Morgunblaðið - 03.03.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Svona verkefni hefur ekki komið
upp hjá okkur í slökkviliðinu á Ísa-
firði svo ég viti til og alla vega ekki
síðan ég byrjaði í þessu, en maður er
svo sem alltaf tilbúinn í hvað sem er,“
segir Hlynur Kristjánsson, varðstjóri
á Ísafirði. Hann var annar tveggja
slökkviliðsmanna frá Ísafirði, sem
tóku þátt í leit að manni í Blágnípu-
jökli í Hofsjökli á miðvikudagskvöld.
Fjölmennt lið björgunarfólks var
kallað út til leitar og aðstoðar og seg-
ir Hlynur að samstarf allra aðila og
stjórnun verkefnisins hafi verið til
fyrirmyndar. Allt starfið hafi verið
unnið af fagmennsku.
Tilviljanir réðu
Hlynur segir að tilviljanir hafi ráð-
ið því að hann og nafni hans, Hlynur
Steinn Þorvaldsson, sem er í varaliði
slökkviliðs Ísafjarðarbæjar en jafn-
framt í lögreglunni, hafi farið í þetta
verkefni, en þeir eru þjálfaðir og
reyndir reykkafarar. Þyrla Land-
helgisgæslunnar hafi verið í eftirlits-
flugi fyrir vestan þegar útkallið kom
og metið hafi verið að fljótlegast væri
að óska eftir aðstoð á Ísafirði.
Þeir hafi þegar brugðist við og tek-
ið með sér sitt hvort reykköfunar-
tækið og aukakúta með lofti, auk
slökkvigalla. Verkefnið hafi verið að
nota búnaðinn í hellinum við jökulinn
til eiturefnaköfunar vegna lélegra
loftgæða.
„Veðuraðstæður voru þannig að
ekki var hægt að lenda við hellinn,
svo þyrlan lenti 3-4 kílómetra frá
slysstað,“ segir Hlynur Kristjáns-
son. „Þaðan fórum við á vélsleðum
starfsmanna í Kerlingarfjöllum að
hellinum og vorum komnir þangað
upp úr klukkan átta um kvöldið, en
við þessar aðstæður er maður svo
sem ekki að fylgjast nákvæmlega
með klukkunni.“
Þeir byrjuðu á því að meta að-
stæður og koma upp öryggislínum.
Að þeim undirbúningi loknum fóru
Ísfirðingarnir inn í hellinn. Hlynur
segir að aðkoman að hellinum hafi
ekki verið erfið þó að snjórinn hafi
verið þungur og blautur og ekki hafi
þurft að síga inn í hellinn. Þeir hafi
komið inn í stóra hvelfingu og þar
hafi þeir fljótlega fundið manninn,
en hann var þá látinn. Dánarorsök
liggur ekki fyrir.
Gildi brennisteinsdíoxíðs var þá orð-
ið mjög hátt og segir Hlynur að hann
hafi fengið upplýsingar um að ef gildin
færu yfir 50 væru þau illviðráðanleg.
Inni í hellinum hafi þau hins vegar
toppað í yfir 250 mælieiningum.
Var að taka til kvöldmatinn
Þeir nafnarnir fóru með þyrlunni til
Reykjavíkur og voru komnir upp í
rúm í Slökkvistöðinni í Hafnarfirði um
klukkan fjögur um nóttina. „Það er
mjög gott samstarf á milli slökkviliða
og þeir höfðu pláss fyrir okkur,“ segir
Hlynur. Heim til Ísafjarðar var síðan
flogið með fyrstu vél á fimmtudags-
morgun.
Hlynur segir að vissulega sé það
sérstakt að menn séu fluttir um lang-
an veg vegna útkalla, en í starfi
slökkviliðsmanns megi búast við
ýmsu. „Eftir venjulegan miðvikudag
var ég kominn heim og var að taka til
kvöldmatinn. Það hvarflaði ekki að
mér að klukkustundu síðar yrði ég
kominn um borð í þyrlu Landhelg-
isgæslunnar og væri á leið í átt að
Hofsjökli,“ segir Hlynur.
„Alltaf tilbúinn í hvað sem er“
Óvænt útkall tveggja slökkviliðsmanna á Ísafirði í Blágnípujökul í Hofsjökli
Bjuggu sig undir eiturefnaköfun Gott samstarf og svefnpláss í Hafnarfirði
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Á Ísafirði Í starfi slökkviliðsmannsins má búast við ýmsu. Nafnarnir Hlynur Kristjánsson og Hlynur Steinn Þorvaldsson á slökkvistöðinni í gærdag.
Alls fengu 9.024 starfsmenn Reykja-
víkurborgar greidd laun í janúar
2018. Þetta kemur fram í svari borg-
arstjóra og borgarritara við fyrir-
spurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins um búsetu starfsfólks
borgarinnar eftir sveitarfélögum.
