Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018 ✝ Arndís fæddistí Bæ við Súgandafjörð 24. desember 1937. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 24. febr- úar 2018. Foreldrar Arndísar voru Helga Þórlaug Guðmundsdóttir, f. 2.11. 1908, d. 12.6. 1963, og Þórð- ur Halldór Ágúst Ólafsson, f. 1.8. 1911, d. 4.12. 1983. Arndís var eina barn móður sinnar, Helgu Þórlaugar, en systkini hennar samfeðra eru: Þóra, f. 6.7. 1939, Ólafur Þórarinn, f. 8.12. 1940, d. 6.9. 1998, Lilja, f. 13.6. 1943, d. 24.5. 1948, Pétur Einir, f. 9.12. 1949, og Þorvaldur Helgi, f. 22.12. 1953. Arndís giftist Sverri Sverris- syni, f. 12.8. 1933, d. 1.8. 2007. Arndís og Sverrir skildu en sam- an eignuðust þau tvo syni og tóku að sér einn fósturson. Synir þeirra eru Guðþór Sverrisson, f. 28. febrúar 1961, maki Erna eiga þrjú börn og eitt barnabarn. Arnar, f. 8. febrúar 1968, maki Ingveldur Guðmundsdóttir, f. 22. ágúst 1968. Þau eru búsett í Stórholti í Dalabyggð og eiga fjögur börn og tvö barnabörn. Arndís ólst upp hjá Helgu móður sinni í Bæ við Súganda- fjörð en þar bjuggu þær mæðgur ásamt Þóreyju systur Helgu, Guðmundi manni hennar og dætrum þeirra, þeim Arínu og Þórdísi. Faðir hennar bjó á Stað við Súgandafjörð með konu sinni Jófríði Pétursdóttur og þeirra börnum, systkinum Arndísar samfeðra. Arndís stundaði nám við Hús- mæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði 1956-1957. Hún var bú- sett í Reykjavík 1957-1962, var húsfreyja á Bersatungu í Saurbæ í Dalasýslu 1963-1990, vann á hjúkrunarheimilunum Skjóli og Laugaskjóli í Reykjavík 1991- 2006. Hún var búsett á Suðureyri við Súgandafjörð 2011-2013 en síðustu æviárum sínum eyddi hún á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Silfurtúni í Búðardal. Arndís var listhneigð og eitt aðaláhugamál hennar seinni árin var að mála myndir á meðan heilsan leyfði. Útför Arndísar fer fram frá Staðarhólskirkju í Saurbæ í dag, 3. mars 2018, kl. 14. Björg Guðmunds- dóttir, f. 20. ágúst 1963, d. 4. júlí 2010. Þau voru búsett í Stykkishólmi og áttu saman einn son, tvo fóstursyni og þrjú barnabörn. Sambýliskona Guð- þórs er Steinunn Pétursdóttir, f. 24 maí 1962, þau eru búsett í Stykkis- hólmi. Sigurdór Sverrisson, f. 11. maí 1962, d. 20. maí 1964. Bene- dikt J. Sverrisson (fóstursonur), f. 14. desember 1959, maki Mar- grét Þórarinsdóttir, f. 6. febrúar 1959. Benedikt og Margrét skildu en eiga saman þrjár dætur og eitt barnabarn. Benedikt er búsettur á Spáni. Sambýlis- maður Arndísar 1963-1990 var Eysteinn Þórðarson, f. 31.3. 1924, d. 13.4. 2015. Arndís og Ey- steinn slitu samvistum en saman eignuðust þau tvo syni. Synir þeirra eru Þórður Halldór, f. 26. apríl 1964, maki Sigríður Ástrún Kjartansdóttir, f. 23. janúar 1967. Þau eru búsett á Ísafirði og Elskulega systir. Komin er stóra kveðjustundin sem enginn fær breytt. Ekki eins og við gerðum er við skottuðumst fram og til baka milli bæja, fór- um alltaf lengri leiðina og dróg- um hana á langinn til að geta masað sem mest. Við vorum sam- feðra og ólumst því upp hvor sín- um megin við ána, þú í Bæ og ég á Stað. Gæfa okkar var hin góða vinátta á milli bæjanna og mæð- ur okkar beggja reyndust okkur einstaklega vel. En báðar kvöddu þær alltof ungar, aðeins 55 ára. Reyndar hjálpuðust allir að í Dalnum okkar heima, vinir á hverjum bæ. Tvíbýli í Bæ og Stað, Sólstaðir með Sollu vin- konu og Vatnadalur