Morgunblaðið - 25.01.2018, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
VIÐTAL
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Stórt eldgos í Öræfajökli er talið
geta lamað flugumferð í Evrópu
dögum saman. Þetta kemur fram í
niðurstöðum rannsóknahóps við Há-
skóla Íslands (HÍ). Uta Reichardt,
doktorsnemi í umhverfis- og auð-
lindafræði, er í hópnum. Hún og
samstarfsfólk hennar hafa rann-
sakað áhrif öskugosa á Íslandi á flug
í Evrópu.
Eldgosið í Eyjafjallajökli í apríl
2010 var ekki sérstaklega stórt mið-
að við mörg önnur eldgos hér á landi.
Engu að síður olli það miklum usla.
Meira en 100.000 flugferðir voru
felldar niður, milljónir flugfarþega
urðu strandaglópar og fjárhagslegt
tap á heimsvísu vegna gossins var
metið um fimm milljarðar Banda-
ríkjadala eða 515 milljarðar ÍKR.
Líkön fyrir stærri eldgos
Uta og samstarfsfólk hennar settu
upp tvær sviðsmyndir um áhrif
stærri eldgosa en urðu í Eyjafjalla-
jökli 2010. Meðfylgjandi skýringar-
myndir sýna þróunina næstu fimm
daga eftir að eldgos hefst. Stuðst var
við öskudreifingarlíkanið NAME frá
eldfjallastöð veðurstofunnar í Lund-
únum (VAAC). Tekið var mið af
veðrinu eins og það var þegar gaus í
apríl 2010. Veðurskilyrðin þá voru
einkar óhagstæð því askan barst inn
á fjölfarnar flugleiðir yfir megin-
landi Evrópu.
Önnur sviðsmyndin gerði ráð fyrir
eldgosi í Eyjafjallajökli. Öskumynd-
un var í meðallagi, svipað og 2010,
nema þetta gos var látið standa í 24
vikur. Það er fjórum sinnum lengur
en eldgosið í apríl 2010. Uta benti á
að þegar gaus næstsíðast í Eyja-
fjallajökli hófst gosið í desember
1821 og stóð fram í janúar 1823 eða í
nær 14 mánuði. Þá er þess skemmst
að minnast að eldgosið sem hófst síð-
sumars 2014 í Holuhrauni stóð í um
sex mánuði.
Sviðsmyndin gerir ekki ráð fyrir
stöðugu gosi allan þennan tíma held-
ur því að Eyjafjallajökull spúi frá sér
ösku á nokkurra daga fresti, líkt og
hann gerði 2010. Askan var mest
neðarlega í lofthjúpnum og truflaði
flug í lítilli hæð, lendingar og flug-
tök. Askan mun því trufla flug-
umferð nokkra daga í senn yfir allt
tímabilið sem eldgosið stendur.
Þetta mun hafa veruleg áhrif á flug-
umferð, samkvæmt rannsókninni.
Hin sviðsmyndin tekur mið af sól-
arhrings löngu sprengigosi í Öræfa-
jökli líku því sem varð árið 1362. Svo
mikið öskugos við sömu veðurað-
stæður og ríktu í apríl 2010 myndi
hafa gríðarleg áhrif á flugumferð í
Evrópu. Það tæki öskuskýið 24
klukkustundir að berast til megin-
landsins. Gos af þessu tagi myndi
hafa áhrif á flug í öllum flughæðum
og takmarka eða hindra öll flugtök
og lendingar víðast hvar í Evrópu
auk þess að koma í veg fyrir flug
milli landa í 2-5 daga. Talsmaður
EUROCONTROL (stofnunar um
öryggi flugsamgangna) sagði að þótt
flugumferðarstjórnir Evrópulanda
myndu ekki loka flugsvæðum form-
lega vegna öskunnar myndu nær
engar flugvélar taka á loft við þessar
aðstæður. Áhrifin yrðu því gríðar-
lega mikil og dýrkeypt. Vel má búast
við að slíkt eldgos í Öræfajökli gæti
jafnvel staðið í 2-3 vikur.
Rannsóknin beindist að áhrifum
eldfjallaösku á flug í Evrópu en Uta
sagði að sviðsmyndir sýndi að áhrifin
yrðu mun víðtækari. Eldfjallaaska
frá Öræfajökli gæti þannig teygt sig
nær þvert yfir Norður-Atlantshaf.