Fyrirspurnin var lögð fram á
fundi borgarráðs 15. febrúar og
svarið var lagt fram á fimmtudaginn.
Með svarinu er birt tafla sem sýn-
ir hvernig skráð lögheimili starfs-
manna Reykjavíkurborgar dreifast
eftir sveitarfélögum. Þar eru talin
upp 69 sveitarfélög vítt og breitt um
landið. Athygli vekur að 104 starfs-
menn borgarinnar eru með skráð
lögheimili erlendis eða óskráð lög-
heimili.
Í töflunni má sjá að langflestir
starfsmannanna búa í Reykjavík,
eða 6.891, eða 76% starfsmanna. Þar
á eftir koma Kópavogur (692), Hafn-
arfjörður (328), Garðabær (197),
Mosfellsbær (196) og Seltjarnarnes
(115).
Þá vinna 58 Akureyringar hjá
Reykjavíkurborg, 53 Selfyssingar,
52 Akurnesingar, 22 Borgnesingar
og 22 Vestmannaeyingar svo nokkur
dæmi séu tekin. sisi@mbl.is
Alls 9.024
starfa hjá
borginni
Starfsmenn skráð-
ir í 69 sveitarfélögum
Svæði Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar nær frá Ísafirði upp á Dynjandisheiði, í
Álftafjörð og að Óshlíðargöngum. Bæirnir Ísafjörður, Suðureyri, Þingeyri
og Flateyri eru á svæði slökkviliðsins, auk Jökulfjarða og friðlandsins á
Hornströndum.
Þrír fastir starfsmenn eru nú í slökkviliðinu en að auki fjölmennt út-
kallslið í bæjunum fjórum. Sjálfstæð slökkvilið eru í Bolungarvík og
Súðavík, en liðin aðstoða hvert annað ef farið er fram á það.
Víðáttumikið svæði slökkviliðs
ÞRÍR FASTIR STARFSMENN OG FJÖLMENNT ÚTKALLSLIÐ
Umferðin í Hvalfjarðargöngunum í
febrúar dróst saman um 7% í sam-
anburði við sama mánuð í fyrra.
Linnulítil ótíð, ófærð og aðrar sam-
göngutruflanir setja því mark sitt á
umferðartölurnar, segir í frétt á vef
Spalar.
Það gerðist síðast fyrir tæpum
þremur árum, þ.e. í maí 2015, að
ökutækjum um Hvalfjarðargöng
fækkaði milli sömu mánaða ársins,
samkvæmt upplýsingum Gylfa
Þórðarsonar, framkvæmdastjóra
Spalar.
Þrátt fyrir samdráttinn nú hefur
umferð aðeins einu sinni verið meiri
í göngunum í febrúarmánuði frá því
þau voru tekin í notkun árið 1998.
Það var árið 2017.
Umferðin í nýliðnum febrúar á
hringveginum dróst saman um
2,6% sé tekið mið af sama mánuði
fyrir ári. Samdráttinn má líklega
rekja til tíðarfarsins sem var
óvenjuerfitt í mánuðinum, segir í
frétt á vef Vegagerðarinnar. Mest-
ur mældist samdrátturinn um Vest-
urland eða um 7,1% en umferðin
jókst hins vegar mest um teljara-
snið á Austurlandi eða um 9,1%.
Hvað einstaka teljarasnið varðar
þá dróst umferðin mest saman um
hringveg undir Hafnarfjalli eða um
10,6%. Aftur á móti varð mesta
aukningin um teljarasnið á Fagra-
dal á Austurlandi eða um 10,8%.
Þrátt fyrir samdrátt miðað við
síðasta ár mældist umferðin, í ný-
liðnum febrúar, sú næstmesta í
febrúarmánuði frá upphafi mæl-
inga.
Tvo fyrstu mánuði ársins 2018
hefur umferð um hringveginn auk-
ist um 1,5%. sisi@mbl.is
Ökutækjum fækkaði
í fyrsta sinn í þrjú ár
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kjartan Magnús-
son borgarfulltrúi
hefur tekið að sér
að vera pólitískur
ráðgjafi Eyþórs
Arnalds, borgar-
stjóraefnis Sjálf-
stæðisflokksins,
fyrir komandi
borgarstjórnar-
kosningar. Verði
Eyþór borgar-
stjóri að loknum kosningum mun
Kjartan verða aðstoðarmaður hans í
því embætti, segir í fréttatilkynn-
ingu frá borgarstjórnarflokknum.
Þá hefur Janus Arn Guðmundsson
blaðamaður verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokksins.
Kjartan mun að-
stoða Eyþór Arnalds
Kjartan
Magnússon