Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018 Vordagar í Dublin sp ör eh f. Vor 7 Spennandi ferð til Dublin á Írlandi þar sem við kynnumst höfuðborg eyjunnar grænu ásamt næsta nágrenni hennar. Við förum í dagsferð suður af borginni, skoðum Wicklow fjöllin, smábæinn Avoca og kastalaþorpið Glendalough. Við heimsækjum bæinn Waterford og margfrægar kristalverksmiðjur og ökum um einstaklega falleg héruð. 9. - 13. maí Fararstjóri: Gísli Einarsson Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 139.800 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Ómar Friðriksson Andri Steinn Hilmarsson „Við erum mætt aftur til leiks og ætlum okkur fyrri styrk,“ sagði Logi Einarsson, formaður Samfylking- arinnar, í setningarræðu sinni á landsfundi flokksins síðdegis í gær. Logi minnti flokksfélagana á að Samfylkingunni gæfist ,,raunar gull- ið tækifæri til frekari sóknar eftir tvo mánuði, í sveitarstjórnarkosn- ingum. Þar er afar mikilvægt að Samfylkingin og þeir listar sem hún á aðild að nái góðri niðurstöðu,“ sagði hann. Kjöri formanns og varaformanns var lýst á landsfundinum í gær en Logi var einn í framboði til for- manns og Heiða Björg Hilmisdóttir ein í framboði til varaformanns á fundinum. Logi fékk öll greidd at- kvæði fundarmanna. Reiðarslag í kosningunum Logi sagði í setningarræðunni að þrátt fyrir reiðarslag í þingkosn- ingum fyrir rúmu ári hefði flokk- urinn náð að lifa af, m.a. vegna þess að sveitarstjórnarfólkið hélt fánan- um á lofti. „En það er auðvitað á engan hallað þó að ég nefni sér- staklega borgarstjórnarflokkinn í Reykjavík, sem vegna stærðar er okkar mikilvægasta vígi. Á okkar vakt og Reykjavíkurlist- ans hefur Reykjavík gjörbreyst, frá umkomulitlum úthverfabæ í iðandi, nútímalega borg. Þar hefur þétting byggðar skipt miklu og borgarlína mun reka smiðshöggið á,“ sagði Logi. „Borgin er orðin fallegri, heilsusamlegri og loks eru þessi áform jafnvel líkleg til þess að bjarga ríkisstjórninni fyrir horn í loftslagsmálum.“ Hver vitleysan rekur aðra á ríkisstjórnarheimilinu Logi beindi spjótum sínum að rík- isstjórninni og sagði ólíku saman að jafna, stjórn höfuðborgarinnar og landsstjórninni, þar sem hver vit- leysan ræki aðra. „Ríkisstjórnin ræður ekki við, eða hefur ekki áhuga á, að efla félagslegan stöðugleika. Það að langstærstu aðildarfélögin innan ASÍ vilji segja upp kjarasamn- ingum segir ákveðna sögu. Getuleys- ið til að fjármagna bætt kjör al- mennings er ömurlegt og ógnar félagslegum og efnahagslegum stöð- ugleika. Vopnaflutningur til stríðshrjáðra landa var heimilaður á sama tíma og framlög til þróunarmála og móttaka flóttamanna eru langt frá eðlilegum viðmiðum,“ sagði Logi í ræðunni. Lögð fram tillaga að stefnu Umræða og áherslur vegna sveit- arstjórnarkosninganna í vor eru áberandi á landsfundinum sem lýkur í dag. Yfirskrift fundarins er „Frelsi – jafnrétti – samstaða“ . Samþykkja á nýja málefnastefnu Samfylking- arinnar á landsfundinum en ítarleg tillaga að stefnu flokksins í fjölda málaflokka var lögð fyrir fundinn undir yfirskriftinni Eitt samfélag fyrir alla. Á síðari degi landsfundarins sem byrjar kl. 9 í dag fer fram kynning og kosning ritara, gjaldkera og for- manns framkvæmdastjórnar. Þá verður haldinn hádegisfundur undir yfirskriftinni #Metoo þar sem ný stefna Samfylkingarinnar verður kynnt. Kl 16 flytur Jóhanna Sigurð- ardóttir, fyrrverandi forsætisráð- herra og formaður flokksins, ávarp og fundinum lýkur svo á stefnuræðu nýkjörins formanns Samfylking- arinnar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri flutti ávarp á fundinum. Sagði hann andstæðinga Samfylkingarinnar skorta framtíðarsýn og væru fastir á 20. öldinni í úreltum kreddum og gamaldags hugmyndafræði. „Það eru engar útfærslur, engar hugmyndir, ekkert plan fyrir fram- tíðina. Planið er fortíðin.“ „Ætlum okkur fyrri styrk“  Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði Reykjavík vera mikilvægasta vígi flokksins við setningu landsfundar  Afgreiða á ítarlegar tillögur að stefnu flokksins á landsfundinum Morgunblaðið/Árni Sæberg Forystan Logi Einarsson og Heiða Björg Hilmisdóttir á landsfundi Samfylkingarinnar í gærkvöldi, eftir að þau höfðu verið endurkjörin formaður og varaformaður flokksins. Hlaut Logi öll greidd atkvæði landsfundarmanna. „Full þátttaka í sameiginlegum markaði Evrópuríkja er lykil- atriði til að halda framsæknum fyrirtækjum í landinu, fjölga störfum og ýta undir nýsköpun. EES-samningurinn dugir ekki til að tryggja hagsmuni þjóðar- innar til lengri tíma,“ segir í til- lögu utanríkismálanefndar Samfylkingarinnar um utanrík- ismál í drögum að stefnu flokksins á landsfundinum. Áhersla er lögð á að þjóðar- atkvæðagreiðsla fari fram um framhald aðildarviðræðna við ESB og jafnframt á að fríversl- unarsamningar verði gerðir við Bretland vegna útgöngu Breta úr Evrópusambandinu (Brexit). omfr@mbl.is Fríverslun við Bretland UTANRÍKISMÁL Morgunblaðið/Árni Sæberg Ræða Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, flutti ræðu á landsfundinum, aðallega um helstu mál í borginni. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Íslandsbanki hefur lækkað vexti á um það bil 600 húsnæðislánum frá árun- um 2004-2010 þar sem skuldabréf lán- anna innihalda samskonar ákvæði um vaxtaendurskoðun og fjallað var um í dómi Hæstaréttar í október 2017. Endurgreiðslurnar munu nema um 800 milljónum króna. Guðmundur Birgisson, forstöðu- maður útlána á einstaklingssviði hjá Íslandsbanka, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að bankinn hefði áætlað, þegar dómur féll í Hæstarétti í október í fyrra, að kostnaður fyrir bankann gæti numið allt að 800 millj- ónum króna. „Nú, þegar við erum langt komin að reikna kostnaðinn, lít- ur út fyrir að mat bankans í fyrra hafi verið nokkuð rétt,“ sagði Guðmundur. Fleiri lán mynda endurgreiðslu „Það eru um 600 lán sem við þurft- um að lækka vextina á, en það eru fleiri lán sem munu mynda endur- greiðslu, af því að þau kunna að hafa verið á hærri vöxtum en þau áttu að vera, einhvern tíma á lánstímanum en voru það ekki einmitt núna,“ sagði Guðmundur. Guðmundur var spurður hvort 800 milljóna króna endurgreiðslur hefðu mikil áhrif á fjárhag bankans: „Þetta eru auðvitað miklir peningar, en Ís- landsbanki er stór banki.“ Fram kemur í frétt frá Íslands- banka að þessa dagana sé unnið að því að endurgreiða ofgreidda vexti og fái viðskiptavinir tilkynningu um leið og þeirra inneign er tilbúin til afgreiðslu. Eingöngu sé um að ræða verðtryggð húsnæðislán sem veitt hafi verið á áð- urnefndu tímabili og séu með skil- mála um vaxtaendurskoðun á fimm ára fresti. „Inneign er reiknuð þannig að fyrir hvern gjalddaga sem greiddur hefur verið er athugað hvort vaxtaprósent- an á þeim gjalddaga var hærri en upphaflegir vextir lántaka. Ef vextir voru hærri á viðkomandi gjalddaga en í upphafi er mismunurinn reikn- aður og honum haldið til haga. Þannig er farið yfir alla greidda gjalddaga. Inneign viðskiptavinar er vaxta- reiknuð frá hverjum gjalddaga fyrir sig til uppgjörsdags. Við útreikning inneignar er tekið tillit til þess hvort lán voru í greiðslujöfnun og vextir greiðslujöfnunarreiknings eru leið- réttir líkt og vextir lánsins þegar það á við. Ef umrætt lán er í vanskilum er inneign fyrst ráðstafað til greiðslu vanskilanna og það sem eftir stendur er þá laust til útborgunar,“ segir orð- rétt í frétt bankans. Þar kemur fram að viðskiptavinir sem eigi inneign hjá bankanum muni fá tilkynningu með leiðbeiningum um ráðstöfun inneignar. Morgunblaðið/Ófeigur Norðurturninn Höfuðstöðvar Ís- landsbanka eru í Norðurturninum. Bankinn endurgreiðir um 800 milljónir króna  Íslandsbanki lækkar vexti á um 600 húsnæðislánum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.