Morgunblaðið - 25.01.2018, Page 1
F I M M T U D A G U R 2 5. J A N Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 21. tölublað 106. árgangur
SALAN Á ARION
BANKA ER TIL
UMRÆÐU
ELDGOSIÐ
Í HEIMAEY Í
FERSKU MINNI
YFIR 30 VERK
VERÐA HEIMS-
FRUMFLUTT
23. JANÚAR 1973 32 MYRKIR MÚSÍKDAGAR 66VIÐSKIPTAMOGGINN
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Verð frá:
326.900
160x200 með höfðagafli
Það var drungalegt um að litast í Reynisfjöru þegar ljósmynd-
ara Morgunblaðsins bar þar að garði. Að baki skýjahulu glitti
þó í bjartan himin, en daginn er nú greinilega farið að lengja.
Í dag er útlit fyrir að kalt verði í veðri og víða verður til-
tölulega bjart. Á morgun hlýnar svo víða, einkum sunn-
anlands, og bætir þar einnig í úrkomu.
Frostviðri og heiðríkja víðast hvar á landinu í dag
Morgunblaðið/RAX
Mun fleiri dvöldu í Kvenna-
athvarfinu í fyrra en gert hafa síð-
astliðin tuttugu ár, alls 149 konur
og 103 börn. Samtals komu 406
konur í viðtöl og/eða dvöl á árinu
og var meðalaldur þeirra 37 ár.
Rúmlega helmingur þeirra var af
erlendum uppruna eða um 54%.
Fleiri konur sem dvöldu í
Kvennaathvarfinu á árinu fundu
nýtt húsnæði til að dvelja í en á síð-
ustu árum, en alls fundu um 28%
þeirra nýjan samastað. Í samræmi
við þetta leituðu færri konur aftur
heim til ofbeldismanns, aðeins um
16%, samanborið við um 20-40% á
síðastliðnum árum.
Í flestum tilvikum voru ofbeld-
ismenn eiginmenn þeirra kvenna
sem dvöldu í athvarfinu á síðasta
ári, í 21% tilvika sambýlismenn og í
9% tilvika kærastar. »4
Ekki fleiri í Kvenna-
athvarfinu í rúm-
lega tuttugu ár
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Öskuský vegna sólarhrings langs
sprengigoss í Öræfajökli gæti lam-
að flugumferð í öllum flughæðum
og hindrað flugtök og lendingar víð-
ast hvar í Evrópu og næði til meg-
inlandsins á 24 klukkustundum.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
rannsóknarhóps við Háskóla Ís-
lands, en hópurinn hefur rannsakað
áhrif öskugosa á Íslandi á flug í
Evrópu. Talið er að slíkt gos gæti
lamað alla flugumferð milli landa í
tvo til fimm daga. Tvær sviðsmynd-
ir um áhrif stórra eldgosa hér á
landi hafa verið settar upp í sam-
ræmi við öskudreifingarlíkan og lík-
leg atburðarás verið fundin út.
Sprengigos í Öræfajökli er upphafið
að annarri sviðsmyndinni og eldgos
í Eyjafjallajökli er kveikjan að
hinni.
Að því er fram kemur í niðurstöð-
um vísindamannanna gæti sprengi-
gos í Öræfajökli einnig haft áhrif á
siglingar, en við síðasta sprengigos
í jöklinum árið 1362 sendi eldfjallið
frá sér mikla gjósku og þykkt vik-
urlag myndaðist á yfirborði sjávar.
Eldgos hefði víðtæk
áhrif um alla álfuna
Vísindamenn settu á svið gos í Öræfa- og Eyjafjallajökli
MGæti lamað alla flugumferð »24
Morgunblaðið/Júlíus
Eldgos Eyjafjallajökull gaus árið
2010 og raskaði flugi í langan tíma.
Íslenski hreindýrastofninn nálgast
nú 7.000 dýr og hefur sennilega
aldrei verið sterkari, að mati Skarp-
héðins Þórissonar, líffræðings hjá
Náttúrustofu Austurlands. Dýrin
eru jafnframt á stærra svæði og
fjölgar nokkuð á Mýrum og í Suð-
ursveit. Í ár verður, skv. ákvörðun
umhverfisráðherra sem kynnt var í
gær, heimilt að veiða 1.450 hrein-
dýr á slóðum þeirra á Austurlandi;
1.061 kú og 389 tarfa. »4
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hreindýr Á beit austur í Berufirði.
Stofn hreindýranna
aldrei verið sterkari