Morgunblaðið - 28.02.2018, Side 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú veist að þú ert á réttri leið og
þarft því ekki að gefa neitt eftir. Atvinnu-
lausir verða heppnir og fá skemmtilega
vinnu.
20. apríl - 20. maí
Naut Leyfðu öðrum að njóta gleði þinnar og
gamansemi. Taktu hlutunum eins og þeir
eru og reyndu að gera það besta úr stöð-
unni hverju sinni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt erfiðleikar skjóti upp kollinum
hér og þar eru þeir bara til að sigrast á og
þú hefur gaman af þeirri glímu. Ekkert vex
þér í augum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hafðu augun hjá þér þegar nýir
möguleikar opnast á starfssviði þínu. Haf-
irðu takmörk þín á hreinu verður valið auð-
velt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Allir uppskera svo sem þeir hafa sáð til
og þú auðvitað líka. Sumar af skoðunum
þínum eru ekki vinsælar en láttu það ekki
trufla þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú gætir staðið frammi fyrir erfiðum
málum á vinnustað en þú hefur alla burði til
að takast á við þau. Notaðu ímyndunaraflið
til að leita nýrra lausna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Maður er aldrei of gamall til þess að
læra. Efastu ekki um hæfileika þína því þú
ert baráttumaður og hefur þann stuðning
sem þú þarft á að halda.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ekki nóg að tala um
hlutina; orðum verða að fylgja athafnir. Ekki
láta sannfæra þig um eitthvað sem þú í
raun trúir ekki á.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú lendir í því að lagfæra, þó að
þú hafir ekki átt þátt í því að aflaga eitt eða
neitt. Stattu fast á þínu og treystu eigin
dómgreind.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þetta er góður tími til að leysa
gömul deilumál og ganga frá lausum end-
um. Leyfðu fólki að líða vel, jafnvel þótt þú
komir auga á veiku blettina.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þig langar kannski ekki að hlusta
á það sem ástvinur vill segja þér en þú ert
rausnarlegur og góðhjartaður. Snilldarlegar
hugmyndir verða á lofti og krydda samtal
þitt við aðra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vonir þínar og framtíðardraumar eru
þér ofarlega í huga þessa dagana. Hægt er
að blanda saman viðskiptum og ánægju án
vandkvæða.
Sigurlín Hermannsdóttir yrkir áBoðnarmiði:
Hann var stundum úti að veiða
en vildi’ enga skepnu samt deyða.
Hann setti undir lekann
og sagðist nú vegan
því kötturinn Brandur var bleyða.
Guðmundur Arnfinnsson er líka
með hugann við veiðimennskuna:
Presturinn Páll á veiðar
á postulahestunum skeiðar
um hóla og fjöll
og hæðir og völl
og hefur þá tvo til reiðar.
Og hann heldur áfram:
Hann Theódór tófusprengur
tæpast er miklu lengur
en sex tíma héðan
á Siglunes, meðan
á sjömílnaskónum hann gengur.
Þessi limra rifjaði upp fyrir mér
vísu sem ort var í Hvalnum að
áeggjan Sigurjóns sagarmanns:
Þó að drengur fjöllin flengi
fara í engin tófurnar;
heiftarstrengi hafði lengi
hundasprengir nefndur var.
Og aftur í Boðnarmjöðinn. Jón
Atli Játvarðarson yrkir:
Margur sér unir við duttlungadót,
dregur inn línu og fiskinn upp háfar.
Engum til gagns rennur óbeislað fljót,
ofan af fjalli og niður til sjávar.
Reir frá Drangsnesi spyr hvort
ekki megi allt eins segja:
Margur sér unir við duttlungadót,
daga og nætur um óbyggðir ráfar.
Okkur til gagns rennur óbeislað fljót,
ofan af fjalli og niður til sjávar.
Á Leirnum yrkir Ingólfur Ómar
um „auðlegð andans“:
Hlúðu að sönnum sálargróða
sónararfsins gæta ber.
Þessa snilligáfu góða
geyma skaltu í hjarta þér.
Hörpu þýða stilltu strengi
stöku láttu hljóma klið.