Stórt eldgos í Öræfajökli myndi
ekki bara trufla flug heldur gæti það
líka haft áhrif á siglingar. Uta sagði
að eldfjallið hefði sent frá sér mikið
af gjósku 1362 sem myndaði þykkt
vikurlag á yfirborði sjávar. Vikur-
lagið gæti verið 0,5-1 metra þykkt og
hindrað siglingar og veiðar.
Samvinna hagsmunaaðila
Uta hefur skoðað hvernig evr-
ópski flugiðnaðurinn og þeir sem
eiga hagsmuna að gæta í flugrekstri
hafa þróað viðbragðsáætlanir vegna
eldfjallaösku frá því að eldgosinu í
Eyjafjallajökli 2010 lauk. Þetta er
hluti af evrópska ENHANCE-
verkefninu sem fjallar um viðbrögð
við náttúruhamförum. Uta sagði að
innan þess væru t.d. einnig rann-
sökuð áhrif skógarelda í Portúgal og
flóða í Hollandi. Sérstaða íslensku
eldgosanna er að áhrif þeirra geta
náð um alla álfuna og víðar. Verk-
efnið hefur einnig verið styrkt af
NORDRESS-setrinu við HÍ og af
ISAVIA rannsóknarsjóði HÍ.
Hagsmunaaðilum var boðið að
taka þátt í vinnustofu þar sem fyrr-
nefndar sviðsmyndir voru lagðar
fram. Rannsóknahópurinn við HÍ
skipulagði vinnustofuna og þátttak-
endur komu frá EUROCONTROL,
IATA (Alþjóðasambandi flugfélaga),
Icelandair, Samgöngustofu, Isavia,
Veðurstofu Íslands, innanríkisráðu-
neytinu og þotuhreyflaframleiðand-
anum Rolls Royce.
Fram kom í vinnustofunni að
reglum um flug þegar aska er í lofti
hefur verið breytt víða í Evrópu frá
2010. Áður var leyft að fljúga á
svæðum þar sem öskuspá var undir
2.000 μg/m3 (míkrógrömm á rúm-
metra) en Uta segir að sérfræðingar
telji að flestar flugvélar í dag ráði við
að fljúga þótt þéttleiki ösku sé allt að
4.000 μg/m3 Hún ræddi þetta við
Isavia og komst að því að jafnvel
þótt flugfélög hefðu lagt fram
áhættumat (Safety Risk Assessment
– SRA) sem heimili þeim að fljúga
þar sem spáð er þéttleika ösku allt
að 4.000 μg/m3 kjósi þau frekar að
fljúga framhjá öskuskýinu. Sé þétt-
leikinn meiri en 4.000 μg/m3 telja
flestir flugrekendur að of mikil
hætta sé á skemmdum á þotuhreyfl-
um. Uta segir þetta undirstrika að
gera þurfi meiri rannsóknir á áhrif-
um ösku á þotuhreyfla og undirbúa
aðrar flutningsleiðir þegar ekki er
lengur hægt að fljúga framhjá ösku-
skýinu.
Hættumat vegna ösku og ákvörð-
un um hvort flug skuli vera leyft hef-
ur færst frá flugmálayfirvöldum
hvers lands til flugrekenda. Flug-
félögin axla nú ábyrgðina á því að
ákveða hvort óhætt sé að fljúga
(SRA). Uta telur að ekki þurfi að ótt-
Gæti lamað alla flugumferð
Vísindamenn við Háskóla Íslands hafa sett upp sviðsmyndir um áhrif stórra eldgosa hér á flug-
umferð í Evrópu Tekið var mið af veðurfari eins og ríkti þegar Eyjafjallajökull gaus vorið 2010
Morgunblaðið/RAX
Eyjafjallajökull Öskustrókurinn hindraði flug og milljónir flugfarþega urðu strandaglópar vegna eldgossins 2010.
Morgunblaðið/RAX
Doktorsnemi Uta Reichardt útskýrði hvernig öskuskýið frá Öræfajökli myndi lama flugumferð í Evrópu og víðar.
Nýjar vörur frá geoSilica
Kísill Íslenskt kísilsteinefni
Recover Fyrir vöðva og taugar
Renew Fyrir húð, hár og neglur
Repair Fyrir bein og liði
Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum,
Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica.
Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf