Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018 Atlaga einkarek- inna fjölmiðla, einkum ljósvakafjölmiða, að Ríkisútvarpinu, sem hófst fyrir allmörgum árum með því að þeir kröfðust þess að RÚV yrði tekið af auglýs- ingamarkaði heldur áfram. Nú með stuðn- ingi nefndar sem menntamálaráðherra skipaði. Rökin eru þau að sam- keppnisstaða einkareknu fjöl- miðlanna gagnvart RÚV væri mjög veik. Þeir berðust í bökkum og væru reknir með tapi. Nú er það svo að allir ljósvakafjölmiðlar, sem eru með daglega starfsemi, eru stofnaðir áratugum eftir að RÚV hóf starfsemi sína. Sama á við um prentmiðla, aðra en Morg- unblaðið, sem er eldra en RÚV. Þessi ítrekaða krafa einkareknu fjölmiðlanna er einfaldlega krafa þeirra um ríkisstyrk. Krafa um að þeim verði færðar tekjur sem RÚV hefur haft af auglýsingum frá upphafi. Þetta er ekki einungis krafa um að svipta RÚV tekjum og færa þær til þeirra. Þetta er einnig krafa um að svipta notendur RÚV, sem er meirihluti þjóðarinnar, þeirri þjónustu og dagskrár- efni, sem tilkynningar og auglýsingar eru. Sjöfalt áskrift- argjald RÚV Greiðendur út- varpsgjalds, sem er þorri landsmanna, eru í raun áskrifendur að RÚV, hljóta að eiga rétt á að njóta auglýsinga og þeirra upplýsinga, sem í þeim fel- ast, í dagskrá sinna miðla. Ljós- vakafjölmiðlarnir, sem ekki selja sig í áskrift, hafa væntanlega reiknað með því í upphafi að afla auglýsingatekna í þeirri sam- keppni, sem þeir stofnuðu til við RÚV og Stöð 2. Stöð 2, sem er áskriftarfjölmiðill, býður ódýrasta _áskriftarpakkann“ á kr. 9.990,- á mánuði eða kr. 119.880 á ári á meðan útvarpsgjald er á ein- stakling kr. 17.100,- á ári, sem RÚV fær reyndar ekki allt. Áskrifendur Stöðvar 2 greiða sjö- falt áskriftargjald RÚV fyrir að horfa á auglýsingar í dagskrá þess sjónvarps. RÚV hefur á und- anförnum árum orðið að draga úr starfsemi sinni vegna þess að póli- tískir ráðamenn hafa viljað tak- marka getu RÚV til dagskrárgerð- ar og því tekið hluta útvarpsgjaldsins til annarra þarfa ríkisins. Auglýsendur þvingaðir Takmörkun á starfsemi RÚV er að sjálfsögðu til hagsbóta fyrir einkareknu fjölmiðlana. Ljós- vakafjölmiðlar, sem ekki eru í áskrift, ættu að leita annarra leiða en að sækja í tekjur RÚV til að tryggja starfsemi sína. Þeir stofn- uðu til samkeppni við RÚV, sem fyrirsjáanlega yrði erfið, og eiga því að að sýna yfirburði einka- reksturs með því taka áhorfið frá RÚV með betri dagskrá. Það væri heilbrigð samkeppni. Auglýsendur fara þangað sem áhorfið er mest. Nú er áhorf og hlustun mest á RÚV og því væntanlega mestur árangur af því að auglýsa þar. Talsmönnum einkareknu fjöl- miðlanna virðist þykja það réttlátt gagnvart auglýsendum, sem þeir sækjast eftir viðskiptum við, að takmarka val þeirra á fjölmiðlum til að birta í auglýsingar sínar og þvinga þá til að auglýsa ekki þar sem áhorf og hlustun er mest. Slíkt er undarlegt réttlæti og furðuleg túlkun á anda hinnar frjálsu samkeppni, en það eru ein- mitt þeir, sem í stjórnmálum eru, og telja sig hina einu sönnu tals- menn frjálsrar samkeppni og við- skiptafrelsis, sem ákafast vilja taka RÚV af auglýsingamarkaði. Nefndin