er fór í eyði. Jólaboðin á milli bæjanna eru ólýsanlegar perlur í minninga- sjóði. Allt þetta fólk er horfið sjónum okkar og börnin að týn- ast líka, alltof snemma sum, eins og vinkonurnar litlu Lilja systir og Kristín prests. Og bræður þeirra, Ólafur og Snorri, fara í fullu starfi þjóðþekktir, og síðast Guðný í Bæ. Áður hafði mikil hol- skefla riðið yfir fremra heimilið er hjónin þar létust í blóma lífs- ins frá dætrunum Ínu og Dísu. Þá sá ég föður okkar bregða mest, er hann frétti lát þessa vin- ar síns. En æska okkar var þó yndisleg og við systkinin urðum sex. Þú varst létt og lífsglöð, elskaðir dans og söng. Þú fórst að Steinastöðum og í skólann að Laugarlandi. Þú komst mátulega heim er Lilja mín fæddist. Alltaf hlýtt á milli ykkar sem og allra minna barna, tvö í sveit hjá þér. Haustið ’57 fórstu suður og vannst í Iðnó og hafðir þú yndi af því að rifja upp kátu daga þína þar. Á Ægisíðunni hefur þú svo búskap með Sverri. En þá kemur áfallið. Bæjarhjónin bæði dáin. Missir þú fóstur en þið takið heim nýfæddan dreng er þið ætt- leiðið og eignist síðan tvo aðra drengi. En þá kemur annað áfall- ið. Þið skiljið og þú kemur heim. Um vorið ferðu sem ráðskona í Bersatungu og er ykkur vel tek- ið. En þá deyr móðir þín en lífið heldur þó áfram og þið Eysteinn eignist dreng með vorinu og lífið brosir við að nýju. Traustur mað- ur og fjórir yndislegir synir. Þá ríður stærsta holskeflan yfir. Sigurdór litli, tveggja ára, drukknar í ánni. Engin orð lýsa skelfingu þeirrar móður er ber látið barn sitt heim. Slíkt áfall of- an á allt setur sitt ævarandi mark. En sem betur fer rofar æ aftur til og sólargeislar ná að skína og þið eignist annan son. Og margar yndislegar stundir áttum við systkinin hjá ykkur Eysteini í Bessó meðan það varði. Voruð þið vinmörg og samtaka að gera vel við gesti, tíðum mikill gestagangur. Líkt- ist þú þá mjög föður okkar, hress og hrókur alls fagnaðar. Og litagleðin og listfengin lýstu upp grámóðu lífsins. Þannig viljum við systkinin muna þig og þökkum af alhug allar yndisleg- ar stundir. Í Guðs friði, Þóra, Pétur og Þorvaldur Þórðarbörn. Elsku Addý okkar. Kallið er komið, það er sér- stakt til þess að hugsa að það séu 20 ár í haust síðan pabbi fór og núna þú. Mikið megum við vera þakklát fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum með þér. Ég lít á það sem algjör for- réttindi að ná 80 ára aldri og finnst yndislegt til þess að vita að slíkt sé mögulegt, því við það að missa föður sinn ung, þá hef ég ávallt litið svo á lífið sé í dag en ekki endilega á morgun. Ég man hvað var gaman að stoppa í Bessatungu hjá ykkur hjónum þegar ég ferðaðist með pabba og mömmu sem barn enda ávallt líf og fjör á bænum. Við Heiðbrá, Ólöf Rebekka og Þór- ey Berta erum á margan hátt líkar Addý. Höfum gaman af skemmtunum, punta okkur og safna því sem okkur er kært. Það var um daginn sem vinkon- ur mínar sögðu við mig hvort ég þyrfti hjálp við að henda ein- hverjum bollum og glösum. Það er víst þannig í dag, að safna miklu þykir mjög sérstakt og það á við um okkur tvær. Þegar Addý flutti í borgina þá kynntumst við enn betur, hún var mjög dugleg að spjara sig, margir voru áhyggjufullir um að það yrði henni erfitt en nei, hún hafði rosalega gaman af því að vera til, leika sér og stóð sig vel. Gaf af sér og eignaðist vini alveg eins og í sveitinni. Gaman var að sjá gleðina þegar við