Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.12.2017, Side 62

Víkurfréttir - 13.12.2017, Side 62
62 ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 13. desember 2017 // 49. tbl. // 38. árg. BENÓNÝ EINAR HLAUT GULLMERKI Benóný Einar Færseth hlaut gull- merki á boxmóti í Hafnarfirði sem fram fór þann 2. desember síðast- liðinn, en hann keppir fyrir Hnefa- leikafélag Reykjaness. Gullmerkið er hæsta viðurkenning sem gefin er fyrir diploma hnefa- leika. Benóný hefur stefnt að þessu lengi en hann á ekki langt að sækja hæfileikana þar sem pabbi hans, Guðjón Vilhelm, er einn af helstu frumkvöðlum boxhreyfingarinnar á Íslandi. „Ég ætlaðist aldrei til þess að Benóný myndi sækja í hnefaleika, hann ákvað það alveg upp á eigin spýtur,“ segir Guðjón, faðir hans. Hin ellefu ára gamla Kara Valgarðs- dóttir hlaut bronsmerkið eftir þrjár lotur og er núna að safna upp í silfurmerki. Hin fjórtán ára Lovísa Sveinsdóttir er upprennandi boxari og náði góðum árangri um helgina, en hún byrjaði að æfa fyrir þremur mánuðum síðan og er langt komin að safna upp í bronsmerki. Björn Björnsson (þjálfari), Benóný og Valgarður Magnússon (þjálfari). Jóhanna Íslandsmeistari í CrossFit Keflvíkingurinn Jóhanna Júlía Júlíusdóttir varð Íslandsmeistari í CrossFit eftir keppnina „Hleðsla Iceland Throwdown 2017“, Íslands- mótinu í CrossFit. Keppnin hófst á föstudegi og var þá keppt í fyrstu tveimur greinunum, 60 mínútum á þrekhjóli og 600 metra sundi. Jóhanna endaði í fjórða sæti á þrekhjólinu og í því fyrsta í sundinu, en hún er einnig afrekskona í sundi og æfði lengi með ÍRB. Á laugardeginum og sunnudeginum var keppnin haldin í HK húsinu í Digranesi þar sem keppt var í alls kyns CrossFit-greinum. Þá sigraði Jóhanna í fimm af sex greinum og stóð uppi sem Íslandsmeistari í CrossFit 2017. „Ég var mjög vel stemmd fyrir þetta mót og stóra markmiðið mitt var að vinna. Þetta var hörð keppni og margar sterkar stelpur, vel skipulagt og skemmtilegt mót sem gerði helgina frábæra,“ segir Jóhanna Júlía í sam- tali við Víkurfréttir. Brimfaxi hlaut æskulýðs- bikar hestamanna Hestamannafélag Brimfaxa í Grindavík hlaut æskulýðsbikar landsambands- ins fyrir frábært æskulýðsstarf, en bikarinn var afhentur á formannafundi Landsambands hestamanna. Brimfaxi býður upp á öflugt æskulýðsstarf og er þetta því mikill heiður fyrir félagið en það stendur reglulega fyrir mótum fyrir yngri iðkendur ásamt námskeiðum og fleiri uppákomum. Meðfylgjandi mynd var tekin á fundi frístunda- og menningarnefndar Grindavíkur á dögunum þar sem samstarfssamningur Brimfaxa og Grindavíkurbæjar var til umræðu. Þær Valgerður Söring og Jóhanna Harðardóttir frá Brimfaxa mættu á fundinn með bikarinn góða með sér. Aron Ómarsson, vélhjólakappi frá Suðurnesjum, gerði sér lítið fyrir og sigraði tvær Enduro-keppnir á Kýpur í byrjun desember. Eftir frábært gengi í erfiðustu keppni í heimi í Rúmeníu fyrr í sumar, þar sem Aron vakti mikla athygli, bauðst honum tækifæri á að keppa í þessari svokölluðu Left N’ Ride Enduro-keppni. Keppnin var haldin í Limassol á vegum Redbull og keppt var í tveimur keppnisgreinum. Fyrri parts dags var keppt í fimm kíló- metra langri braut með lítils háttar hindrunum þar sem Aron sigraði allar þrjár umferðir dagsins. Eftir hádegi var svo keppt í „Hard Enduro” þar sem keppendur voru sendir í ákveðnar hindranir. Aron gerði sér lítið fyrir í þeirri grein og stakk hina keppend- urnar af og var sá eini sem komst í gegnum brautina í fyrstu tilraun áfallalaust. Keppendur frá Þýskalandi, Frakk- landi, Bretlandi, Grikklandi og Úkra- ínu voru á meðal þátttakenda en Aron var í algjörum sérflokki þennan dag. Hann kom heim með þrenn verð- laun í farteskinu eftir þessa keppni og bætir við enn einum stórsigrinum á erlendri grundu. Að sögn Arons hefur honum nú þegar borist tvö tilboð um að keppa í Bretlandi og Grikklandi fljótlega eftir áramót. DAVÍÐ HILDIBERG AÐALSTEINSSON NORÐURLANDAMEISTARI Í 100M BAKSUNDI Sundmenn ÍRB stóðu sig vel með íslenska landsliðinu á Norðurlandamótinu í 25m laug, en mótið fór fram á Íslandi um þar síðustu helgi. Davíð Hildiberg Aðalsteinsson gerði sér lítið fyrir og varð Norðurlandameistari í 100m baksundi á sínum besta tíma. Þess má geta að Davíð var eini Norðurlandameistarinn sem Ísland eignaðist á mótinu. ÍRB átti fimm fulltrúa í landsliði Íslands og stóðu þau sig mjög vel. Það voru þau Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, Baldvin Sigmars- son, Eydís Ósk Kolbeinsdóttir, Karen Mist Arngeirsdóttir og Sunneva Dögg Robertson. Aðrir frá ÍRB sem unnu verðlaun fyrir Íslands hönd voru, Eydís Ósk Kolbeins- dóttir sem vann þrenn bronsverðlaun, í 800m skriðsundi, 400m fjórsundi, og með kvennasveit Íslands í 4x200m skriðsundi og Sunneva Dögg Robertson sem vann tvenn bronsverðlaun, í 200m skriðsundi og með kvennasveit Íslands í 4x200m skriðsundi. Aron bestur í Enduro-keppni á Kýpur Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum viðskiptin á árinu sem eru að líða •  Fitjabraut 30 • 260 Reykjanesbær • Sími: 420-0040 • GSM: 698-5693 • Bílasprautun • Réttingar • Sprautulökkun • Plastviðgerðir • Mössun • Bílrúðuskipti Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum viðskiptin á árinu sem eru að lí • Brekkustíg 38 • 260 Reykjanesbær • Sími: 420-0040 • GSM: 698-5693 •  Bílasprautun • Réttingar • Sprautulökkun • Plastviðgerðir • Mössun • Bílrúðuskipti Ef þú lendir í tjóni þá sér Bílnet um málin ! Hjá Bílneti færð þú bestu viðgerð og þjónustu sem völ er á. Bílnet er gæðavottað verkstæði og með 5 stjörnur frá Sjóvá. Bílnet leggur áherslu á fagleg og snögg vinnubrögð. Við notum einungis vottað hágæða lakk frá Du Pont í samstarfi við Poulsen. Þjónusta í boði hjá Bílnet Bílasprautun - Bílaréttingar - Tjónaskoðun - Plastviðgerðir Bílrúðuskipti - Mössun - Sprautulökkun Bílnet ehf. - 420 0020 - Brekkustíg 38 - 260 Reykjanesbæ - www.bilnet.is

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.