Morgunblaðið - 17.02.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
2024 SLT
L iðLé t t ingur
Verð kr
2.790.000
Verð með vsk. 3.459.600
Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Borgaryfirvöld hafa komið sérupp miklum umferðarvanda
og ætla nú sem kunnugt er að leysa
hann með risavöxnu almennings-
samgönguverkefni, borgarlínu.
Með þessari ógnardýru fram-kvæmd segjast borgaryfir-
völd ætla að fá fólk til að færa sig
úr fjölskyldubílnum yfir í risavaxna
strætóinn eða lestina, hvort sem
verður ofan á.
Fátt bendir til að þetta muni tak-ast, nema síður sé. Þýska tíma-
ritið Der Spiegel fjallar um reynsl-
una af átaki í almenningssam-
göngumálum í nokkrum borgum og
árangurinn styður ekki kenningar
borgaryfirvalda í Reykjavík.
Í Tallinn í Eistlandi er til aðmynda boðið upp á ókeypis al-
menningssamgöngur og lengra
verður varla gengið í þeim efnum.
Þar gerðist það að vísu að far-þegum almenningsvagna fjölg-
aði um 14%, en ástæðan var sú að
færri gengu eða notuðu reiðhjól.
Samanlagðar gönguferðir borg-arbúa styttust um 40%, sem
getur tæpast talist jákvæð þróun.
Notkun bíla í borgarumferðinnijókst, sem var tæpast ætlunin
heldur.
Varla er hægt að búast við betriárangri með borgarlínu hér en
með ókeypis strætisvögnum og lest-
um í Tallinn. Eða trúir því einhver?
Borgarlína gegn
gönguferðum
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 16.2., kl. 18.00
Reykjavík 0 léttskýjað
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri -1 léttskýjað
Nuuk -12 snjókoma
Þórshöfn 4 léttskýjað
Ósló 0 alskýjað
Kaupmannahöfn 4 skúrir
Stokkhólmur 0 skýjað
Helsinki -4 skýjað
Lúxemborg 5 léttskýjað
Brussel 7 léttskýjað
Dublin 8 skýjað
Glasgow 7 skýjað
London 8 skýjað
París 8 heiðskírt
Amsterdam 5 léttskýjað
Hamborg 5 skúrir
Berlín 5 léttskýjað
Vín 2 þoka
Moskva -4 snjóél
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 14 heiðskírt
Barcelona 15 skýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 11 heiðskírt
Aþena 9 léttskýjað
Winnipeg -16 skýjað
Montreal 1 rigning
New York 12 léttskýjað
Chicago 0 alskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:16 18:08
ÍSAFJÖRÐUR 9:31 18:04
SIGLUFJÖRÐUR 9:14 17:46
DJÚPIVOGUR 8:48 17:35
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég stefni að sigri í mótaröðinni en
mótið er rétt að byrja, aðeins tvær
keppnir af sjö búnar, og sterkir
keppendur,“ segir Jakob Svavar
Sigurðsson sem sigrað hefur í tveim-
ur fyrstu greinum Meistaradeildar-
innar í hestaíþróttum, í bæði skiptin
á Júlíu frá Hamarsey, og er því með
fullt hús stiga.
Meistaradeildin hefur verið haldin
frá árinu 2001. Jakob Svavar hefur
oft sigrað í einstaka greinum en
aldrei orðið meistari. Næsta keppni
er fimmgangur og segist Jakob vera
með góðan hest í hana og undirbúa
sig vel. „Ef það gengur vel þá er
komið lengra inn í mótið. Það er með
fimmganginn eins og slaktaumatölt-
ið að það er tæknilega erfið grein og
lítið má út af bregða. Þar eru einnig
sterkir keppinautar,“ segir Jakob.
Júlía frá Hamarsey er þrefaldur
Íslandsmeistari frá síðasta ári og
náðu þau Jakob strax öruggri for-
ystu í slaktaumatöltinu sem fram fór
í Sprettshöllinni í fyrrakvöld. Viðar
Ingólfsson og Pixi frá Mið-Fossum
veittu þeim keppni í úrslitum og
voru Jakob og Viðar jafnir fyrir síð-
ustu grein, tölt með slökum taumi
sem hefur tvöfalt vægi. „Ég vissi að
við gætum gert vel en í þessari grein
má ekkert út af bregða,“ segir Jakob
en hann sigraði örugglega, fékk ein-
kunnina 8,67.
Landsmót hestamanna verður
haldið á félagssvæði Fáks í Víðidal í
byrjun júlí í sumar. Jakob Svavar
segist stefna með töluvert af hross-
um þangað og einnig á Íslandsmót. Í
þeim hópi verður Júlía frá Hamars-
ey. Eftir það fer hún í nýtt hlutverk
því eigandinn mun nota hana til
ræktunar.
Aðstaðan hjálpar til
Jakob Svavar er búinn að koma
sér vel fyrir á Fákshólum í Ása-
hreppi. Hann keypti jörðina og flutti
úr Leirársveitinni eftir landsmótið
fyrir tveimur árum. Á jörðinni er
stór reiðhöll og hesthús. „Aðstaðan
er miklu rúmbetri hér og húsin ný.
Það hjálpar örugglega til, sér-
staklega góð reiðhöll,“ segir Jakob
Svavar spurður um áhrif þess á ár-
angur í íþróttinni.
Með fullt hús stiga í deildinni
Jakob Svavar Sigurðsson hefur sigrað í tveimur fyrstu keppnum Meistara-
deildar í hestaíþróttum Stefnir ótrauður að fyrstu meistaratigninni
Ljósmynd/Hannes Sigurjónsson
Þrefaldir Íslandsmeistarar Jakob Svavar Sigurðsson og Júlía frá Hamars-
ey eru sigursælt par. Þau eru á sigurbraut í Meistaradeild í hestaíþróttum.
„Þar sem um er að ræða alvarlegt og
óafturkræft inngrip er óásættanlegt
að börn undir lögaldri séu umskor-
in,“ segir í umsögn Siðmenntar um
frumvarp til laga um breytingu á al-
mennum hegningarlögum, en það
kveður á um bann við umskurði
drengja hér á landi.
Er það Silja Dögg Gunnarsdóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins,
sem lagði fram drög að frumvarpinu.
„Hver sem með líkamsárás veldur
tjóni á líkama eða heilsu stúlkubarns
eða konu með því að fjarlægja kyn-
færi hennar að hluta eða öllu leyti
skal sæta fangelsi allt að 6 árum,“
segir í 218. gr. a. almennra hegn-
ingarlaga nr. 19/1940. Breytingin
sem lögð er til er að orðinu „stúlku-
barn“ verði breytt í „barn“ og nái því
til bæði drengja og stúlkna.
Læknar víða á móti umskurði
Siðmennt tekur undir skoðun
flutningsmanna frumvarpsins þegar
þeir segja: „Það er skoðun flutnings-
manna að umskurður á ungum
drengjum feli í sér brot á réttindum
þeirra, nema slík aðgerð sé talin
nauðsynleg af heilsufarslegum
ástæðum.“ Siðmennt telur hins veg-
ar að lögráða einstaklingar eigi að
geta óskað eftir umskurði eftir upp-
lýsta skoðun og ákvörðun þar um.
Þá bendir Siðmennt á að lækna-
samtök víða um heim, m.a. á Norður-
löndum, hafa lýst yfir andstöðu sinni
við umskurði drengja.
Umskurður er
alvarlegt inngrip
Siðmennt styður umdeilt frumvarp