Fréttablaðið - 21.04.2018, Page 36

Fréttablaðið - 21.04.2018, Page 36
Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is Okkur þykir mjög skemmti­legt að kynna okkur mis­munandi karaktera, fabúl­ era um hvernig þeir myndu búa og hvers konar hluti þeir myndu hafa í kringum sig. Með því að vinna út frá ákveðnum punkti, sem maður velur ekki endilega sjálfur, gefst frelsi til þess að skapa eitthvað algerlega nýtt. Uppfinningamenn geta líka verið svo margvíslegir, þeir geta verið að búa til fljúgandi glimmerkisur, rækta hina full­ komnu kartöflu eða finna upp­ skriftina að eilífu lífi. Okkur fannst því uppfinningamaðurinn gott þema til að vinna út frá, því það kveikir strax á ímyndunaraflinu,“ segir Auður Ösp Guðmundsdóttir en hún ásamt Höllu Hannesdóttur stendur fyrir smáhúsasmiðju í Hönnunarsafni Íslands í dag. Í smiðjunni fá þátttakendur að útbúa, smíða og innrétta herbergi Smáhúsasmiðja fyrir uppfinningamenn Halla Hannesdótir og Auður Ösp Guðmunds- dóttir standa fyrir smáhúsa- smiðju í dag klukkan 15 í Hönnunarsafni Íslands. Mynd/ SiGtryGGur Ari í dúkkuhúsaskala. Hægt er að velja mismunandi efni til að vinna úr, timbur, pappa, textíl, leir og fleira. Smiðjurnar eru fyrir alla aldurs­ hópa. „Það er ótrúlega forvitnilegt að sjá hvernig fólk les mismunandi í efni og finnur upp á einhverju sem manni hefði aldrei dottið í hug sjálfum,“ segir Halla. „Í seinustu smiðju fengum við nokkra óvænta gesti í heimsókn – vöruhönnuð, mataruppfinn­ ingakonu, slökunarsérfræðing og fatahönnuð sem öll bjuggu til sín eigin rými. Það var alveg frábært og það myndaðist svo góð stund þar sem allir fengu leyfi til að skapa án nokkurrar pressu um að greina eða rannsaka of mikið. Stundum er bara svo gott að njóta og búa til sögur í góðum hópi,“ bætir hún við. Smiðja Auðar og Höllu sprettur út frá sýningunni Einn á móti átján sem þær sýndu í Spark Design Space á HönnunarMars 2015. Þar sýndu þær dúkkuhús á þremur hæðum og þrjár útgáfur af húsum á einni hæð. „Okkur fannst mjög spennandi að vinna með skala þar sem við skissum mjög mikið báðar í smærri módel þegar við erum að vinna að verkefni í raunstærð. Við ákváðum því að hafa „miniature“ sem útgangspunkt að þessu verkefni og úr urðu dúkkuhúsin,“ útskýrir Auður. „Stærra dúkkuhúsið er hugs­ að sem húsgagn sem getur fylgt manni á lífsleiðinni, ekki einungis sem dúkkuhús heldur einnig sem furðuskápur. Í húsinu myndast ævintýraheimur með þeim hlutum sem þar tínast inn, hvort sem það eru dúkkuhúsgögn eða nýir hlutir í samansafni safnarans. Við vorum með ýmsar fyrir­ myndir varðandi útlitið á húsinu en skemmtilegast fannst okkur þó að keyra um og safna gluggum úr hverfum Reykjavíkur, en við völdum nokkra sem notaðir voru í glugga í dúkkuhúsin.“ Smiðjan hefst klukkan 15 í dag í Hönnunarsafni Íslands. Fleiri smiðjur eru á döfinni í sumar og fleiri spennandi verkefni bíða Auðar og Höllu. „Það er heilmargt í gangi. Við erum til dæmis að byrja á splunku­ nýju verkefni saman sem verður vonandi kynnt í haust.“ Vöruhönnuðirnir Auður Ösp Guð- mundsdóttir og Halla Hannes- dóttir standa fyrir smáhúsasmiðju í Hönnunarsafni Íslands. Smiðjan byggir á eldra verkefni sem þær sýndu á Hönn- unarMars 2015. Ótrúlega fljótlagaður, ódýr og góður svínakjötsréttur sem hentar vel í matinn hvort sem er í miðri viku eða um helgina. Þessi uppskrift getur dugað fyrir 8 manns. 600 g svínalund 2 msk. sojasósa 2 msk. olía 1 tsk. karrí 1 tsk. hunang Salt og nýmalaður pipar Hnetusósa 350 g hnetusmjör 2 msk. chilli-sósa 0,5 dl mango chutney 1 hvítlauksrif, pressað Hreinsið kjötið og skerið í strimla. Blandið saman sojasósu, olíu, karríi og hunangi í plastpoka. Setjið kjötið í blönduna og marinerið í nokkra klukkutíma í ísskáp. Brúnið kjötið á pönnu og bragðbætið með salti og pipar. Hnetusósan er gerð þannig að hnetusmjörið, chutney, chilli­sósan og hvítlaukurinn er sett í pott og hrært vel á meðan sósan þykknar í hitanum. Bætið við örlitlu vatni ef sósan verður of þykk. Það má bera sósuna fram sér með kjötinu eða setja það í hana. Einnig er hægt að setja kjötið á spjót, grilla það úti og hafa sósuna til hliðar. Gott er að hafa hrísgrjón með. Svínakjöt með hnetusósu Svínakjöt í hnetusósu er í miklu uppáhaldi hjá mörgum. Gleðilegt sumar Ég fer á fjöll FERÐAFÉLAG ÍSLANDS www.fi.is 6 KynninGArBLAÐ FÓLK 2 1 . A p r Í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 2 1 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 1 0 4 s _ P 0 6 9 K _ N Y .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 8 4 -2 3 E 4 1 F 8 4 -2 2 A 8 1 F 8 4 -2 1 6 C 1 F 8 4 -2 0 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 0 4 s _ 2 0 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.