Morgunblaðið - 17.02.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Dómsmálaráðherra fékk ekki skor-
blað frá dómnefnd vegna umsagnar
um umsækjendur um stöðu dómara
við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Þetta fékkst staðfest hjá dóms-
málaráðuneytinu. Ein staða var laus.
Deilt hefur verið um vægi ein-
stakra matsþátta í tillögum dóm-
nefndarinnar vegna umsókna um
embætti 15 dómara við Landsrétt.
Af niðurlagi nýrrar umsagnar
dómefndar vegna Héraðsdóms
Reykjavíkur virðist mega ráða að
samlagning slíkra matsþátta hafi
minna vægi en í síðasta dómaravali.
Til upprifjunar sagði í niðurstöðu
dómnefndar vegna Landsréttar að
hún hefði „í mati sínu á hæfni um-
sækjenda að því er varðar röðun inn-
an einstakra þátta beitt eins mikilli
nákvæmni og kostur er, en mats-
grundvöllurinn er bæði fjölþættur
og margbrotinn. Á hinn bóginn
speglar endanlegur útreikningur í
samanlögðum þáttum matsniður-
stöður af mikilli nákvæmni.“
Vísað til reynslunnar
Í umsögninni vegna Héraðsdóms
Reykjavíkur kveður við annan tón:
„Ákvæði laga nr. 15/1998, reglna
nr. 620/2010, meginreglur stjórn-
sýsluréttar og hefðbundið vinnulag
dómnefndar a.m.k. frá 2010 krefjast
þess að matsþættir sem tilteknir eru
í reglum nr. 620/2010 séu greindir af
eins mikilli nákvæmni og unnt er.
Þrátt fyrir þetta hlýtur matið
einnig að byggjast á lögfræðilegri
þekkingu nefndarmanna, reynslu
þeirra af dómstörfum við dómstóla, í
lögmennsku og stjórnsýslu og dóm-
greind þeirra ... Þótt þættir séu
metnir samviskusamlega breytir það
því ekki að slíkt mat verður ekki
unnið af vélrænni nákvæmni og þýð-
ingarlaust að láta sem svo sé,“ sagði
m.a. í rökstuðningi dómnefndar
vegna Héraðsdóms Reykjavíkur.
Dómnefndina skipuðu þau Jakob
R. Möller, Guðrún Björk Bjarna-
dóttir, Kristín Benediktsdóttir,
Ragnheiður Harðardóttir og
Ragnhildur Helgadóttir. Fram kom í
nýju umsögninni að formannsskipti
urðu við valið. „Gunnlaugur Claes-
sen, formaður nefndarinnar, og
Greta Baldursdóttir, varamaður
hans, [hefðu] bæði vikið sæti við
meðferð málsins fyrst og fremst
vegna tímabundinna anna.“
Þá hefði Óskar Sigurðsson, hrl.,
lýst sig vanhæfan og varamaður,
Guðrún Björk, hrl., komið í staðinn.
Fram hefur komið að sá sem dóm-
nefnd mat í 15. sæti hæfnisraðar
vegna Landsréttar fékk 5,48 í ein-
kunn en sá í 16. sæti 5,45. Samtala 12
matsþátta var 105%, eða 10,5.
Varhugaverð aðferðafræði
Jakob R. Möller vék að slíkri sam-
lagningu við dómaraval á fundi laga-
deildar Háskólans í Reykjavík 24.
janúar sl. Þar sagði Jakob m.a. að
„hættan í sambandi við boxamerk-
ingarnar“ væri t.d. sú að sá sem hefði
verið lögmaður allt sitt líf væri
merktur í tiltekið box og síðan væri
lesið úr því. „Það er gagnlegt að
kynna sér inngang álits umboðs-
manns [Alþingis] fyrir … 2016, þar
sem er einmitt varað við því að vera
með svona tölulega meðferð. Þ.e.a.s.
einhver [sem] hefur unnið í 10 ár …
er fimm sinnum betri en sá sem hef-
ur unnið í 2 ár. Þetta er hætta sem
ber mjög víða á þar sem mannauðs-
fræðingarnir hafa ráðið ríkjum,“
sagði Jakob og tók dæmi.
Algengt í jafnréttismálum
„Þetta gengur til dæmis eins og
rauður þráður í gegnum gagnrýni
sem hefur komið upp í sambandi við
ákvarðanir jafnréttisráðs um það að
hallað hafi verið á annað kynið eða
hitt í umsögnum. Þ.e.a.s. að það er
talið til gildis að [viðkomandi] hefur
svona margar háskólagráður og hef-
ur unnið svona lengi á svona mörg-
um stöðum. Þetta er atriði sem þarf
að huga að í þessum ráðningar-
málum yfirleitt,“ sagði Jakob, sem
gagnrýndi jafnframt að ráðherra
hefði aðeins tvær vikur til að fara
með afstöðu sína fyrir Alþingi.
