Morgunblaðið - 25.01.2018, Side 25
ast að flugfélögin verði of djörf í
áhættumatinu, því flugmálayfirvöld
á hverjum stað þurfi að samþykkja
áhættustjórnunina. Flugfélögin taki
líka afleiðingunum ef vélarnar
skemmast við að fljúga í of mikilli
ösku.
Uta segir að framleiðendur þotu-
hreyfla hafi verið tregir til að gefa út
hvort og þá hvað hreyflar þeirra þoli
mikla ösku. Tregða þeirra sé skilj-
anleg því slíkar yfirlýsingar myndu
augljóslega skapa þeim ábyrgð og
rannsóknir hafi ekki verið nægjan-
legar til að hægt sé að vita svörin
með vissu. Hins vegar sé vitað að
eldfjallaaska geti valdið tjóni á þotu-
hreyflum án þess að hreyflarnir
stöðvist strax. Tjónið geti orðið flug-
félögunum dýrkeypt því taka þurfi
flugvélarnar úr umferð á meðan gert
er við hreyflana. Ljóst þykir að þessi
reglubreyting muni auka sveigjan-
leika og gera fluggeiranum kleift að
ráða við stærri viðburði en eldgosið í
Eyjafjallajökli 2010 var.
Uta hafði nýlega samband við
EUROCONTROL og fékk upplýs-
ingar um að flest ríki Evrópu hefðu
ákveðið að halda loftrými sínu opnu,
hvað sem líður þéttleika ösku í and-
rúmsloftinu. Ábyrgðin er því lögð á
herðar flugfélaganna að meta hvort
óhætt sé að fljúga. Nokkur ríki hafa
þó ekki stigið þetta skref, þeirra á
meðal Þýskaland og Sviss. Þau ætla
ekki að leyfa flug þar sem spáður
þéttleiki ösku í andrúmsloftinu er yf-
ir 4.000 μg/m3. Flugbannið mun gilda
um alla flugumferð, jafnt yfirflug
sem annað flug. Uta vann að rann-
sóknum í eldfjallalandinu Japan í
fyrravetur. Hún segir að þar gildi al-
mennt sú regla að flugbann sé í
næsta nágrenni gjósandi eldfjalls.
Svo sé það undir hverjum flugrek-
anda komið hvort hann ákveði að
fljúga. Japanir gefa ekki út öskukort
með mismunandi styrkleika ösku í
andrúmslofti heldur einungis hvort
aska er til staðar eða ekki líkt og
gert var í Evrópu til 2010.
Uta er langt komin með doktors-
verkefnið og hyggst verja ritgerðina
í maí næstkomandi. Leiðbeinendur
hennar eru Guðmundur Freyr Úlf-
arsson, prófessor og deildarforseti
Umhverfis- og byggingaverk-
fræðideildar Háskóla Íslands, Guð-
rún Pétursdóttir, forstöðumaður
Stofnunar Sæmundar fróða um
sjálfbæra þróun, og Jeroen Aerts,
prófessor og forstöðumaður um-
hverfisrannsóknarstofnunar Vrije
háskóla í Hollandi.
Eyjafjallajökull – sviðsmyndir öskudreifingar (FL000-FL200) Öræfajökull – sviðsmyndir öskudreifingar (FL000-FL200)
Öskuþéttni samkvæmt líkani frá jörðu upp í 20.000 fet
Sex stunda meðaltal
Öskuþéttni samkvæmt líkani frá jörðu upp í 20.000 fet
Sex stunda meðaltal Þéttleiki ösku í andrúmslofti μg/m3Þéttleiki ösku í andrúmslofti μg/m3
14. apríl
Gildir 14.4
2010 kl. 19:00
PRUFA
14. apríl
Gildir 14.4
2010 kl. 19:00
PRUFA
16. apríl
Gildir 16.4
2010 kl. 19:00
PRUFA
16. apríl
Gildir 16.4
2010 kl. 19:00
PRUFA
18. apríl
Gildir 18.4
2010 kl. 19:00
PRUFA
18. apríl
Gildir 18.4
2010 kl. 19:00
PRUFA
15. apríl
Gildir 15.4
2010 kl. 19:00
PRUFA
15. apríl
Gildir 15.4
2010 kl. 19:00
PRUFA
17. apríl
Gildir 17.4
2010 kl. 19:00
PRUFA
17. apríl
Gildir 17.4
2010 kl. 19:00
PRUFA
19. apríl
Gildir 19.4
2010 kl. 13:00
PRUFA
19. apríl
Gildir 19.4
2010 kl. 13:00
PRUFA
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
SIGNATURE
RAY-BAN LOGO
STAMP OF AUTHENTICITY
UV PROTECTION
UMBOÐSAÐILI RAY-BAN Á ÍSLANDI
RAY-BAN
með styrkleika
fást bæði ólituð eða sem sólgler