Morgunblaðið - 25.01.2018, Page 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
Vél: Duramax, V-8, 6,6 lítra,
sjálfskiptur með Allison 5 gíra
skiptingu.
Millikassar: 3 stykki NP203
(1:2) og einn milligír NP203.
Allir millikassar með mismun-
ardrifi.
Hásingar og fjöðrun: 4 stk.
Daimler Chrysler Unimog, Portal,
með niðurgírun 1:2.
Með úrhleypibúnaði og loftlæs-
ingum í öllum hásingum.
Loftpúðafjöðrun með 25 cm slag-
lengd.
Dekk: 8 stykki 54’ Mickey
Thompson hjólbarðar á 20’ felg-
um „beadlook“.
Annað: Heildarlengd um 8,5
metrar, breidd 2,55 metrar, þyngd
8.600 kg.
400 lítra olíutankar.
Yfirbygging á loftpúðum,
framsæti á loftpúðum.
Loftúrhleypibúnaður dekkja,
stýrt gegnum app í síma.
Tölvustýring (Arduino) á milli-
kössum, (4 stk.) og mismun-
ardrifum (7 stk.).
11 manna með 8 „Captein“ eða
flugstjórastólum og þriggja
sæta bekk aftast.
Upphækkaður toppur.
24’ sjónvarp – (snjalltæki).
USB-tengill við hvert sæti.
Þrjár opnanlegar hurðir á
hvorri hlið, þar af ein með full-
gilda hópferðabíls opnun.
Burðargeta – langt umfram
það sem hægt er að koma í bíl-
inn.
Tæknilýsing
TRUKKURINN CHERVOLET KODIAK/MAN
Samsetning Yfirbyggingin var sett saman úr þremur bílum og allt látið passa.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Félagarnir Friðrik Stefán Hall-
dórsson og Guðni Ingimarsson byrj-
uðu að dunda sér við að breyta og
smíða jeppa í menntaskóla og um
þessar mundir fagna þeir nýjasta
verkinu, átta hjóla fjallatrukk,
Chervolet Kodiak/MAN, sem þeir
settu saman frá grunni. „Það hefur
lengi legið í loftinu að brjóta ísinn og
búa til átta hjóla bíl,“ segir Guðni.
„Ég veit ekki til þess að svona tor-
færubíll hafi verið búinn til áður.“
Unimog-hásingar úr þýskum
Dingó-hertrukk ýttu þeim af stað.
„Við vorum svo heppnir að Benz
þurfti að innkalla þessa trukka svo
við fengum nýjar og fínar hásingar,“
segir Friðrik. Þeir vissu að yfirbygg-
ingar Chevrolet Kodiak og Chevr-
olet Express pössuðu vel saman og
því voru slíkir bílar keyptir og unnið
að samsetningunni út frá því. Tölu-
verðan tíma tók að finna réttu hlut-
ina en allt tókst það að lokum.
„Econolinerinn var búinn öllum
þægindum og innviðirnir úr honum
eru grunnurinn að innréttingunum,“
segir Friðrik. Þeir þurftu að bæta
þriðja bílnum við og söguðu hurð-
arfals úr honum og settu um þriggja
metra bút á milli hinna tveggja bíl-
hlutanna. „Þetta var nauðsynlegt til
þess að ná réttri lengd og hafa pláss
fyrir afturdekkin,“ heldur hann
áfram.
Tímamót fyrir tveimur árum
Í mars 2016 stóðu þeir frammi
fyrir því að hætta eða ljúka verkinu,
sem þeir höfðu unnið þrotlaust að í
tvö ár en byrjað á 2012. „Þá vorum
við búnir að kaupa bílinn í Banda-
ríkjunum og annaðhvort var að
byrja á því að rífa hann niður eða
hætta við,“ segir Friðrik.
Mikil nákvæmnisvinna liggur að
baki, allt teiknað í tölvu og öll mál
upp á millimetra. Sérstakt forrit var
hannað til að stjórna millikössum og
mismunadrifum og lofti í og úr
dekkjum er stjórnað í gegnum síma.
Á Hofsjökli Guðni Ingimarsson við bílinn, sem á engan sinn líka. Glitur sá um sprautunina.
Lúxus Vel fer um farþega og bílstjóra í torfærutrukknum.
Grindin Hún fékkst úr mjólkurbíl.
Útlit Taka þurfti mót af framköntunum áður en verkið var fullkomnað.
Yfir 5.000 vinnustund-
ir í sérstakan fjallabíl
Átta hjóla torfærutrukkur tilbúinn eftir þrotlausa vinnu
Hásingar Dingó-hertrukkur.
Sem nýr Chevrolet Kodiak 2006.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Afturendinn Vandaður bíll.
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is