héldum upp á 70 ára afmæl- ið, það var mjög gaman að geta glatt Addý á þeirri merku stundu. Hún var einstök kona og af- komendur geta verið stoltir af því að hafa átt svona yndislega mömmu, ömmu og tengda- mömmu sem kvartaði ekki þó hún hafi ávallt þurft að hafa mikið fyrir hlutunum og gengið í gegnum meira en nokkur móð- ir getur hugsað sér að ganga í gegnum. Það mótar mann svo sannarlega fyrir lífstíð. Ey- steinn var henni mjög kær og það var yndislegt að sjá hvað vin- átta þeirra óx með árunum. Hann var hennar allra besti vinur og missirinn var mikill þegar hann lést. Minning lifir um ókomna framtíð um frábæra frænku. Ég votta öllum aðstandendum mína dýpstu samúð. Áslaug Ólafsdóttir og fjölskylda. Elsku frænka, það er sárt að horfa á eftir þér en eitt sinn verða allir menn að deyja og þú náðir að verða áttræð og það er ekki sjálfgefið. Það þekktir þú vel sem móðir lítils drengs sem dó af slysförum. Þú áttir lífshlaup sem var ekki alltaf auðvelt en tókst því sem að höndum bar og hafðir styrk, trú og þrautseigju þegar á reyndi. Þú áttir mörg góð ár í Bersatungu með Eysteini og sonum ykkar en tókst ákvörðun á fullorðinsárum um að flytja til Reykjavíkur þar sem þú hafðir búið sem ung kona. Ég man að þú sagðir mér sögur frá því þeg- ar þú varst ung að vinna í Iðnó og hafðir mikla ánægju af og kynnt- ist þar mörgu skemmtilegu fólki hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Lífið leiðir mann oft áfram og undir þú þínum hag ágætlega í borginni, vannst á Skjóli og stundaðir fé- lags- og tómstundastarf á Vest- urgötu og fórst að mála myndir af miklum krafti, sem eru orðnar ótrúlega margar og skreyta veggi á heimilum vina og ætt- ingja. Síðan leiddu örlögin þig aftur vestur til Súgandafjarðar þar sem Þóra systir þín var þín stoð og stytta og við frændfólk þitt tókum þér opnum örmum og það var gott að fá þig aftur í fjörðinn. Lífsins hringur lokaðist þegar þú fluttir aftur í Dalina á hjúkrunarheimilið Silfurtún þar sem þið Eysteinn bjugguð í góðu atlæti síðustu æviár ykkar beggja. Ég átti þess kost að koma reglulega við hjá þér á Silf- urtúni og það voru alltaf fagn- aðarfundir og kærleikur á milli okkar. Þú varst ung brún á brá með falleg brún augu og alltaf var stutt í glettni og fallegt bros. Þú varst félagslynd og hafðir gaman af dansi og söng og ég gleymi því ekki þegar við frænk- urnar fórum upp á svið í Hnífsdal á kosningavöku þar sem fram- bjóðendur áttu að sprella eitt- hvað og við sungum við undirleik Óla í Ríó tríói „Vorið er komið og grundirnar gróa “ og fórum létt með það. Nú gengur þú út í vorið á öðru tilverustigi og hittir þar fyrir alla þá sem hafa kvatt og þú hefur elskað. Ég kveð þig með söknuði og þakka allar góðu stundirnar okkar saman. Öllum afkomend- um þínum votta ég dýpstu samúð og þakka starfsfólkinu á Silfur- túni í Búðardal fyrir að hafa hugsað vel um þig og góðar mót- tökur. Vorið er komið, og grundirnar gróa, gilin og lækirnir fossa af brún, syngur í runni, og senn kemur lóa, svanur á tjarnir og þröstur í tún. Nú tekur hýrna um hólma og sker, hreiðra sig blikinn og æðurin fer, hæðirnar brosa og hlíðarnar dala, hóar þar smali og rekur á ból, lömbin sér una um blómgaða bala, börnin sér leika að skeljum á hól. (Jón Thoroddsen) Guð geymi þig, frænka. Lilja Rafney Magn- úsdóttir alþingismaður. Arndís Þórðardóttir Hjartkær móðir okkar og amma,ÓLÖF PÁLSDÓTTIR myndhöggvari, lést miðvikudaginn 21. febrúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 5. mars klukkan 15. Hildur Helga Sigurðardóttir Ólafur Páll Sigurðsson Óðinn Páll Ríkarðsson Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, ÁSGEIR TÓMASSON frá Reynifelli, Rangárvöllum, síðast til heimilis að Kollabæ í Fljótshlíð, lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 23. febrúar. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 5. mars klukkan 13.00. Fanney Tómasdóttir Trausti Tómasson Unnur Tómasdóttir Karl Reynir Guðfinnsson Birgir Tómasson og systkinabörn Okkar ástkæri SALÓMON GUNNLAUGUR GÚSTAF KRISTJÁNSSON, Erluhrauni 9, Hafnarfirði, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeildinni í Kópavogi 26. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 7. mars klukkan 13. Blóm og kransar er vinsamlegast afþakkað en þeim er vildu minnast hans er bent á Ljósið og Krabbameinsfélagið. Ingibjörg Kjartansdóttir G. Margrét Salómonsdóttir Júlíus Jóhannesson Hulda S. Salómonsdóttir Steingrímur Ólason Kjartan F. Salómonsson Kolbrún K.B. Alexandersdóttir barnabörn og langafabörn Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGA DAGMAR KARLSDÓTTIR, Lönguhlíð 3, Reykjavík, lést sunnudaginn 25. febrúar á Landspítalanum við Hringbraut. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 12. mars klukkan 13.00. Helga Karitas Nikulásdóttir Einar Nikulásson Karl Kristján Nikulásson Sólrún Valdimarsdóttir Þuríður Ingunn Nikulásdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, WALTER KETEL matreiðslumeistari, Eskivöllum 9a, Hafnarfirði, lést á heimili sínu laugardaginn 24. febrúar. Útför hans fer fram frá Víðistaðakirkju mánudaginn 12. mars klukkan 13. Kristjana S. Ólafsdóttir Andreas Ólafur Ketel Elín Karol Guðmundsdóttir Róbert Veigar Ketel Inga Dröfn Sváfnisdóttir Hugrún Helga Ketel Óðinn Ólafsson barnabörn Ástkær eiginmaður minn, stjúpfaðir og afi, LOFTUR ALTICE ÞORSTEINSSON verkfræðingur, Laugarásvegi 4, sem andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans aðfaranótt mánudags 26. febrúar, verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 6. mars klukkan 15. Sigríður C. Victorsdóttir Arnar Þór Sveinsson Kolbrún Arnarsdóttir Kári Arnarsson Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, ELÍSABET INGÓLFSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, lést þriðjudaginn 27. febrúar á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund. Útför hennar fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 8. mars klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á að styðja starfsemi UNICEF á Íslandi. Ingólfur Arnarsson Elísabet Indra Ragnarsdóttir Þorlákur Jón Ingólfsson Indriði Arnar Ingólfsson Ragnar Steinn Ingólfsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR HELGA ÍVARSDÓTTIR, Hátúni 8, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 22. febrúar. Útför hennar fer fram í Langholtskirkju þriðjudaginn 6. mars klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja minnast hennar er bent á SKB, Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Guðrún Stefanía Guðjónsd. Sigurður V. Gunnarsson Sólrún Ása Guðjónsdóttir Rúnar Friðgeirsson Vignir Guðjónsson Guðný Atladóttir Hraunfjörð Guðjón Guðjónsson Margrét Grétarsdóttir barnabörn og langömmubörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.