
klúbbur. „Þau ætla sér stóra hluti í sænsku deildinni á
næsta ári en deildin er mjög sterk. Ég er viss um að þarna
er gott umhverfi fyrir mig til að bæta mig sem leikmaður
og þróa minn leik en á sama tíma get ég hjálpað liðinu að
ná sínum markmiðum.“ Framundan eru stífar æfingar
hjá Ingibjörgu en í desember mun hún halda áfram að
æfa með Breiðablik ásamt því að æfa sjálf. „Ég fer til Sví-
þjóðar í byrjun janúar, hitti liðið og þá fer allt að rúlla.
Mér skilst að bikarkeppninni byrji í febrúar þannig það
er ekkert svo langt í að þetta byrji allt saman sem er
bara spennandi. EM ævintýri landsliðsins stendur upp
úr hjá Ingibjörgu í ár, það var mikil reynsla fyrir hana og
allt landsliðið að taka þátt í því móti. „Sigurinn á Þýska-
landi stóð líka frekar mikið upp úr hjá mér því þetta var
í fyrsta sinn í sögunni sem við vinnum Þýskaland og
það var mögnuð tilfinning. En ég verð líka að minnast á
tímabilið með Breiðablik sem var mitt síðasta með þeim
í bili en það verður alltaf eftirminnilegt. Við misstum
marga leikmenn í lok tímabils og þetta leit ekkert vel út
á tímabili hjá okkur en karakterinn og samstaðan í liðinu
skilaði okkur ágætis árangri. Maður er samt aldrei sáttur
með annað sætið en ég er þrátt fyrir það ótrúlega stolt
af liðinu mínu.“
Ingibjörg stefndi alltaf á atvinnumennsku og hefur það
verið markmiðið hennar frá því hún var lítil. „Þetta er
mjög spennandi fyrir mig.“
Ingibjörg ætlar að æfa vel um jólin og koma sér í gott
stand. „Svo ætla ég að eyða góðum stundum með fjöl-
skyldu og vinum áður en ég flyt svo út í byrjun janúar.“
Fótboltanámskeið 2017
27., 28. og 29. desember 2017
Fyrir 6-13 ára (krakkar fæddir 2004-2011)
Á milli jóla og nýárs, dagana 27., 28. og 29. desember, ætlar knattspyrnudeild Keflavíkur, í samstarfi við Lindex,
Nettó og Soho veitingaþjónustu, að halda fótboltanámskeið fyrir stelpur og stráka á aldrinum 6-13 ára.
Námskeiðið verður haldið í Reykjaneshöll og má sjá nánari dagskrá námskeiðsins hér fyrir neðan.
Þetta verður skemmtilegt og fróðlegt námskeið sem samanstendur af markvissum fótboltaæfingum,
skemmtilegum og fræðandi fyrirlestrum, heimsóknum frá góðum gestum, gleði og gaman.
Meistaraflokkur karla mun sjá um uppsetningu og þjálfun á fótboltaæfingunum og fáum við góða gesti til að
tala um markmiðasetningu, næringu, leikgreiningu, styrktarþjálfun, landslið, atvinnumennsku o.fl.
Dagskrá Verð og skráning
Takmarkaður fjöldi plássa er í boði!
• Skemmtilegar fótboltaæfingar
• Fræðandi fyrirlestrar
• Hressing frá Nettó
• Hádegismatur frá Soho
• Heimsókn frá atvinnumönnum
• Þátttökugjöf frá Lindex
6. og 7. flokkur (2008-2011)
10:00 – 12:00 Æfing
12:00 – 12:30 Frjáls tími
12:30 – 13:00 Hádegismatur
13:00 – 13:30 Fyrirlestur
4. og 5. flokkur (2004-2007)
11:00 – 12:00 Fyrirlestur
12:00 – 12:30 Hádegismatur
12:30 – 13:00 Frjáls tími
13:00 – 15:00 Æfing
Yngri (6. og 7. flokkur) 12.000 kr.
Eldri (4. og 5. flokkur) 14.000 kr.
