Morgunblaðið - 17.02.2018, Síða 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
FLOORING SYSTEMS SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510
O
ttó
A
u
g
lýsin
g
astofa
Stoppar 90% óhreininda
Dyra og hreinsimottur
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Eignir Lífeyris-
sjóðs verzlunar-
manna jukust um
62 milljarða króna
á síðasta ári og þar
af voru fjárfesting-
artekjur 47 millj-
arðar króna. Alls
námu eignir lífeyrissjóðsins 665 millj-
örðum í árslok.
Sjóðfélagalán námu 82,3 milljörðum,
eða um 12% af heildareignum sjóðsins,
og jukust lán til sjóðfélaga um liðlega
20 milljarða á árinu. Erlend verðbréf
voru um þriðjungur heildareigna í árs-
lok, 17% voru í innlendum hlutabréfum
og 23% í innlendum ríkistryggðum
skuldabréfum.
Ávöxtun eigna lífeyrissjóðsins nam
7,6%, sem svarar til 5,7% raunávöxt-
unar. Tryggingafræðileg staða, sem er
mælikvarði á getu sjóðsins til að standa
undir skuldbindingum sínum, var já-
kvæð um 6,4% í árslok, samanborið við
4,2% ári fyrr.
Fjárfestingartekjur LV
47 milljarðar í fyrra
STUTT
Erlendur Magnússon, fráfarandi
stjórnarformaður Borgunar, segir
að við ráðningu nýs forstjóra til fyr-
irtækisins hafi
verið gætt trún-
aðar gagnvart öll-
um umsækjend-
um og engum
viðkvæmum upp-
lýsingum hafi
verið deilt með
utanaðkomandi
aðilum. Hann
segist á sama
tíma hafa skilning
á þeim áhuga sem
Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, hafi haft á ferlinu.
„Sem stærsti hluthafi fyrirtækis-
ins er eðlilegt að hún hafi haft áhuga
á þessu og hún var upplýst um stöðu
mála þegar við átti.“ Spurður út í
hvort á einhverjum stigum málsins
hafi bankastjórinn farið yfir strikið í
samskiptum sínum við stjórnarfor-
mann fyrirtækisins segist hann ekki
tjá sig um einstaka þætti ráðningar-
ferlisins.
Í frétt í Morgunblaðinu í gær var
bent á að Fjármálaeftirlitið hefði
tekið saman tvær skýrslur sem fólu í
sér harða gagnrýni á Borgun.
Erlendur gerir athugasemd við að
brotthvarf hans frá fyrirtækinu sé
sett í samhengi við gagnrýnina.
„Við fengum athugasemdir frá
FME sem lutu að bónusgreiðslum til
starfsfólks og þeim aðgerðum sem
við gripum til í því skyni að sporna
við peningaþvætti. Við brugðumst
við öllum kröfum FME um úrbætur,
enda metnaður okkar að standa rétt
að öllum verkum.“
Erlendur ítrekar einnig að hann
hafi fullan skilning á þeirri ákvörðun
Íslandsbanka að skipa nýjan
stjórnarformann.
„Ég bauðst til þess að sitja eitt ár
enn en bankanum er að sjálfsögðu
heimilt að gera þær breytingar sem
hann telur nauðsynlegar.“
Stjórn Borgunar
gætti trúnaðar
Stjórnarformaðurinn tjáir sig ekki
um samskipti við bankastjórann
Erlendur
Magnússon
stjóra. Þar hefði hún bent á að mjög
hæfar konur hefðu ekki komist í
þann hóp sem ætlunin var að taka
viðtal við. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins varð stjórnarfor-
maður Borgunar við þeim ábend-
ingum Íslandsbanka og boðaði m.a.
Katrínu Olgu Jóhannesdóttur, for-
mann Viðskiptaráðs, í viðtal.
Í kjölfar rannsóknar Sam-
keppniseftirlitsins á brotum Arion
banka, Borgunar, Íslandsbanka,
Landsbankans og Valitors á brotum
á samkeppnislögum gerðu aðilarnir
sem til rannsóknar voru sátt við
Samkeppniseftirlitið og greiddi Ís-
landsbanki m.a. 380 milljóna króna
sekt á grundvelli hennar. Í sátt
Borgunar við Samkeppniseftirlitið
stendur m.a.:
„Er Borgun (þ.m.t. stjórn og
starfsmenn fyrirtækisins) þannig
m.a. óheimilt að taka við frá eig-
anda fyrirmælum, tilmælum eða
ábendingum sem miða að eða geta
haft skaðleg áhrif á samkeppni. Að
sama skapi er eiganda óheimilt að
beina slíkum fyrirmælum, tilmæl-
um eða ábendingum til Borgunar.“
Óháður eftirlitsmaður Borg-
unar skoðar málið einnig
Á grundvelli fyrrnefndrar sáttar
við Samkeppniseftirlitið ber Borg-
un að hafa á sínum snærum það
sem kallað er „óháður kunnátt-
umaður“ sem ætlað er að hafa eftir-
lit með því að skilyrðum sáttarinnar
sé fylgt eftir. Þessu hlutverki gegn-
ir Soffía Eydís Björgvinsdóttir,
sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs
KPMG.
