Morgunblaðið - 07.12.2017, Side 48
48 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
LITLIR PAKKAR
GLEÐJA MEST
Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is
BAKSVIÐ
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Eflaust hryllir marga við þeirri til-
hugsun að stíga um borð í farþega-
þotu sem enginn er við stjórnvölinn
á. Eða að í stjórnklefa 300-400
manna þotu sitji í besta falli einn
flugmaður. Sú birtingarmynd flug-
véla framtíðarinnar er ekki beinlínis
handan við hornið en kannski ekki
alltof fjarlægur möguleiki. Ástæðan
er sú að Airbus-flugvélasmiðjurnar í
Frakklandi eru með slíkar þotur á
teikniborðinu.
Í stuttu máli sagt hugar Airbus að
þróun sjálfflugsloftfars og tæknibún-
aðar sem leyfa myndi aðeins einum
flugmanni að stjórna þotum í áætl-
unarflugi. Allt stuðlar það að lækkun
rekstrarkostnaðar flugfélaga og
-rekenda, að sögn yfirtæknistjóra
Airbus, Pauls Eremenko.
„Nálgast mætti þetta þannig að
við gætum kannski sagt að hugsan-
lega mætti minnka þörfina fyrir
áhafnir í flugvélum framtíðarinnar,“
sagði Eremenko við Bloomberg-
fréttastofuna. „Við erum að skoða
eins manns stjórnklefann sem mögu-
legan valkost en alls kyns tæknibún-
aðar er þörf til að það geti orðið að
veruleika. Sú skoðun hefur og leitt
okkur inn á brautir flugmannslausra
flugvéla.“
Feta í fótspor bílgreinarinnar
Með þessu má segja að svipaðrar
tilhneigingar sé farið að gæta í flug-
vélaframleiðslu og í bílsmíði þar sem
þróun sjálfekinna bíla er komin á
talsverðan rekspöl. Hafa bíla-
framleiðendur fjárfest verulega og
keypt upp sprotafyrirtæki sem feng-
ist hafa við þróun tækni til sjálfakst-
urs. Flugvélasmiðir eins og Airbus
og Boeing leggja mikið kapp á um
þessar mundir að þróa gervigreind
sem dag nokkurn er ætlað að gera
tölvum kleift að stjórna og fljúga þot-
um án þess að flugmenn sitji við stýr-
ið.
Víst verður það enginn hægðar-
leikur að gera þetta mögulegt því í
áratugi hafa minnst tveir flugmenn
starfað í stjórnklefa áætlunarflug-
véla, stórra sem smárra. Og allt frá
því flugmaður A320 þotu þýska flug-
félagsins Germanwings steypti flug-
vél sinni niður í hamravegg Frönsku
Alpanna í mars 2015 með þeim afleið-
ingum að allir 150 sem um borð voru
fórust hefur vinnureglan verið sú hjá
mörgum flugfélögum að að staðaldri
séu að minnsta kosti tveir áhafnar-
liðar í stjórnklefanum.
Framtíðin í Kína
Fyrrverandi stjórnandi hjá banda-
ríska risafélaginu American Airlines,
Robert Mann, sér breytinguna ekki
beinlínis fyrir sér að svo komnu máli.
„Til viðbótar því að engin flugvél í
flutningageiranum hefur verið skráð
fyrir einn flugmann eða engan er
óljóst hvort farþegar og trygginga-
fyrirtæki þeirra eða flugfélaganna
myndu fallast á eða heimila flug með
slíkum flugvélum.“ „Fólk er tví-
mælalaust hrætt við svona ferða-
máta,“ segir annar ráðgjafi og grein-
andi á sviði flugmála, Shukor Yusof.
„Við sjáum sjálfekna fólksbíla og
sjálfeknar rútur en viðhorfið er allt
annað fyrir eitthvað sem flýgur,“
bætir hann við.
Hjá Airbus er starfandi þróunar-
deild undir yfirskriftinni „Flytjan-
leiki borgarflugs“ þar sem er til
rannsóknar tækni fyrir þyrlur og
flutningadróna sem hver og einn
gæti pantað sér far með. Boeing
sagðist nýlega hafa keypt annars
vegar fyrirtæki sem er að þróa flug-
taxa fyrir tæknifyrirtækið Uber og
hins vegar tvinnflugvélar sem knún-
ar eru bæði bensíni og rafmagni.