Systkinaafsláttur er 50% af gjaldi yngri iðkanda
Skráning fer fram á lindexnamskeid@gmail.com
Greiðsla staðfestir skráningu:
Reikn.nr. 0121-26-5488
Kt. 541094-3269
Elías Már
IFK Göteborg
Samúel Kári
Vålerenga
Arnór Ingvi
Malmö FF
Stefán Ljubicic
Brighton & Hove Albion
Meistaraflokkur karla
Helgi Jónas
Styrktarþjálfari
Unnar Sigurðsson
Þjálfari 2.fl.kk
Helga Margrét
Heilsu þjàlfi
Eysteinn Hauksson
Meistaraflokksþjálfari
Guðlaugur Baldursson
Meistaraflokksþjálfari
Arnór Ingvi kominn til Malmö
Knattsspyrnumaðurinn Arnór Ingvi
Traustason hefur skrifað undir
samning við sænska meistaraliðið
Malmö í Svíþjóð en samningurinn
gildir til ársins 2021. Arnór kannast
vel við sig í Svíþjóð en hann varð
meistari með sænska liðinu Norr-
köping árið 2015.
Arnór gekk í raðir Rapid í Vín í
Austurríki í kjölfarið og fór svo þaðan
á lánssamning til AEK í Aþenu. Hann
fékk þó lítið að spila þar og sagði m.a.
í samtali við fótbolti.net að sama hvað
hann gerði væri ekkert nógu gott og
að hugur hans leitaði annað.
Leikmaðurinn knái er alinn upp
hjá Njarðvík og Keflavík en með
landsliði Íslands hefur hann leikið
fimmtán leiki og skorað fimm mörk.
Arnór segir í viðtali á heimasíðu
sænska liðsins að Malmö sé stærsti
klúbburinn í Skandínavíu og þegar
að hann hafi heyrt af áhuga þeirra
hafi hann strax viljað koma til þeirra.
Hann hafi spilað gegn þeim nokkrum
sinnum, viti hvernig þeir spili og
hversu gott liðið og stuðningsmenn
þeirra séu. Þá segist hann vera glaður
að vera kominn aftur til Svíþjóðar.
Myndir frá heimasíðu Malmö
Sæunn Alda Magnúsdóttir
er búsett í Keflavík og
starfar í farþega-
þjónstu Airport As-
sociates í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar.
Hún ætlar frekar
að nýta tímann í
það að njóta heldur
en að eyða honum í
stress. Hnetusteikin
verður fyrir valinu á
aðfangadag og að sögn
Sæunnar á maður hik-
laust að reyna að gera
eitthvað sem getur glatt
aðra yfir hátíðirnar.
Hvar ætlar þú að verja að-
fangadegi? „Við verðum hjá
tengdamömmu á aðfangadag.“
Ertu byrjuð að kaupa jóla-
gjafir? „Ég er búin að reyna
að kaupa þær allar á netinu.
Ég nenni nánast engu búðar-
rápi og stressi yfir jólin. Ég
ætla frekar að nýta tímann og
njóta. Það gleymist oft. Nema
á Þorláksmessu. Þá er alltaf
gott að rölta Hafnargötuna
og kaupa síðustu gjafirnar.“
Ertu með einhverjar hefðir um
jólin? „Ég er ekki ennþá búin
að mynda mér neinar hefðir
en möndlugrauturinn heima
hjá mömmu er mjög mikil-
vægur.“
Hvað verður í matinn á að-
fangadag? „Hnetusteikin frá
Sollu verður aftur í ár. Hún
er snilld!“
Er eitthvað hér á Suðurnesjum
sem þú mælir með að fólk
nýti sér/geri um jólin? „Alla-
vega sérverslanirnar sem við
höfum hérna á Suðurnesjum.“
Ætlar þú að láta eitthvað gott
af þér leiða um jólin? Ef svo
er, hvernig? „Ég tek mömmu
þvílíkt til fyrirmyndar en hún
ætlar að vera í hjálparstarfi á
aðfangadag. En í fyrra og hitt
í fyrra fór ég með litlar gjafir
í kirkjuna sem jólasveinninn
gat nýtt sér. Ég býst við að
ég geri það aftur í ár. Þegar
maður hefur það gott fyrir og
getur gert eitthvað lítið sem
gleður aðra þá ætti maður hik-
laust að gera það. Er það ekki
það sem jólin snúast um?“
Aðstoðar jólasvein-
inn og gefur kirkj-
unni gjafir
„Sæunn ásamt
dóttur sinni
Írisi Lind og dó
ttur kærasta
síns, Matthildi
Eygló.“