Morgunblaðið - 17.02.2018, Síða 1
L A U G A R D A G U R 1 7. F E B R Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 41. tölublað 106. árgangur
18.995
NUTRIBULLET PRO
BLANDARI
JMLV2414
#égætla að
borða hollt
NÝTTHÁLSMIXTÚRURÚR HVÖNNMEÐ ENGIFEROG LAKKRÍS
Gagnast gegn hósta, kvefi
og þurrki í hálsi.
SÆKTU RADDSTYRK Í
ÍSLENSKANÁTTÚRU
LÍKAMSRÆKT
OG SAMVERA Á
ÖLLUM ALDRI FERÐIN TIL VALHALLAR
STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR 54JÁKVÆÐUR ORKUBOLTI 12
AFP
Kosningar Robert Mueller stýrir
rannsókn á meintum afskiptum.
Robert Mueller, sérstakur saksókn-
ari í rannsókn Bandaríkjanna á
meintum afskiptum Rússa af banda-
rísku forsetaskosningunum 2016,
ákærði í gær þrettán Rússa sem
grunaðir eru um að hafa rekið leyni-
lega kosningabaráttu til að hafa áhrif
á niðurstöður kosninganna.
Í ákærunni kemur fram að náinn
bandamaður Vladimírs Pútíns Rúss-
landsforseta hafi stýrt hinni leyni-
legu kosningabaráttu. Hún hafi upp
úr miðju ári 2016 miðað að því að afla
Donald Trump Bandaríkjaforseta
atkvæða og grafa undan Hillary
Clinton, keppinaut hans. Rússnesk
stjórnvöld vísa ásökununum á bug.
Ákærði 13
Rússa í gær
Mál Sunnu Elviru
» Hefur legið lömuð eftir slys
á sjúkrahúsi í Malaga.
» Verið í farbanni vegna rann-
sóknar á fíkniefnasmygli.
» Eiginmaðurinn í gæslu-
varðhaldi á Íslandi.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Lögregla hér á landi mun taka yfir
rannsókn á máli Sunnu Elviru Þor-
kelsdóttur, en samningar þess efnis
voru undirritaðir í gær. Í kjölfarið
mun farbanni Sunnu í Malaga á
Spáni verða aflétt og ráðgert er að
hún verði flutt heim til Íslands
snemma í næstu viku. Það er þó með
fyrirvara um að búið verði að ljúka
við öll helstu formsatriði. Þetta hefur
Morgunblaðið eftir áreiðanlegum
heimildum.
Sunna Elvira hefur legið lömuð á
háskólasjúkrahúsi í Malaga undan-
farinn mánuð. Hún hefur lýst að-
stæðum sínum á spítalanum en að
hennar sögn er læknisþjónustan af
skornum skammti. Sunna er þrí-
hryggbrotin, með þrjú brotin rifbein
auk annarra áverka. Í kjölfar hand-
töku eiginmanns Sunnu, Sigurðar
Kristinssonar, var Sunna sett í far-
bann og hefur því verið föst á spít-
alanum. Sigurður er grunaður um
aðild að fíkniefnamáli. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hefur
verið talið að Sunna gæti veitt upp-
lýsingar um mál Sigurðar.
Sunna leyst úr farbanni
Sunna Elvira Þorkelsdóttir væntanleg heim til Íslands snemma í næstu viku
Samið um að íslenska lögreglan taki yfir rannsókn á máli hennar á Spáni
MSunna kemur heim »6
Morgunblaðið/Ómar
Eldri borgarar Greiðslur frá Trygg-
ingastofnun duga mörgum skammt.
Magnús Heimir Jónasson
Guðni Einarsson
Um 1.700 til 2.000 eldri borgarar
hafa ekkert annað til framfærslu en
lífeyri frá Tryggingastofnun.
Fulltrúar Félags eldri borgara
(FEB) hafa óskað eftir því að skip-
aður verði starfshópur til að laga
kjör þeirra eldri borgara sem eru
verst settir, en félagið mun funda
með Katrínu Jakobsdóttur forsætis-
ráðherra 26. febrúar. Gísli Jafetsson,
framkvæmdastjóri FEB, vitnar í orð
forsætisráðherrans frá því í septem-
ber í fyrra. „Fátækt fólk á ekki að
bíða eftir réttlætinu,“ segir Gísli.
Ellert B. Schram, formaður FEB,
ritaði einnig Katrínu bréf í janúar
þar sem hann segir að kjör eldri
borgara séu langt frá því að teljast
viðunandi. Margrét Sölvadóttir, 73
ára ellilífeyrisþegi, fer yfir stöðu sína
í Morgunblaðinu en hún fær um 230
þús. kr. á mánuði til framfærslu og
neyðist því til að búa heima hjá syni
sínum eftir 60 ár á vinnumarkaði.
„Alltaf var maður að vinna og maður
hefur unnið alla tíð. Mér finnst að
ekki sé borin nokkur virðing fyrir
þessari kynslóð,“ segir Margrét, sem
fær um 175 þús. kr. frá Trygginga-
stofnun eftir skatt og 50 þús. kr. frá
lífeyrissjóði sínum. »4
Eldri borgarar bíða réttlætis
Félag eldri borgara fundar með forsætisráðherra 73 ára
ellilífeyrisþegi fær um 230 þús. kr. á mánuði til framfærslu
Gærdaginn nýttu margir ferðamenn í skoðunar-
ferðir innan borgar og utan. Veðrið og skyggnið
var með eindæmum gott eins og ferðalangar á
útsýnispöllum Perlunnar fengu að kynnast enda
sjónarhornið á borgina ólýsanlegt frá hákolli
Öskjuhlíðarinnar. Í þremur tankanna fyrir neð-
an fólkið kraumaði hins vegar 80 gráðu heitt
vatnið og beið þess að þjóna borgarbúum með
hlýju sinni í köldu landi.
Einstakt sjónarhorn ofan á sjóðheitu vatni borgarbúa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bjartur dagur í höfuðborginni
Jarðfræðing-
urinn og at-
hafnamaðurinn
Eldur Ólafsson
er 32 ára fram-
kvæmdastjóri
Alopex Gold sem
keypt hefur gull-
námuleyfi á
Grænlandi.
Í sunnudags-
blaði Morgunblaðsins talar hann
um æskuárin í sveitinni, árin í Kína
og aðdragandann að gullævintýr-
inu á Grænlandi. Námugröftur
hefst þar árið 2019 eftir langan
undirbúning. »SunnudagsMogginn
Gullævintýri
Elds á Grænlandi
Eldur Ólafsson