Nýverið samdi Airbus svo um að
reisa tækni- og rannsóknarmiðstöð í
borginni Shenzhen í Kína, skammt
frá Hong Kong. „Sú þróunarmiðstöð
mun auðvelda okkur að hraða rann-
sóknum á nýjum loftförum og kort-
leggja flugsamgöngur framtíðar-
innar. Kínverjar munu veita Airbus
tækifæri til að hanna og þróa slíka
tækni,“ sagði fyrrnefndur Ere-
menko, yfirtæknistjóri Airbus. „Al-
mannaflug er að opnast meira og
stækka í Kína. Þar gefst tækifæri til
að taka stórt skref með framtíðina og
flytjanleika í borgarflugi í huga.“
Leysir flugmannaskort
Í höfuðstöðvum Airbus í Toulouse
í Frakklandi er einnig verið að gaum-
gæfa tækni sem ýta mun undir
aukna sjálfvirkni í stjórnklefum far-
þegaflugvéla. Allt með þá framtíðar-
sýn í huga að það gæti hjálpað til við
að leysa fyrirsjáanlegan skort á flug-
mönnum í löndum eins og Kína sem
allt stefnir í að verði stærsti flugvéla-
markaður heims á næstu tveimur
áratugum. Samkvæmt áætlunum
Boeing er reiknað með að þörf verði
fyrir 637.000 til að stýra þotum í far-
þegaflugi næstu tvo áratugina.
„Greinin þarf að finna leiðir til að
þjálfa fleiri flugliða því frá upphafi
farþegaflugs hafa aðeins um 200.000
atvinnuflugmenn verið útskrifaðir,“
bætti Eremenko við. Greiningardeild
svissneska bankans UBS segir að
flugmannslausar farþegaþotur gætu
sparað flugstarfseminni 27 milljarða
punda á ári, slíkur er kostnaður far-
þegaflugfélaga af flugmönnum. Það
myndi svo skila sér í lækkuðu flug-
miðaverði.
Hugveita Airbus, A3, í Kísildal í
Kaliforníu, hefur unnið að þróun
Vahana-flugtaxans sem er það vel á
veg kominn að fyrstu flugtilraunir
með frumgerð hans hefjast fyrir árs-
lok. Þar er um að ræða rafdrifið flug-
mannslaust loftfar sem menn panta
sér eins og um leigubíl væri að ræða
en verða lausir við umferðarteppur.
Tekur fyrsta útgáfa Vahana aðeins
einn farþega. Að sögn Airbus gæti
flugfar þetta stytt ferðatíma þéttbýl-
inga stórum sem búa í allt að 80 kíló-
metra fjarlægð frá vinnustað sínum.
Margt að yfirstíga
Áður en sjálfflognar farþegaþotur
verða að veruleika þurfa þotusmiðir
ekki aðeins að sigrast á tæknilega
þættinum. Samtök flugmanna þurfa
þeir að vinna á sitt band og ekki síst
yfirvöld flugmála og loftferðaeftirlits
og tryggingafélög. Á þessu stigi sé
ómögulegt að segja til um hvernig
jarðvegurinn fyrir sjálfflognar þotur
er. Þótt þegar séu fyrir hendi
ómönnuð loftför í formi dróna af öll-
um stærðum sem prófaðir hafa verið
til vöruflutninga þá ríkja efasemdir
um áhuga almennings á að ferðast
með flugmannlausum flugvélum,
sem hingað til hefur verið krafist að
minnsta kosti tveggja flugmanna í.
Loftför af því tagi þykja ekki hljóma
mjög traustvekjandi.
Hugmyndin um flugvél sem svífur
um háloftin með engan flugmann
fram í þykir til þess fallin að skjóta
fólki skelk í bringu. Ekki síst þegar
höfð eru í huga óvenjuleg flugslys
síðustu ár, eða frá því þota frá Malas-
íu hvarf sporlaust – og hrapaði að því
er ætlað er – á Indlandshafi, að með-
töldum fyrrnefndum örlögum Germ-
anwings-þotunnar árið eftir.
Vakni menn upp af þeirri martröð
að þeir séu farþegar í flugmanns-
lausri þotu, þá gæti það verið veru-
leikinn innan örfárra ára, hvað sem
raular eða tautar. Allavega þykir
Airbus hugmyndin raunhæf og vinn-
ur nú að því að gera þennan óvenju-
lega ferðamáta að veruleika.
Einn eða enginn flugmaður
Flugmannslausar þotur gætu orðið veruleikinn innan örfárra ára Airbus þykir hugmyndin
raunhæf og er með slíkar flugvélar á teikniborðinu Stefnir í skort á flugmönnum á næstu árum
Tölvuteikning/Airbus
Flugið Airbus hefur fyrir árslok flugprófanir á Vahana-flugtaxanum sem flýgur sjálfur fólki á milli staða án aðstoðar flugmanns.
Ljósmynd/Airbus
Framtíðin Innan nokkurra ára er mögulegt að tölvur og nýtækni leysi flug-
menn af í stjórnklefa farþegaflugvéla, líkt og er að gerast með bílana.