Meðal þeirra hlutverka sem hinn
óháði kunnáttumaður hefur með
höndum er að leggja mat á hvort
Borgun hafi gripið til fullnægjandi
ráðstafana til að uppfylla skilyrði
sáttarinnar og að ef Borgun verði
undir yfirráðum fjármálafyrirtækis
„sem m.a. hafi með höndum
greiðslukortaútgáfu skal haft eftir-
lit með því að samskipti og tengsl
fyrirtækisins við þann eiganda séu í
samræmi við fyrirmæli sáttar-
innar.“ Enn fremur ber hinum
óháða kunnáttumanni að greina
stofnuninni frá því ef hann verði
var við að skilyrði sáttarinnar kunni
að hafa verið brotin eða vís-
bendingar séu um að markmið
hennar séu ekki að ná fram að
ganga.
Í samtali við Morgunblaðið stað-
festi Soffía Eydís að hún væri með
málið nú til skoðunar. Hún segir að
á þessum tímapunkti hafi hún ekki
ákveðið næstu skref eða hvort og
þá hvenær hún muni kalla eftir
gögnum varðandi málið.
Samkeppniseftirlitið með
mál Borgunar til skoðunar
Íslandsbanki gerði sátt við stofnunina 2014 sem kvað á um afskiptaleysi
Samsett mynd/Elín Arnórsdóttir
Borgun Samkeppniseftirlitið er með mál Íslandsbanka og Borgunar í skoð-
un og hvort þeim sáttum sem fyrirtækin gerðu við eftirlitið hafi verið fylgt.
Páll Gunnar
Pálsson
Soffía Eydís
Björgvinsdóttir
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Sam-
keppniseftirlitsins, staðfestir að
stofnunin sé með málefni Íslands-
banka og greiðslukortafyrirtækis-
ins Borgunar til skoðunar. Tilefnið
mun vera fréttaflutningur Morgun-
blaðsins af meintum afskiptum
bankastjóra Íslandsbanka af ráðn-
ingarferli nýs forstjóra Borgunar í
kringum nýliðin áramót.
„Ég get staðfest að við erum að
skoða hvort í þessu máli séu vís-
bendingar um að gengið hafi verið
að einhverju leyti gegn þeim sátt-
um sem fyrirtækin gerðu við Sam-
keppniseftirlitið árið 2014. Við höf-
um ekki opnað rannsókn á málinu
og ákvörðun um hvort það verði
gert verður tekin síðar,“ segir Páll
Gunnar.
Eins og komið hefur fram í
Morgunblaðinu er mikill kurr með-
al hluthafa í Borgun vegna þess
sem nefnt hefur verið „óeðlileg“ af-
skipti forstjóra Íslandsbanka af
fyrrnefndu ráðningarferli. Telja
hlutaðeigendur sem rætt hafa við
Morgunblaðið að framganga banka-
stjórans gangi í berhögg við sátt
sem bankinn undirgekkst gagnvart
Fjármálaeftirlitinu árið 2014 vegna
tiltekinna framkvæmda á greiðslu-
kortamarkaði. Íslandsbanki á 63,5%
hlut í Borgun.
Í Morgunblaðinu í gær sagði
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Ís-
landsbanka, að hún hefði hvatt
Erlend Magnússon, stjórnarfor-
mann Borgunar, til þess að fjölga í
þeim hópi sem tekinn var í viðtal í
tengslum við ráðningu á nýjum for-
17. febrúar 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 99.84 100.32 100.08
Sterlingspund 140.52 141.2 140.86
Kanadadalur 79.97 80.43 80.2
Dönsk króna 16.731 16.829 16.78
Norsk króna 12.804 12.88 12.842
Sænsk króna 12.579 12.653 12.616
Svissn. franki 107.85 108.45 108.15
Japanskt jen 0.9373 0.9427 0.94
SDR 145.54 146.4 145.97
Evra 124.65 125.35 125.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.351
Hrávöruverð
Gull 1358.6 ($/únsa)
Ál 2163.0 ($/tonn) LME
Hráolía 64.44 ($/fatið) Brent