„Þetta hygg ég að dæmin hafi sýnt
að er of skammur frestur.“
Jakob rifjaði upp að margir sóttu
um embætti dómara við Landsrétt
og Héraðsdóm Reykjavíkur. Sam-
tals hafi borist nærri 70 umsóknir.
Nefnd um dómara vék
frá „boxamerkingum“
Dómnefnd lagði ekki skorblað fyrir ráðherra í dómaravali
Jakob R.
Möller
Gunnlaugur
Claessen
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
70%
AFSLÁTTUR
SÍÐASTI
DAGUR
ÚTSÖLU
Opið 10-16
Opið í dag kl. 11-16
Við erum á facebook
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Peysur
Kr. 8.200.
Str. S-XXL • 5 litir
Ný sending – frábært úrval
Flottir
í fötum
Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími 551-3033
gallabuxur
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Skoðið laxdal.is/yfirhafnir
Skipholti 29b • S. 551 4422
BUXUR
Mörg snið
margar stærðir
margir litir
sem passar
sérhverri konu
ÚTSÖLUVÖRUR 60-70% AFSLÁTTUR
Í dómum Hæstaréttar 591 og
592/2017 er vikið að notkun
dómnefndar á stigatöflu við
mat á umsóknum um Landsrétt:
„Í bréfi formanns dómnefnd-
ar [Gunnlaugs Claessen] til
dómsmálaráðherra 28. maí
2017 kom fram að nefndin hefði
á fleiri fundum en einum rætt
vægi einstakra matsþátta sem
heildarmat nefndarinnar var
reist á … Þá sagði í bréfinu að
formaðurinn hefði tekið við svo-
kölluðum skorblöðum frá fyrri
dómnefnd sem notuð hefðu ver-
ið við samlagningu og útreikn-
inga á niðurstöðum um ein-
staka umsækjendur, en á
þessum skorblöðum hefðu verið
prentaðar nákvæmlega þær
vægistölur í prósentum sem
síðan hefði verið beitt. Skor-
blöðin hefðu verið leyst af hólmi
með stigatöflu með sama vægi
einstakra þátta og áður, en
notkun stigatöflu í þetta skipti
hefði helgast af miklum fjölda
umsækjenda,“ sagði þar m.a.
Skýrðist af
fjöldanum
NOTKUN STIGATÖFLU
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Stjórn Sambands íslenskra sveitar-
félaga (SÍS) bókaði á fundi 26. jan-
úar sl. áskorun á hendur yfirstjórn
Háskóla Íslands, m.a. um að tryggja
að endurskoðun sem nú stendur yfir
á inntaki og skipulagi kennaranáms
á menntavísindasviði endurspegli
ákall um aukna áherslu á hagnýtar
kennsluaðferðir. Aukinn fjöldi er-
lendra barna, álag sem fylgir for-
eldrasamstarfi o.fl. var nefnt sem
áskoranir í breyttu umhverfi.
Morgunblaðið hafði samband við
Jóhönnu Einarsdóttur, forseta
menntavísindasviðs Háskóla Ís-
lands, en hún segir stjórn sviðsins
hafa tekið bókun SÍS fyrir.
Meginstef í endurskoðun
„Menntun kennara þarf að vera í
sífelldri þróun í takt við breytingar á
samfélaginu. Þetta er meginstef í
nýrri endurskoðun kennaramennt-
unar. Brugðist hefur verið við
breyttum aðstæðum og rík áhersla
er lögð á vettvangsnám. Kennara-
námið var lengt árið 2008 og fyrstu
nemendur brautskráðust árið 2014.
Þeir eru því aðeins 3% af heildar-
fjölda kennara landsins,“ segir Jó-
hanna og bætir við að vettvangsnám
sé ríkur þáttur í kennaranámi og
starfandi kennarar hafi fjölbreytta
möguleika til framhaldsnáms við HÍ.
Starfsþróun kennara sé samt á
ábyrgð sveitarfélaga.
„Það er mjög mikilvægt að efla
starfsþróun kennara til að koma til
móts við nýjar kröfur og breyttar að-
stæður. Starfið er flókið og kallar á
ævilangt nám,“ segir Jóhanna.
Rannsóknir sýni að kennarar nái
ekki fullum tökum á starfinu fyrr en
eftir 5-8 ár. Stuðningur reyndra
kennara skipti þar sköpum.
„Skiptar skoðanir hafa alltaf verið
um inntak og áherslur í kennara-
námi. Mikilvægt er að sú umræða sé
uppbyggileg og málefnaleg.
Við munum leitast við að kynna
námið og þær breytingar sem gerðar
hafa verið að undanförnu. Ég lít svo
á að tengsl fræða og starfs og mark-
visst vettvangsnám sé aðalsmerki
gæða kennaramenntunar.“
Breytt starfsum-
hverfi kennara
Áskorun frá SÍS á yfirstjórn HÍ