Morgunblaðið - 28.02.2018, Side 35

Morgunblaðið - 28.02.2018, Side 35
Tónmenntakennarafélagi Íslands, International Society for Music Education og í Music Educators Nat- ional Conference. Frá 1993 vann Guðmundur, ásamt yngsta syni sínum, Guðmundi Þór, að hönnun og þróun sérstakra hjálpar- tækja fyrir klarínett og trompet. Guð- mundur er höfundur hinnar sígildu tónlistarkennslubókar Flautan og lit- irnir, fyrst útgefin 1974 og síðan marg- endurútgefin. Guðmundur hefur í samvinnu við yngsta barn sitt, Guð- mund Þór, unnið að útgáfu tveggja framhaldsbóka: Flautan og jólin og Flautan, sumarið og vorið. Þær bækur eru væntanlegar á 90 ára afmælisári Guðmundar. Hann var sæmdur gull- merki Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Guðmundur var tilnefndur til ís- lensku menntaverðlaunanna 2006 og 2009 vegna hins mikla framlags til efl- ingar tónlistarnáms sem raun ber vitni, útgáfu framsækins kennsluefnis, frumkvöðlastarfs á sviði þróunar hjálpartækja fyrir hljóðfæri. Ævistarf hans hefur verið tónlistarkennsla barna og einnig mikilfenglegt framlag til þróunar árangursríkra kennslu- hátta og framsækins kennsluefnis fyr- ir börn. Hann var einnig duglegur að rífa upp tónlistarlífið á þeim stöðum þar sem hann bjó eins og sést á upp- talningunni hér að framan. Fjölskylda Guðmundur kvæntist 4.4. 1953 Þór- dísi Huldu Ólafsdóttur tannsmið, f. 12.9. 1927, d. 19.11. 1990,. Hún var dóttir hjónanna Ólafs Jóhannesar Guðlaugssonar, búfræðings og veit- ingamanns, og Vilborgar Eiríksdóttur húsmóður. Börn Guðmundar og Þórdísar Huldu eru 1) Haraldur Norðdahl, f. 4.4. 1952, fórst á sjó 9.3. 1968; 2) Bryn- hildur, f. 31.5.1954, hjúkrunarfræð- ingur og húsmóðir í Noregi, gift Bern- hard Engen og eiga þau tvær dætur; 3) Garðar, f. 12.7. 1955, skipatækni- fræðingur á Akranesi, kvæntur Ingi- björgu Jónu Gestsdóttur og eiga þau þrjú börn auk þess sem hún á dóttur frá því áður; 4) Vilborg, f. 29.1.1958, starfsmaður Fjármálaráðuneytis, gift Þórhalli Ágústi Ívarssyni véltækni- fræðingi og eiga þau þrjú börn; 5) María, f. 28.2. 1959, verslunarrekandi í Reykjavík, gift Þóri Erni Garðarssyni rafvirkjameistara og eiga þau tvö börn; 6) Guðmundur Þór, f. 4.4. 1960, útgefandi og framleiðandi í Reykjavík og á hann einn son. Systkini Guðmundar eru: Skúli Norðdahl, f. 29.6. 1924, d. 8.1. 2011, arkitekt í Reykjavík; Guðrún Norð- dahl, f. 8.8. 1926, d. 1.5. 2017, fyrrv. íþróttakennari í Reykjavik; Jón B. Norðdahl, f. 24.4. 1931, d. 17.2. 2011, verkamaður í Reykjavík. Hálfsystkini Guðmundar, samfeðra, eru Jóhannes Víðir Haraldsson, f. 2.6. 1939, fyrrv. flugstjóri í Reykjavík, og Hrafnhildur Baldvinsdóttir, f. 31.8. 1942, fyrrv. bankastarfsmaður. Foreldrar Guð- mundar voru Haraldur Skúlason Norðdahl, f. 24.9. 1897, d. 24.1. 1993, yfirtollvörður í Reykjavík, og kona hans, Valgerður Jónsdóttir Norðdahl, f. 20.9. 1895, d. 30.9. 