Vegleg hugsjón glæðir gengi
göfgar æ þitt andanssvið.
Gunnar J. Straumland segir frá
því að „þegar skólastjóri minn
spurði mig hvort ég treysti mér
ekki til að kenna jarðfræðiáfanga,
hélt ég það nú. Ákvað ég að draga
alla mína jarðfræðiþekkingu saman
í eina bögu, hæfni minni til sönn-
unar:
Hraunið opnast, hristist grund,
hroða þeim má lýsa
en þegar birtist þokkasprund
þá fer land að rísa.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kötturinn Brandur
og óbeisluð fljót
„HANN ER EKKI VIÐ. MÁ BJÓÐA
ÞÉR AÐ TALA VIÐ EINHVERN AF
VITORÐSMÖNNUM HANS?“
„AF HVERJU ÞARFTU AÐ BORÐA SVONA
SUBBULEGA?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... veikleikinn í
brynjunni þinni.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
LAGAKRÓKAR EHF.
HVAÐ ER ÞESSI
MÚS AÐ GERA?
HÚN ER AÐ FLÝJA
MIG. ÉG MUN ELTA
HANA Á EFTIR.
FYRIR
ÞIG!
AHH! TAKT‘ETTA Í
BURTU!!
HVAÐ ER AÐ?
VILTU EKKI
EYRNALOKKA?
FYRIRGEFÐU, ÉG HÉLT
ÞETTA VÆRU ÖNGLAR!
Víkverji er alsæll yfir árangri ís-lenska karlalandsliðsins í körfu-
bolta um helgina. Andstæðingarnir
voru tvær öflugar körfubotlaþjóðir,
Finnar og Tékkar, og allt annað en
gefið að Ísland ætti sigra vísa. Vík-
verji verður að játa að fyrirfram var
hann ekkert allt of bjartsýnn, þótt
hann viti hvers liðið er megnugt og
vonaði vissulega að því tækist að
velgja andstæðingunum undir ugg-
um.
x x x
Það voru margar hetjur í íslenskaliðinu um helgina. Allir leikmenn
liðsins börðust eins og ljón og jafnvel
þeir, sem fengu fáar mínútur, nýttu
þær út í æsar. Menn köstuðu sér í
gólfið eftir lausum boltum og reyndu
allt hvað þeir gátu að gera andstæð-
ingunum lífið leitt, héldu haus þegar á
móti blés og sýndu yfirvegun og
áræði og alltaf steig einhver upp þeg-
ar á þurfti að halda.
x x x
Að öðrum ólöstuðum var MartinHermannsson maður helgar-
innar. Hann skoraði 26 stig í hvorum
leik og hefur reyndar verið með yfir
20 stig í öllum fjórum leikjum riðils-
ins. Körfurnar voru í öllum regnbog-
ans litum, þristar með menn í andlit-
inu og sniðskot eftir að hafa platað
varnarmenn andstæðingsins upp úr
skónum. Martin lætur hlutina líta út
fyrir að vera auðvelda, en það er í
raun fáránlegt hvernig hann getur
með nokkrum gabbhreyfingum hrist
varnarmenn af sér og búið sér til gal-
opin færi. Þá er hann óttalaus og allt-
af tilbúinn að taka af skarið. Hann vill
vera með boltann þegar allt er undir
og hik er greinilega ekki í hans orða-
bók.
x x x
Það var gaman að heyra hvað leik-menn töluðu vel um veru sína í
landsliðinu um helgina. Hópurinn
nær greinilega vel saman, jafnt hinir
reynslumeiri, sem þeir, sem yngri eru
í hettunni. Á heimasíðu alþjóðlega
körfuboltasambandsins er að finna
eftirfarandi tíst frá Martin: „Vildi
óska þess að ég væri með öllum þess-
um gaurum í félagsliði og allir leikir
væru spilaðir í Höllinni. Vá hvað
þetta var gaman!!“- vikverji@mbl.is
Víkverji
En það er hið eilífa líf að þekkja þig,
hinn eina sanna Guð, og þann sem þú
sendir, Jesú Krist.
(Jóhannesarguðspjall 17.3)