Morgunblaðið - 17.02.2018, Síða 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Við heitum sem hópur enn ekki
neitt því það er vandasamara en
virðist við fyrstu sýn að finna gott
nafn sem gengur jafnt á Íslandi og
erlendis,“ segir Sigrún Eðvalds-
dóttir fiðluleikari um tríó sem hún
skipar ásamt Bryndísi Höllu Gylfa-
dóttur sellóleikara og ítalska píanó-
leikarinn Domenico Codispoti. Þau
koma fram á sjöttu og síðustu tón-
leikum Kammermúsíkklúbbsins
þetta starfsárið sem haldnir verða í
Norðurljósum Hörpu á morgun,
sunnudag, kl. 17.
Að sögn Sigrúnar eru um fjögur
ár síðan tríóið nafnlausa byrjaði að
spila saman. „Ég hef auðvitað spilað
mun lengur með Bryndísi Höllu og
við þekkjumst núorðið svo vel að við
þurfum varla að tala saman á æfing-
um heldur vitum hvað hin hugsar,“
segir Sigrún kímin og tekur fram að
það sé mikill fengur að fá Codispoti í
hópinn. Frá árinu 2000 hefur hann
reglulega komið fram á tónleikum
hérlendis, jafnt einn og sem einleik-
ari með Sinfóníuhljómsveit Íslands,
ásamt því að leiðbeina ungum og
efnilegum píanóleikurum á
meistaranámskeiðum. Codispoti býr
í Róm en auk starfa sinna sem
konsertpíanista sinnir hann
kennslustörfum í Tónlistarskólanum
Lorenzo Perosi í Campobasso á
Ítalíu. „Codispoti er einstakur
músíkant og veitir okkur mikinn
innblástur.“
Á efnisskránni eru tvö fræg
píanótríó eftir Johannes Brahms og
Dmítríj Shostakovitsj. Í tilkynningu
frá Kammermúsíkklúbbnum kemur
fram að Brahms hafi staðið á tíma-
mótum á ferli sínum þegar hann
samdi píanótríóið nr. 2 í C-dúr op. 87
á árunum 1880 til 1882. „Hann hafði
þá hlotið alþjóðlega viðurkenningu
sem tónskáld og fannst kominn tími
til að kveðja ímynd hins glæsilega
og eftirsótta unga píanóeinleikara,“
segir í tilkynningu og rifjað upp að
með aldrinum hafi Brahms orðið
sáttari við verk sín og sjálfsgagnrýni
og jafnvel minnimáttarkennd hans
gagnvart eigin tónsmíðum horfið.
„Það er alltaf draumur að spila
tríó Brahms. Þetta eru svo safaríkar
tónsmíðar og ótrúlega fallegt. Við
þrjú höfum aldrei leikið Brahms-tríó
áður þannig að þetta er mikið til-
hlökkunarefni,“ segir Sigrún.
Shostakovitsj samdi píanótríó nr.
2 í e-moll op. 67 árið 1944, undir lok
seinni heimsstyrjaldar, í minningu
besta vinar síns, tónlistarfræðings-
ins Ivans Sollertinskys (1902-1944).
„Tríóið er því sorgaróður um látinn
vin en í því má einnig greina mikla
samúð með fórnarlömbum stríðsins
og þeim sem ofsóttir eru og þá sér-
staklega gyðingum sem nasistar út-
rýmdu kerfisbundið. Þetta undir-
strikar tónskáldið í verkinu eins og
glöggt má heyra í lokakaflanum sem
inniheldur gyðingastef,“ segir í til-
kynningu.
„Þetta er ótrúlega flott verk og
átakanlegt, það tekur því á að spila
það – en þetta er stórkostleg tónlist.
Þetta eru því tvö meistaraverk sem
við fáum að spila á tónleikunum,“
segir Sigrún.
Nafnlaust tríó Domenico Codispoti, Sigrún Eðvaldsdóttir og Bryndís Halla
Gylfadóttir koma fram á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins á morgun.
Spila „tvö meist-
araverk“ í Hörpu
Verk eftir Brahms og Shostakovitsj
Nýr sellósextett, Askja Ensemble, kemur í fyrsta skipti fram á tónleikum í
Menningarhúsinu Mengi við Óðinsgötu í kvöld, laugardagskvöld, og hefjast
tónleikarnir kl. 21. Á efnisskránni eru íslensk þjóðlög í útsetningu Páls Ein-
arssonar, prófessors í jarðeðlisfræði og sellóleikara, fyrir selló. Lög eins og
„Sveitin mín“, „Smávinir fagrir“, „Lítill fugl“ og „Heyr himna smiður“.
Meðlimir Öskju flytja einnig verk eftir endurreisnartónskáldið Vivaldi:
Konsert í g-moll fyrir tvö selló, RV531, í þremur þáttum, en útsett fyrir
sellósextett.
Öskju skipa þau Bianca Tighe, Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir, Guðrún
Svana Hilmarsdóttir, Isabel Catalan Barrio, Matylda Hermanská og Páll
Einarsson.
Nýr sellósextett leikur í Mengi
Sextettinn Askja flytur meðal annars útsetningar Páls Einarssonar á þjóðlögum.
