Morgunblaðið - 16.02.2018, Side 13

Morgunblaðið - 16.02.2018, Side 13
skilgreinir sig sem tónlistarmann með mikinn andlegan áhuga. Hon- um hefur tekist að sameina það með því að semja og gefa út slökunar- tónlist. Friðrik er fjölhæfur í tónlist- inni og hefur spil- að lengst með Mezzoforte og gerir enn. „Ég var í Bretlandi í 20 ár og tók mér frí frá Mezzoforte til þess að spila í leikhúsum, sjónvarpsþátt- unum, X factor, Britain’s got talent og í söngleikjum Andrews Lloyds Webbers. Samstarfið við Andrew skilaði söngleiknum Jesus Christ Superstar í Hörpuna. Ég er tónlist- arstjóri í þeim söngleik sem sýndur hefur verið á páskum sl. tvö ár og verður sýndur nú um páskana,“ seg- ir Friðrik og bætir við að hann hafi ánægju af því að spila gospel með Óskari Einarssyni í Fíladelfíu og Lindakirku. Hann segir að gospelið sé heillandi þar sem það hafi bæði tilgang og boðskap. Friðriki þykir einnig sérlega vænt um að spila á jólatónleikum Siggu Beinteins í Hörpu.“ Einn af hápunktunum á ferli Friðriks í Bretlandi var þegar hann spilaði með Kate Bush. „Það var óraunverulegt frum- sýningarkvöldið að horfa fram í sal- inn og sjá átrúnaðargoðin hvert sem litið var. Í salnum sátu meðal ann- ars Paul McCartney, Jimmy Page, Elton John og David Gilmore. Þetta var meira en mig hafði nokkurn tím- ann dreymt um. Það er gott að eiga þessa stund í minningabankanum og sjá árangurinn af öllum æfing- unum. En maður þarf að vera hálf- gerður nörd til þess að ná góðum árangri.“ Með sitt eigið smáforrit Friðrik segist sjaldan setjast niður til að semja tónlist. „Ég fæ hugmyndir hvar og hvenær sem er og syng þær inn á símann minn. Það er frábært að búa á Seltjarnarnesi þar sem sjórinn og Gróttan veita mér innblástur,“ segir Friðrik og bætir við að tæknin í dag geri honum kleift að taka upp efni og koma því á vefinn á stuttum tíma. „Tekjumódelið er erfiðara en það var en það er auðveldara að koma tónlist á framfæri í gegnum Youtube, Spotify og Applemusic. Ég er að laga mig að breyttum veru- leika og gefa út slökunartónlistina á netinu,“ segir Friðrik, sem er með sitt eigið smáforrit, www.ichillmus- ic.com. Spurður um góð ráð til handa ungum tónlistarmönnum sem lang- ar að sigra heiminn segir Friðrik að þeir eigi að fylgja hjartanu og hafa þor til þess að láta draumana ræt- ast. Töffari Samsett mynd sem Friðrik ætlaði sér að nota á sólóplötu sem ekki varð úr. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2018 Z-brautir & gluggatjöld Mælum, sérsmíðum og setjum upp Úrval - gæði - þjónusta Nýtt frá PT Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15 Draumurinn um að eignast tveggja manna Smart Fortwo varð að engu þegar ljóst varð að fjölga myndi um einn í kotinu í sumar. Reyndar lang- aði mig aldrei í þann forljóta bíl en ég er handviss um að mér hefði samt tekist að enda á honum. Krakka vil ég aftur á móti svo sann- arlega og voru því tíðindin afskap- lega gleðileg. Fljótlega eftir að óléttan varð ljós áttaði ég mig á því að það er ekkert sem hefur kennt mér að „verða pabbi“ fyrir utan að herma bara eft- ir mömmu og pabba sem ólu okkur systkinin upp með glæsibrag. En tímarnir eru núna aðrir, viðmiðin og tæknin, og því sennilegt að uppeldi af gamla skólanum skilaði afkvæm- inu inn í fyrsta bekk líkara Guðna Ágústssyni í fasi en bekkjarsystkinum sínum. Eðlilega fór ég þess vegna að velta næstu skrefum und- irbúningsins fyrir mér og af nógu er að taka: Á ég að fletta uppeldisbókum eða eru þar úreld fræði? Er mark tak- andi á hafsjó sjálftitlaðra uppeldisfræðinga netsins eða er ef til vill best að læra af mistök- um annarra og fylgjast með for- eldrum óþægra barna sitja undir skömmum sérfræðings sem er fenginn inn á heimilið til að koma á eðlilegra heim- ilslífi? Slíkt er til og reyndar lét ég plata mig til að horfa á einn slíkan þátt. Það sem maður gerir ekki í nafni undirbúningsins! Þátturinn var reyndar ekki sá versti þrátt fyr- ir að fræðslugildi hans væri afar takmarkað. Þú ferð ekki á hunda- námskeið til þess að sjá gamlan hund læra að sitja. Hvað sem öllum uppeldispæl- ingum líður hefur margt komið á daginn eftir því sem liðið hef- ur á óléttuna. Með- al annars hvað við unnustan getum stundum verið samhent í því sem við tökum okkur fyrir hendur. Fólk klappar okkur um kvið- inn og spyr glað- lega hvort okkar sé gengið lengra. »Og er því líklegt aðuppeldi gamla skólans skilaði afkvæminu inn í fyrsta bekk líkari Guðna Ágústssyni í fasi en bekkj- arsystkinum sínum. Heimur Andra Steins Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Einbeittur 18 ára farinn að starfa sem tón- listarmaður. Ljósmynd/Friðþjófur Helgason Íhugun Friðrik semur slökunartónlist og sameinar þannig áhugamál sín. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gítarleikari Friðrik spilar á gítarinn á 40 ára afmæli Mezzoforte.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.