var ekki einhuga Nefndin, sem mennta- og menn- ingarmálaráðherra skipaði til að fjalla um bætt rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla, skilaði í janúar skýrslu um umfjöllunarefni sitt og tillögum til úrbóta á rekstrarumhverfi fjölmiðla. Nefndin var ekki einhuga. Meiri- hluti nefndarinnar lagði til að RÚV færi hið fyrsta af auglýs- ingamarkaði og lagðist þar með á sveif með hagsmunum einkareknu fjölmiðlanna gegn hagsmunum al- mennings og auglýsenda. Ef einkareknir fjölmiðlar þurfa rík- isaðstoð við að auka umfang sitt á það ekki að þýða að þeir fái að ganga í tekjustofna RÚV með þeim hætti sem stjórnendur einkastöðvanna, og talsmenn þeirra í stjórnmálunum, leggja til. En á ríkið að styrkja einkarekna fjölmiðla? Já það getur verið æskilegt og jafnvel nauðsynlegt til að stuðla að málefnalegri umræðu um þjóðmál og landshlutabundin málefni ásamt margs konar menn- ingarlegri starfsemi, sem héraðs- fréttablöð og minni sjónvarps- stöðvar gera í dag. Þannig styrkir ættu að ákvarðast í fjárlögum samkvæmt reglum um slíkar styrkveitingar án þess að leiða til beinnar skerðingar á starfsemi RÚV. Eftir Árna Þormóðsson Árni Þormóðsson Höfundur er eldri borgari. Á að taka RÚV af auglýsingamarkaði? »Ef einkareknir fjöl- miðlar þurfa ríkisað- stoð við að auka umfang sitt á það ekki að þýða að þeir fái að ganga í tekjustofna RÚV. Í Morgunblaðinu 26. þessa mánaðar segir Silja Dögg Gunnarsdóttir, þing- maður og fyrsti flutningsmaður frum- varps um bann og refsingu við um- skurði drengja, að henni hafi komið andstaða og fram- ganga þjóðkirkju- fólks í opna skjöldu. Eins og fram kemur í umsögn biskups til Al- þingis þá hefur ekki verið fjallað um umskurðarmál á vettvangi þjóðkirkjunnar, hvorki í kenn- inganefnd né á kirkjuþingum. Hins vegar á hin kristna afstaða til umskurðar ekki að vefjast fyrir neinum enda hefur hún verið skýr frá því á dögum Páls postula. Í prédikun sl. sunnudag í Hall- grímskirkju lagði séra Birgir Ás- geirsson út af textum dagsins um Jak- obsglímuna, ráðlegg- ingum Jakobs postula til þeirra sem líður illa og trú kanversku kon- unnar. Í þessu sam- hengi hugleiddi hann umskurðarmálin og komst að þeirri af- dráttarlausu nið- urstöðu að umskurður barna sé málefnalaus aðför að vellíðan þeirra. Rökstuðningur hans á erindi í þá umræðu sem frumvarpið hefur vakið: Vernd Barnasáttmálans „Heilbrigðiskerfi, uppeldis- og menntakerfi eru stoðkerfi hvers siðaðs samfélags. Þar standa for- eldrar, kennarar og heilbrigð- isstéttir saman um að hlúa að hverri kynslóð og efla þroska hennar og dáð. Af þeim ástæðum m.a. hafa orðið til sáttmálar þar sem margar þjóðir safnast um grundvallaratriði er varða heil- brigði, vellíðan og framfarir. Börn eru þar ávallt höfð í fyrirrúmi. Réttlæti, raunsæi og miskunnsemi eru þar leiðarljós. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóð- anna hnykkir á þessum viðhorfum og þar stendur m.a.: Barnasátt- málinn „felur í sér alþjóðlega við- urkenningu á að börn þarfnist sérstakrar verndar umfram hina fullorðnu“. Og ennfremur: „Öll börn skulu njóta réttinda Barna- sáttmálans án tillits til kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungu, trú- ar, stjórnmálaskoðana, ætternis, fötlunar, félagslegrar stöðu eða annarra aðstæðna þeirra eða stöðu eða athafna foreldra þeirra.“ Umskurn hjartans Umskurn barnungra stúlkna hefur fengið töluverða umfjöllun og það er nú, sem betur fer, al- mennt viðurkennt, að slík aðgerð er grimmileg, hættuleg og skaðleg fyrir lífstíð. Umskurn drengja er um þessar mundir mikið rædd, og reyndar hefur komið fram tillaga um afnám slíkrar aðgerðar á Al- þingi, og að hún verði jafnframt gerð refsiverð. Margar tilvitnanir má finna í Eftir Einar Karl Haraldsson Einar Karl Haraldsson Málefnalaus aðför að vellíðan barna Árið 2005 var kynnt til sögunnar nýtt leiða- kerfi fyrir Strætó. Það var kallað „Stofnleiða- kerfi“, á ensku „think train, drive bus“. Þá- verandi stjórn- arformaður Strætó, Björk Vilhelmsdóttir, sagði „Með nýja leiða- kerfinu verður Strætó raunhæfur kostur fyrir fólk sem vill komast í vinnuna ...“ (hafnarfjordur.is, 26 júlí 2005). Samkvæmt skoðanakönnun frá þeim tíma, líkt og í nýlegri skoð- anakönnun, biðu höfuðborgarbúar eftir „raunhæfum“ Strætó. Allir ætl- uðu í Strætó! Ekið var á tíu mínútna fresti á stofnleiðum enda stóð í fréttatilkynningu Strætó „Mark- miðið er að efla almennings- samgöngur þannig að þær verða raunhæfur kostur. Ferðatími stytt- ist og skiptingum fækkar“. Þessi útópía vitringanna endaði með algjöru „lestarslysi“, kostn- aðurinn við Stofnleiðakerfið hljóp á milljörðum. Hvar var allt fólkið sem vildi nota Strætó? Það kom aldrei í leitirnar. Af- leiðingarnar fyrir Strætó voru skelfileg- ar, niðurskurður og aftur niðurskurður. Að lokum þurfti rík- issjóður að leggja nokkra milljarða í reksturinn. Höfuðborgarbúar sátu eftir í umferð- arteppu, engar skyn- samlegar vegaúrbætur hafa litið dagsins ljós í yfir tíu ár. Það er hið raunverulega vandamál, aðgerðir í vegamálum hafa ekki fylgt eftir aukinni bílaumferð. Höfðinu var einfaldlega stungið í sandinn. Borgarlínan Í dag heitir stofnleiðakerfið „Borgarlínan“. Þetta er nýi draumur vinstrimanna sem vilja skikka al- menning í Strætó og bjarga heim- inum. Meðal annars skrifar Sam- fylkingarmaðurinn Skúli Helgason „Skynsamlegasta leiðin er kraft- mikil uppbygging almennings- samgangna.“ (Fbl., 9. feb. 2018) Flestir farþegar Strætó eru náms- menn, innflytjendur, ferðamenn og hælisleitendur. Segi stundum að ég vinni í útlöndum! Hvar eru allir ís- lensku skattgreiðendurnir sem vilja ólmir komast í Strætó? Er Borg- arlínan töfralausnin sem allir eru að bíða eftir? Er einhver von til þess að umferð- armálin í höfuðborginni verði leyst af skynsemi fyrir alla, ökumenn einkabílsins sem og farþega Strætó? Því miður segir reynsla undanfar- inna ára „nei“. Samt er ekki eins og Reykjavík sé yfirþyrmandi stór- borg, á höfuðborgarsvæðinu búa að- eins um 230.000 manns. Að klúðra málefnum Strætó, og vegamálum almennt, hefur hingað til verið helsta niðurstaðan varðandi stefnu borgaryfirvalda. Þeir meira að segja breyttu Hlemmi í mathöll og úthýstu farþegunum! Breytist allt til batnaðar með Borgarlínunni? Eða endar Strætó sem rándýr hundakerra? Endar Borgarlínan í hundunum? Eftir Brynjólf G. Stefánsson »Hugleiðing um Borgarlínuna Brynjólfur G. Stefánsson Höfundur er vagnstjóri hjá Strætó. Þakka ber Björgvini Guðmundssyni fyrir greinir hans í Mbl. 8. og 21. febrúar sl. Þar bendir hann skil- merkilega á það him- inhrópandi ranglæti, sem aldraðir og ör- yrkjar verða fyrir. Þeir skulu gera sér að góðu röskar 200 þús. kr. mánaðarlega eftir um 7 þús. kr. hækkun á mánuði! Hvílík rausn!! 