1960, húsmóðir. Guðmundur H. Norðdal Valgerður Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Jón Bjarni Jónsson sjómaður á Lambeyri Kristín Snæbjarnardóttir húsfreyja í Keflavík, síðar á Lambeyri við Tálknafjörð Jón Bjarnason bóndi í Keflavík við Rauðasand Grímur Skúlason Norðdahl bóndi á Úlfarsfelli Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfr. og alþm. í Rvík Erró myndlistarmaður í París Guðmundur Einarsson listmálari og myndhöggvari í Miðdal Einar Guðmundsson bóndi í Miðdal Sigríður Eiríksdóttir júkrunarfr. og formaður Hjúkrunarfélags Íslands Eiríkur Guðmundsson trésmiður í Rvíkh Vigdís Finnbogadóttir fv. forseti Íslands Össur Össurarson bóndi, hreppstjóri og skáld í Hvallátrum Guðrún Snæbjarnardóttir húsfreyja í Hvallátrum, faðir Kristínar og Guðrúnar var Snæbjörn Pálsson hreppstj. í Dufansdal Guðbjörg Össurardóttir ljósmóðir og forstöðukona Sjúkrahússins á Patreksfirði Nikulás Ottenson umsjónarmaður skemmtigarðsins River Park í Winnipeg Guðbjörg Astrid Skúladóttir listdansari og skólastj. Klassíska listdansskólans Skúli Norðdahl arkitekt í Rvík Vigdís Eiríksdóttir húsfreyja í Miðdal Guðmundur Einarsson bóndi og hreppstjóri í Miðdal Guðbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja á Úlfarsfelli Skúli G. Norðdahl vegaverkstjóri og bóndi á Úlfarsfelli Guðrún Jónsdóttir húsfr. í Elliðakoti Guðmundur Magnússon Norðdahl bóndi í Elliðakoti í Mosfellssveit Úr frændgarði Guðmundar H. Norðdal Haraldur Skúlason Norðdahl yfirtollvörður í Rvík Tónlistarmaðurinn Guðmundur með hljóðfærið sitt, klarínettið. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2018 90 ára Guðný Ingibjörg Hjartard. 85 ára Bjarney Guðjónsdóttir Svava Gísladóttir 80 ára Vilhelmína N. Sigurðard. Örn Árnason 75 ára Gunnar Hallgrímsson Jóhanna Þormóðsdóttir Jón Eyþór Lárentsínusson Sigurborg Jónsdóttir Tómas Filippusson 70 ára Einar Æ. Jóhannesson Guðmunda Hafdís Jónsd. Guðrún Adda Maríusdóttir Guðrún Bergmann Sveinsd. Hjördís Bára Sigurðardóttir Margrét Ólafsdóttir Sesselja Inga Guðnadóttir Sigríður J. Aradóttir Sólrún Ólafsdóttir Zejnije Haziri 60 ára Bjarney Linda Ingvarsdóttir Erna Björk Hjaltadóttir Gunnar Tryggvason Helga Guðrún Guðjónsd. Hilmar Magni Gunnarsson Ingibjörg Ólafsdóttir Irena Halina Narebska Sigrún Hólm Sólveig Björnsdóttir 50 ára Adam Mazurek Bozena Piekarska Emil Þór Kristjánsson Erla Björnsdóttir Gréta Björnsdóttir Hulda Sólrún Guðmundsd. María Guðmundsd. Gígja Sigríður Ásta Eyþórsdóttir Stanislaw Jacek Kolus Steindór Ingi Kjellberg 40 ára Agnes Szolnoki Arnar Geir Helgason Asta Stancikaité Catalina Mikue Ncogo Díana Rafnsdóttir Drífa Bjarnadóttir Elín Rita Sveinbjörnsdóttir Guðrún Elísabet Pétursd. Krzysztof Bohatkiewicz Ólafur Rúnarsson Sigríður Heiðar Stefán Bjarmar Stefánsson Telma Björk Birkisdóttir Teresa Maria Kowalska Þorvaldur Sv. Guðbjörnss. Fædd 29.2. 90 ára Guðmundur H. Norðdahl Hulda Arnórsdóttir 70 ára Guðbjörn Haraldsson Gunnar Magnús Einarsson Kristinn Halldórsson Kristín Þórðardóttir Steinþór Torfason 50 ára Arnar Eyfjörð Helgason Árni Björn Björnsson Elfa Vilhjálmsdóttir Guðrún S. Sigurgrímsdóttir Haukur Hrafn Gunnarsson Jónas Þór Þorsteinsson Ólína Jónsdóttir Sigríður Björk Gunnarsd. Sigurbjörg Guðlaugsdóttir Sigþór Árnason Til hamingju með daginn 40 ára Drífa býr í Vík í Mýrdal, er fædd þar og uppalin.Hún er fiskieldis- fræðingur að mennt og á fjölskyldufyrirtækið Lind- arfisk. Maki: Árni Jóhannsson, f. 1978, vinnur í tölvudeild RÚV og á móttökunni á Hótel Puffin. Börn: Perla Rós, f. 2002, Urður Ósk, f. 2005, og Arnaldur, f. 2007. Foreldrar: Bjarni Jón Finnsson, f. 1957, og Helga Ólafsdóttir, f. 1957. Drífa Bjarnadóttir 40 ára Stefán er Dalvík- ingur og hefur búið þar alla tíð. Hann er sjómaður hjá Samherja, á Björgúlfi EA. Maki: Nimnual Kkak- hlong, f. 1985, vinnur í frystihúsinu hjá Samherja. Börn: Sindri, f. 1999, Bryndís Lalita, f. 2008, og Sara Phim, f. 2013. Foreldrar: Stefán Páll Georgsson, f. 1953, og Bryndís Anna Hauksdóttir, f. 1953. Þau eru bús. á Dalvík. Stefán Bjarmar Stefánsson 30 ára Emil býr í Garðabæ og er framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Mesher og varan heitir sizeadvice.com. Maki: Edda Lína Gunn- arsdóttir, f. 1988, lækn- isfræðilegur eðlisfræð- ingur á Landspítalanum. Börn: Jakob Þór, f. 2016. Foreldrar: Hörður Vignir Arilíusson, f. 1964, og Fanney Þórsdóttir, f. 1965, bús. í Garðabæ. Emil Harðarson  Rannveig Jóna Jónasdóttir hefur var- ið doktorsritgerð sína í hjúkrunarfræði og heilbrigðisvísindum við Hjúkrunar- fræðideild og Læknadeild. Ritgerðin ber heitið: Þróun skipulagðrar, hjúkr- unarstýrðrar eftirgæslu til sjúklinga eftir útskrift af gjörgæsludeild og próf- un á áhrifum hennar (Development of a structured nurse-led follow-up for pati- ents after discharge from the intensive care unit and testing of its effective- ness). Umsjónarkennarar og leiðbein- endur voru dr. Gísli H. Sigurðsson, pró- fessor við Læknadeild Háskóla Íslands, og dr. Helga Jónsdóttir, prófessor við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Rannsóknin snýr að sjúklingum eftir útskrift af gjörgæsludeild. Þróuð var meðferð, skipulögð, hjúkrunarstýrð eftirgæsla, sem felst í reglubundnu eft- irliti gjörgæsluhjúkrunarfræðinga með sjúklingunum frá útskrift af gjörgæslu- deild að þremur mánuðum eftir út- skrift þaðan. Prófuð eru áhrif meðferð- arinnar á líkamlegt og sálrænt heilsufar sjúklinganna samanborið við sjúklinga sem fá hefðbundna þjónustu. Almennt líkamlegt og sálrænt heilsufar sjúklinganna var mælt fimm sinnum frá því fyrir innlögn á gjörgæsludeild að tólf mánuðum eftir útskrift af gjörgæsludeild auk mælinga á ein- kennum kvíða, þunglyndis og áfallastreiturösk- unar. Niðurstöður sýna ekki árangur skipulagðrar, hjúkrunarstýrðrar eftirgæslu á bætt líkamlegt og sálrænt heilsufar sjúkling- anna fram yfir hefðbundna þjónustu. Hins vegar höfðu sjúklingar um einu ári síðar, í hvoru tveggja tilraunahópi og samanburðarhópi, ekki náð samsvar- andi heilsufari og þeir höfðu fyrir inn- lögn á gjörgæsludeild. Einkenni kvíða og þunglyndis voru fremur væg en sjúklingar úr báðum hópum höfðu ein- kenni áfallastreituröskunar frá þremur að tólf mánuðum eftir útskrift af gjör- gæsludeild. Sjúklingar sem fá bráð og alvarleg veikindi og lifa af gjörgæslu- dvölina glíma við langvarandi afleið- ingar veikindanna og gjörgæsluleg- unnar á líkamlegt og sálrænt heilsufar sitt. Einkenni áfallastreituröskunar eru sláandi og langvarandi hjá þessum hópi sjúklinga. Rannveig J. Jónasdóttir Rannveig Jóna Jónasdóttir er fædd árið 1968. Hún lauk BS-prófi í hjúkrunar- fræði frá Háskóla Íslands árið 1993 og MS-prófi í hjúkrunarfræði frá sama skóla árið 2010. Rannveig hefur verið hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild Landspít- ala í Fossvogi frá árinu 1994 og frá 2014 sérfræðingur í gjörgæsluhjúkrun. Rann- veig er gift Robert J. Kluvers og saman eiga þau dæturnar Helgu Elínu, há- skólanema og Kötlu Rut, menntaskólanema. Doktor

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.