Morgunblaðið - 17.02.2018, Blaðsíða 26
AFP
Í hættu Órangútönum fækkaði um
rúman helming á eyjunni Borneó.
Órangútönum hefur fækkað um
rúman helming á eyjunni Borneó,
eða um meira en 100.000, frá árinu
1999, samkvæmt nýrri rannsókn.
Fækkunin er einkum rakin til
skógareyðingar en einnig til ólög-
legra veiða, að því er fram kemur í
grein um rannsóknina í tímaritinu
Current Biology.
„Við teljum að núna séu um 70.000
til 100.000 órangútanar eftir á
Borneó,“ hefur fréttaveitan AFP
eftir Mariu Voigt, vísindamanni við
Max Planck-stofnunina í Þýskalandi.
Hún segir rannsóknina benda til
þess að öpunum hafi fækkað stór-
lega á svæðum þar sem skógar hafi
verið höggnir fyrir pálmaolíuvinnslu
eða námugröft. „Það er samt
áhyggjuefni að fækkunin var mest á
svæðum sem eru enn skógi vaxin.
Það bendir til þess að dráp á ór-
angútönum eigi stóran þátt í þessu,“
hefur AFP eftir Voigt. Vísinda-
mennirnir segja að aparnir séu oft
drepnir vegna þess að þeir fari inn á
plantekrur í fæðuleit.
Haldi svo fram sem horfir er lík-
legt að öpunum fækki um 45.000 til
viðbótar á næstu 35 árum. Órangút-
anar lifa einnig á eyjunni Súmötru
og eru í útrýmingarhættu þar eins
og á Borneó.
Öpunum fækk-
aði um 100.000
Órangútanar drepnir á Borneó
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
., '*-�-��,�rKu�,
æli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
K
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
Dönsk hönnun
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
Kínverska nýárið gekk í garð í gær en hátíðarhöldin í Peking og mörgum
fleiri borgum í Kína voru miklu hljóðlátari en þau hafa verið síðustu ár.
Ástæðan er sú að yfirvöld í 440 kínverskum borgum og bæjum hafa bannað
notkun kínverja og flugelda til að minnka loftmengun. Slíkt bann var til að
mynda sett í Peking í desember. „Eins og allir Pekingbúar hef ég sprengt
púðurkerlingar frá því að ég var barn. En nú er öldin önnur … loftgæðin
skipta mestu máli núna í augum flestra,“ hefur fréttaveitan AFP eftir ein-
um íbúa höfuðborgarinnar. Annar Peking-búi, ungur námsmaður, tók í
sama streng. „Bannið er af hinu góða, vegna þess hversu hrikalegt ástand-
ið er í umhverfismálum. Jafnvel þótt það spilli svolítið skemmtuninni.“
Ár hundsins
Heimildir: HandbookofChineseHoroscopes/Peoplehistory.com/
history.com/ NASA/LibraryofCongress/reard.com/AFP Myndir
2017
2016
2015
2014
2013
2019
2020
2021
2022
2023
2024
Hundur
2018
Kínverski
dýra-
hringurinn
Fólk
Winston Churchill,
forsætisráðherra
Bretlands
(1874-1965)
Bill Clinton,
fyrrverandi
forseti Banda-
ríkjanna
(f. 1946)
Madonna,
bandarísk
poppstjarna
(1958)
Justin Bieber,
kanadísk poppstjarna
(1994)
Donald Trump,
forseti Bandaríkjanna
(1946)
MIchael Jackson,
„konungur poppsins“
(1958-2009)
Saoirse Ronan,
írsk-bandarísk leikkona
(1994)
Móðir Teresa,
dýrlingur (1910-1997)
Elvis Presley,
„konungur rokksins“
(1935-1977)
Atburðir á ári hundsins
1958
Momofuku Ando fann upp fyrstu
skyndinúðlurnar í Japan
„Stóra stökkið fram á við“ hafið í Kína, með það
að markmiði að gera landið að iðnvæddu kommúnistaríki
Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA,
hóf starfsemi
Golda Meir,
forsætisráðherra Ísraels
(1898-1978)
Alþjóðlegur sáttmáli um bann við
dreifingu kjarnavopna gekk í gildi
1970
Haldið upp á jarðardaginn (22. apríl)
í Bandaríkjunum
Fyrsta keppnin ætluð skáktölvum
haldin í NewYork
Alþjóðahvalveiðiráðið ákvað að banna
hvalveiðar í atvinnuskyni
1982
Fyrsta gervihjartaígræðslan, sjúklingurinn
lifði í 112 daga
Íbúafjöldi Kína fór yfir milljarð og landið
varð það fjölmennasta í heiminum
Nelson Mandela varð forseti Suður-Afríku,
fyrstur blökkumanna
1994
Um 800.000 manns lágu í valnum
eftir hópmorðin í Rúanda
Skýrt frá því að Hubble-sjónaukinn
hefði fundið fyrstu merkin um svarthol
Norður-Kóreumenn tilkynntu að þeir hefðu sprengt
fyrstu kjarnorkusprengjuna í tilraunaskyni
2006
Twitter komið á fót
Plútó skilgreindur sem dvergreikistjarna, ekki reikistjarna
Saddam Hussein, fyrrverandi einræðisherra Íraks, tekinn af lífi
1946
Tólf leiðtogar nasista dæmdir til dauða í
réttarhöldunum í Nürnberg og sjö fengu
fangelsisdóm, frá 10 árum til lífstíðar
Bandaríkjamenn hófu kjarnorkutilraunir
á kóraleyjunni Bikini á Kyrrahafi
Tveggja flíka sundfatnaður (bikini) settur
á markað í París, nefndur eftir Bikini-eyju
Snákur
Hestur
Geit
Api
Hani Göltur
Rotta
Uxi
Tígur
Héri
Dreki
Kínverska nýárið 2018
gekk í garð í gær
Kínverjar bannaðir