3% hækkun! Á sama tíma fá stjórnmálamenn og embættismenn 21-48% hækkun ofan á eina til tvær milljónir á mánuði og það jafnvel aft- urvirkt! Þeir fá sjö- til sextánfalda hækkun á sín háu laun að viðbættum fríðindum og hafa heldur ekki þurft að bíða eftir launahækkunum eins og aldraðir og öryrkjar hafa mátt þola. Þannig er hið skínandi réttlæti. Lái svo hver sem vill öldruðum og öryrkjum, þótt þeim sárni sísvikin loforð um hækkun ellilífeyris. Er þessi 3% „hækkun“ til að friða sam- vizkuna, að píra þessari „fúlgu“ í gamalt og slitið fólk? Er ríkisstjórn og alþingismönnum sama um orðspor sitt? Ef svo er, þá eru lítil geð guma. Mikið væri það notalegt að hafa dugmikla og röggsama menn á þingi, karla og konur efnda, ekki orðin tóm. En því miður lætur sumum vel að standa í pontu Alþingis með snyrtileg orð. Finnist einhverjum orðin þung, þá setji hann sig í spor þeirra, sem eru að sligast undan „þriggja prósenta“ ofurlaunum. Því skal undirritaður reyna að milda orð sín ögn með kvæði, sem hann hefir ort, og kallar það: VON GEGN VON Neyðin bitur næðir, nístir sál og kvistar von, sem grætur vanheit, virt með orðasnyrting. Nauð er hrokans niðji, níðist vald á auðnu, heggur náðarhöggi hinztu vörn þeim minnsta. Skortur þrönga skyrtu skorið hefir firum, sem um binda saman sárt, en eigi kvarta. Auð og glysi eyðir eldur, réttvís geldur laun, þeim svipta láni lítilmagnann grátinn. Þjóð mín, sjá hvað þáðir þú af valdagrúa: Bruðl, en samt þeir biðla brattir þig um skatta! Millíarðar milli mektarbokka vigta eins og fiður anzi einum goludansi. Ótal verða ýtar auðs af völdum snauðir, mitt í gullsins mætti megna smátt að gagni. Eigingirni ægir elsku, sem hið falska lýsir skæru ljósi, leynd svo verði hrundið. Hýrt í geði hjartans hvílir von, sem bælir allan kvíða, ella yrði lífið byrði. Andinn sækir yndi inn í hugarkynni, frjáls, þó bundinn frelsi fyrir Orð, sem varir. Víst, ó, Guð minn, vizku veitt þú getur beitta, svo að orðs með sverði svæfist ógn við hæfi. Ljós þitt sortann lýsi leiftrum með, svo aftur björt þín leið mér birtist, blessuð sólarkossum. Leng minn dag og löngun ljá mér, að ég fái enn um hríð að annast efni munahafnar. Dæm mig ei að dómi dauðans grimmu auðnar. Þökk þar enginn þekkir þylja hlýju máli. Blíðust gæzkan breiðir birtu inn í hjarta það, sem ást Guðs þíðir þótta hjá og ótta. Dreymir lífið drauma: Dýrð Guðs hylji jörðu. Hefir ráð svo hafið hæstur Guð í Kristi. Eftir Jón Hilmar Magnússon Jón Hilmar Magnússon »Mikið væri það notalegt að hafa dugmikla og röggsama menn á þingi, karla og konur efnda, ekki orðin tóm. Höfundur er orðabókarhöfundur. Von gegn von
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.