Wild Mouse
Georg missir vinnuna sem
tónlistargagnrýnandi á
þekktu dagblaði í Vínarborg.
Bíó Paradís 18.00
Podatek od milosci
Bíó Paradís 17.45
Call Me By Your
Name
Athugið að myndin er ekki
með íslenskum texta.
Metacritic 93/100
IMDb 8,3/10
Bíó Paradís 22.30
Óþekkti
hermaðurinn
Sögusviðið er stríðið milli
Finnlands og Sovétríkjanna
1941-1944.
Morgunblaðið bbbnn
Bíó Paradís 17.30, 20.00
In the Fade
Metacritic 63/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 22.30
Rocky Horror Picture
Show
Bíó Paradís 20.00
The Post 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 83/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Kringlunni 17.30,
20.00, 22.30
Winchester 16
Metacritic 28/100
IMDb 5,3/10
Sambíóin Egilshöll 22.35
Sambíóin Akureyri 22.20
Den of Thieves 16
Metacritic 50/100
IMDb 7,3/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.50
The 15:17 to Paris 12
Metacritic 45/100
IMDb 5,2/10
Sambíóin Álfabakka 20.30,
22.50
Sambíóin Egilshöll 17.50,
20.00, 22.10
Sambíóin Akureyri 20.00
Maze Runner: The
Death Cure 12
Metacritic 52/100
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 22.30
Smárabíó 19.30, 22.40
Insidious:
The Last Key 16
IMDb 5,8/10
Metacritic 49/100
Háskólabíó 21.10
Svona er lífið Morgunblaðið bbbbn
Háskólabíó 15.20
Molly’s Game 16
Metacritic 7/100
IMDb 7,6/10
Laugarásbíó 19.50
Three Billboards
Outside Ebbing,
Missouri 16
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 88/100
IMDb 8,4/10
Háskólabíó 18.00, 20.50
Bíó Paradís 22.15, 22.30
The Shape of
Water 16
Metacritic 86/100
IMDb 7,8/10
Borgarbíó Akureyri 17.30,
20.00, 22.30
Jumanji: Welcome to
the Jungle 12
Metacritic 58/100
IMDb 7,0/10
Smárabíó 17.25
Svanurinn 12
Morgunblaðið bbbmn
IMDb 7,0/10
Háskólabíó 15.30
The Greatest
Showman 12
Metacritic 48/100
IMDb 8,0/10
Háskólabíó 18.00, 20.50
Star Wars VIII – The
Last Jedi 12
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 85/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.20
Lói – þú flýgur aldrei
einn Morgunblaðið bbbbn
Laugarásbíó 14.00, 15.50,
18.00
Sambíóin Keflavík 14.00,
17.30
Smárabíó 12.50, 15.00,
17.50
Háskólabíó 15.30, 17.40
Borgarbíó Akureyri 14.00,
16.00, 18.00
Bling Sambíóin Álfabakka 13.00,
13.30, 15.40, 18.00
Sambíóin Egilshöll 13.00,
16.00, 17.50
Sambíóin Kringlunni 13.30,
15.30
Sambíóin Akureyri 14.00,
16.00, 18.00
Sambíóin Keflavík 13.30,
15.30
Ævintýri í
Undirdjúpum IMDb 4,0/10
Sambíóin Álfabakka 13.00,
16.00
Paddington 2 Metacritic 89/100
IMDb 8,1/10
Laugarásbíó 13.40, 14.30,
15.50, 17.35
Smárabíó 13.00, 15.25,
17.00
Háskólabíó 15.40
Ferdinand Metacritic 58/100
IMDb 6,8/10
Smárabíó 15.00
Coco Metacritic 81/100
IMDb 8,7/10
Sambíóin Álfabakka 13.30,
15.00
T’Challa, nýr konungur í Wakanda, þarf að
vernda land sitt frá óvinum bæði erlendum
sem innlendum.
Metacritic 87/100
IMDb 7,1/10
Laugarásbíó 17.00, 19.50, 22.35
Sambíóin Álfabakka 14.00, 17.00, 20.00, 22.50
Sambíóin Egilshöll 13.00, 14.00, 15.00, 17.00, 18.00, 20.00,
21.00, 22.45
Sambíóin Kringlunni 13.40, 16.40, 19.30, 22.20
Sambíóin Akureyri 13.50, 16.40, 19.30, 22.20
Sambíóin Keflavík 16.40, 19.30, 22.20
Smárabíó 13.30, 14.00, 16.20, 17.00, 19.10, 19.50, 22.10,
22.45
Black Panther 12
Fifty Shades Freed 16
Christian og Ana eru hamingjusamlega gift en draugar
fortíðarinnar ásækja þau og
hóta að eyðileggja líf þeirra.
Metacritic 34/100
IMDb 3,6/10
Laugarásbíó 20.00, 22.15
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 22.00
Smárabíó 20.00, 22.30
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.10
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio
Darkest Hour
Í upphafi seinni heimsstyrj-
aldarinnar hvíla örlög hins
frjálsa heims á öxlum
óreynds forsætisráðherra
Bretlands, Winstons Churc-
hills.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 75/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Egilshöll 20.00
Sambíóin Kringlunni 14.20,
17.00, 19.40, 22.20
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna