Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018 ✝ Óli Fjalar Óla-son fæddist á Eskifirði 18. maí 1964. Hann and- aðist á Heilbrigð- isstofnun Vestur- lands á Akranesi 23. febrúar 2018 Foreldrar hans eru Óli Fossberg Guðmundsson frá Akureyri, f. 13.5. 1936. d. 18.9. 2010, og Bára Guðmunds- dóttur frá Eskifirði, f. 3.9. 1936. Óli Fjalar kvæntist Önnu Kristínu Magnúsdóttur frá Bolungarvík 31. desember 1996. Foreldrar hennar eru Magnús Jakobsson frá Reykj- arfirði, f. 1.11. 1932, d. 20.12. 2015., og Bjarnveig Sigurborg Samúelsdóttir frá Dröngum, f. 5.7. 1940. Börn Óla Fjalars og Önnu Kristínar eru: Samúel Karl Ólason, f. 11.12. 1984, Stefán Viðar Ólason, f. 4.4. 1992, Heiður Björk Óladóttir, f. 19.8. 1975, maki Davíð Örn Helga- son, f. 30.5. 1978; Alda Björk, f. 14.6. 1977, maki Haraldur Harðarson, f. 12.3. 1975. Óli Fjalar var fæddur og uppalinn á Eskifirði. Hann fór ungur á sjóinn og hóf sjó- mannsferil sinn á Sæljóni SU. Hann fluttist síðan til Bolung- arvíkur árið 1984 þar sem þau Anna Kristín bjuggu að Hlíð- arstræti 21. Leiðin lá aftur á sjóinn og núna á Heiðrúnu ÍS 4. Óli Fjalar lauk prófi frá Skipstjórnar- og stýrimanna- skólanum á Dalvík árið 1991 en starfaði eftir það áfram á Heiðrúnu, mest sem stýrimað- ur. Hann var skipstjóri á Ós- eyri ÍS 4, seinna Guðrúnu Hlín BA 122, og Heiðrúnu þá GK 506. Heiðrún, seinna Ingi- mundur SH 335, var seld til Grundarfjarðar og þangað flutti fjölskyldan svo árið 2000. Síðustu 14 árin starfaði Óli sem stýrimaður á Helga SH 125. Útför Óla Fjalars verður gerð frá Grundarfjarðarkirkju í dag, 3. mars 2018, og hefst athöfnin klukkan 14. 1993. Barnabarn: Aþena Björk Vikt- orsdóttir f. 24. 7. 2012. Systkini Óla Fjalars: Jóhanna María Jensen, f. 16.9. 1953, maki Jónas Wilhelms- son, f. 21.7. 1954; Árni Sæbjörn, f. 26.10. 1957, maki Fanney Linda Kristinsdóttir, f. 30.1. 1957; Matthildur, f. 17.8. 1959, maki Benedikt Jón Hilmarsson, f. 21.5. 1957; Guðný Harpa, f. 31.3. 1961, maki Sigurður Lár- usson, f. 6.9. 1965; Ragnar Þór, f. 7.6. 1962, maki Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir,, f. 21.4. 1972; Guðmundur Karl, f. 7.4. 1968, maki Elín Hauksdóttir, f. 1.9. 1968; Hulda Kristín, f. 24.10. 1969, maki Andrés Kol- beinn Steingrímsson, f. 9.12. 1965; Þórey Mjöll, f. 26.4. 1971, maki Marjan Cekic, f. 18.12. 1970; Erla Rut, f. 18.3. Í dag kveðjum við hann Óla minn í hinsta sinn. Það er margs að minnast og margs að sakna. Við kynntumst unglingar á 1. maí balli á Eskifirði, ég 17 ára og hann 19 ára. Eitthvað leist honum vel á stelpuna því hann kom nokkrum dögum seinna og bauð mér á rúntinn, nýbúinn að skipta um vél í bílnum. Hann keyrði sem leið lá í gegnum Eskifjörð og út á sveit. Þar drap bíllinn á sér og við mátt- um ganga til baka. Upp frá því hafa leiðir okkar legið saman og við gengið saman æviveginn sem varð því miður allt of stuttur en við fáum ekki öllu ráðið. Óli fór 15 ára gamall á sjóinn eins og það var kallað. Hann var fljótur að læra til verka og var orðinn 2. stýrimaður 18 ára. Hann vann mestallan sjómanns- feril sinn ýmist sem skipstjóri eða stýrimaður. Við urðum ung foreldrar þegar Samúel fæddist. Átta árum síðar fæddist Stefán og Heiður kom svo ári síðar. Alla tíð var það þannig að þeg- ar ég var búin að keyra hann á bryggjuna byrjaði ég að bíða eftir að hann kæmi heim aftur. Það var yfirleitt létt andrúmsloft í kring- um Óla og alltaf stutt í grínið. Þegar hann kom í land var alltaf „sunnudagur“ hjá fjölskyldunni og allir glaðir. Ég veit hversu rík við vorum að eiga hann að, hann gerði einfaldlega allt sem hann gat fyrir okkur, elskaði okkur takmarkalaust. Óli átti stóran systkinahóp og það var alltaf mik- il gleði þegar þau hittust. Hann var mikill fjölskyldumaður og þótti ofurvænt um sitt fólk og móður sína, sem hann talaði við nánast daglega. Óli hafði alltaf eitthvað fyrir stafni. Hann einhvern veginn vissi hvernig allir hlutir virkuðu og gat gert við nánast allt. Hon- um féll aldrei verk úr hendi og fann sér ný verkefni ef ekkert var fyrirliggjandi. Það var bara er- lendis sem hann var í fríi því þar náði hann ekki í nein verkfæri. Við eyddum saman miklum tíma í Ingólfsfirði á hverju sumri ásamt foreldrum mínum. Það var hans draumastaður, þar voru allt- af næg verkefni. Hann og tengda- pabbi hans áttu sérstakt sam- band sín á milli. Þegar pabbi var orðinn lasinn og gat lítið gert unnu þeir saman sem einn maður, annar leiðbeindi og hinn smíðaði. Það er óhætt að segja að í Ingólfs- firði eigi hann fleiri handtök en nokkur annar. Fyrir tveimur árum greindist hann með ólæknandi krabba- mein. Það var ótrúlegt að fylgja honum í gegnum það ferli sem við tók. Ég vissi að hann var sterkur en hafði aldrei gert mér grein fyr- ir hversu sterkur hann var. Hann hélt áfram eins og ekkert hefði í skorist, bjartsýnn og glaður. Verst þótti honum að þurfa að hætta á sjónum en hann vann hér heima í staðinn. Smíðaði glugga og byggði sólpall milli þess sem hann fór í lyfjagjafir eða lá á sjúkrahúsi. Í veikindunum stytti hann sér stundir við að spila á hljóðfæri, aðallega gítarinn sem fylgdi hon- um frá unga aldri. Ef eitthvað sótti á hugann spilaði hann nokk- ur lög, sagði það vera sína sál- fræðimeðferð. Síðasti mánuður reyndist Óla erfiður og hann var orðinn þreyttur. Það er sárt að sjá á eftir honum, við áttum eftir að gera svo margt. Takk fyrir allt og allt, elsku vinurinn minn, blessuð sé minning þín. Anna Kristín Magnúsdóttir. Í dag kveðjum við snillinginn hann pabba minn. Ég var alltaf mikill pabba- strákur og fylgdi honum eftir eins og skugginn hans þegar ég var lítill. Pabbi var skemmtilegi gaur- inn sem var allaf til í allt, hann var duglegur að gera eitthvað með okkur og gerði við allt sem bilaði. Með honum fengum við systkinin að upplifa svo margt sem gerði okkur reynslunni ríkari. Hann tók okkur t.d. öll með á sjóinn í vikutúr. Ég var átta ára þegar ég fékk að fara fyrsta túrinn, ég fór síðan á hverju sumri eftir það einn túr. Hann klæddi mig í svartan ruslapoka, batt snæri um mittið og svo var maður settur upp á fiskikassa og fékk hníf til að slægja með eins og hinir karlarn- ir um borð. Þegar ég var lítill var pabbi að róa á Flæmska hattinum við Kan- ada. Hann sendi mömmu stund- um fax með stuttum skilaboðum um hvernig gengi. Einn daginn fór ég í leikskólann með innkaupastrimil úr Bónus í tösk- unni. Ég sat svo og skoðaði strim- ilinn þegar einn kennarinn spurði hvað ég væri með. Ég svaraði: „Ég er með fax, á ég að lesa það fyrir þig?“ Kennarinn játaði því og ég las: „Elsku drengurinn minn, pabbi kemur bráðum heim.“ Hann var einfaldlega besti pabbinn. Ég er þakklátur fyrir tíma okkar saman, minningar um þig lifa með mér. Mitt fley er lítið en lögurinn stór og leynir þúsundum skerja en aldrei mun granda brim né sjór því skipi er drottinn má verja. (Vald. V. Snævarr) Stefán Viðar Ólason. Það er erfitt að koma orðum að því hve mikið ég á eftir að sakna hans pabba, sem kvaddi okkur allt of snemma eftir harða bar- áttu við krabbamein. Hann hefur ávallt komið mér til bjargar og að geta aldrei aftur leitað til hans og fengið hjálp eða góð ráð er satt að segja nánast óhugsandi. Þar að auki er erfitt að gera honum skil í þessu formi. Til þess þyrfti ef til vill heila bók. Ef ég ætti að taka hann saman í nokkr- um orðum myndi ég segja að hann væri umhyggjusamur, hress, duglegur, sterkur, fyndinn og mjög svo flinkur í alla staði. Pabbi reri til sjós nánast alla sína ævi og var oft lengi frá heim- ilinu. Það voru ávallt miklir gleði- fundir þegar hann kom heim aft- ur og þótti mér alltaf frábært að sækja hann niður á bryggju eða jafnvel á flugvöllinn. Ég fór oft með honum á sjóinn sem barn og kunni vel að meta hvað við brugð- um mikið á leik. Seinna meir fór ég á sjóinn með honum sem há- seti og lærði þar margt um hann og sjálfan mig. Þar var ekkert dregið úr væntingum og ég þurfti að standa mig eins og allir aðrir. Við pabbi áttum einstaklega mikið af góðum stundum saman og það er sárt að þær verði ekki fleiri. Í gegnum tíðina kenndi hann mér ansi margt og var ávallt tilbúinn að aðstoða mig og aðra fjölskyldumeðlimi við hvað sem var. Það gerði hann iðulega glað- ur í lund, þar sem hann var sjald- an ánægðari en þegar hann var með næg verkefni fyrir höndum. Pabba verður svo sannarlega sárt saknað. Samúel Karl Ólason. Nú ert þú fallinn frá elsku son- ur, eftir situr stórt tómarúm í hjarta mínu sem erfitt verður fylla. Þú varst snillingur í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur. Lítið mál fyrir þig að byggja þér og Önnu hús, í Bolungarvík. Ég, pabbi þinn og systur komum vestur til að aðstoða ykkur og hef ég aldrei kynnst eins samheldum hjónum og ykkur Önnu Kristínu. Einstaklega gaman þótti mér að fá verkin þín sem þú bjóst til handa mér úr rennibekknum sem ég gaf þér. Ég á eftir að sakna símtalanna þinna, á erfitt með að trúa að ég eigi ekki eftir að heyra röddina þína aftur. Þér var mjög umhugað um framkvæmdir á æskuheimilinu og stjórnaðir verkinu á þinn ein- staka hátt, þá orðinn veikur. Nú ertu laus við allar þjáning- ar. Ég veit að það var vel tekið á móti þér, þú og pabbi þinn sam- einaðir á ný. Takk fyrir allt, elsku drengurinn minn. Elsku Anna, Samúel, Stefán, Heiður og Aþena Björk. Guð styrki ykkur í þessari miklu sorg. Elska þig. Mamma. Föstudaginn 23. febrúar var höggvið stórt skarð í hjarta mér þegar elskulegur bróðir minn og vinur, Óli Fjalar Ólason, kvaddi þennan heim eftir hetjulega bar- áttu við krabbamein. Ég gleymi aldrei þeim degi þegar þau hjónin Óli og Anna Kristín komu við hjá mér eftir að hann var búinn að vera í rannsóknum. Óli sagði mér að hann væri með fleiri en eitt mein og hann væri kominn í líkn- andi meðferð. Hann sá auðvitað að mér krossbrá og sagði þá bros- andi að það þýddi ekki endilega neitt slæmt heldur væri það kall- að líknandi meðferð þegar ekki væri hægt að fjarlægja meinið og nú væri ekkert annað en að fara í lyfjameðferð. Þessi elska sýndi okkur hvað hann var mikill kraftaverkakall miðað við hvað hann gekk í gegnum. Ég var tvisvar búin að kveðja Óla, bæði á gjörgæslu Landspítalans og Borgarspítalans. Það var ekki af engu sem ég kallaði hann krafta- verkið okkar. Það gaf mér svo mikið að geta kvatt þig uppi á Akranesi á fimmtudaginn, ég sakna þín svo mikið. Hvíl í friði, elsku brói, ég mun gera allt sem ég get fyrir Önnu Kristínu og yndislegu börnin þín. Kveðja, þín systir Harpa. Elsku bróðir, stórt skarð hefur verið höggvið í fjölskylduna. Það er skrýtið til þess að hugsa að þú sért farinn frá okkur. Minningin um þig lifir í hjörtum okkar. Þú varst tveimur árum yngri en ég og eru flestar æskuminn- ingar mínar tengdar þér. Þú varst eins og skugginn minn og deildum við saman herbergi á Túngötunni. Það eru margar sög- ur úr æsku sem við höfum skemmt okkur yfir í gegnum tíð- ina. Ein er þegar ég ætlaði að hjálpa þér og reima fyrir þig skó- inn. Við vorum sem oftar staddir fyrir utan bræðsluna og ég lyfti þér upp á tunnu sem var þar fyrir utan. Þú stökkst á hraða ljóssins í fangið á mér aftur og við hlupum sem fætur toguðu til Jóu ömmu á Bjargi þar sem hún hjúkraði þér. Þegar málið var skoðað betur hafði ég skellt þér upp á tunnu sem innihélt vítissóda. Ein minningin er þegar Árni bróðir okkar bauð okkur í siglinu á pollinum, þá vorum við 11, 6 og 4 ára. Það er skemmst frá því að segja að við enduðum allir á bóla- kafi. Það var nágranni okkar Alli ríki sem aumkaði sig yfir okkur, skellti okkur öllum í skottið og skutlaði okkur heim. Þar þurftum við að berhátta okkur á tröppun- um, fengum flengingu á bossann og sátum svo allir hágrenjandi inni í herbergi. Oft háðum við magnaða fót- boltaleiki í holinu á Túngötunni. Það voru ófáir hlutirnir sem við brutum fyrir mömmu og pabba í hita leiksins, enda keppnisskapið mikið. Þó að þú hafir alltaf verið rólegur og hvers manns hugljúfi hafðir þú mikið skap og eins gott að forða sér þegar það braust fram. Þú varst mikill grúskari alla tíð og í mikilli þekkingarleit. Þú vaktir oft fram á rauðar nætur við að skrúfa sundur og saman einhverja hluti. Ég veit til þess að þessi árátta þín hefur oft komið sér vel fyrir þig. Við byrjuðum báðir snemma á sjó. Þegar ég var 16 ára og þú 14 ára fórum við okkar fyrstu sigl- ingu með Sæljóninu til Hull. Við höfum oft skemmt okkur yfir minningum úr þessari ferð. Sjó- mennskan varð ævistarf þitt og var ég mikið stoltur af þér þegar þú kláraðir Stýrimannaskólann. Ég veit að þú varst magnaður sjó- maður og frábær skipstjóri. Mér er það minnisstætt þegar Anna Kristín kom á vertíð á Eski- fjörð. Hún var ekki búin að vera lengi í bænum þegar þú varst bú- inn að ná henni. Þið byrjuðuð svo ykkar búskap á Bolungarvík þar sem þú stundaðir sjómennskuna og ykkur fæddust þrjú yndisleg börn. Þú fékkst mig til að koma og fara einn afleysingartúr á Heiðrúnu sem varð nokkrir mán- uðir. Ég bjó þá hjá ykkur Önnu og Samma, þetta voru góðir tímar og ýmislegt brallað. Ég minnist sérstaklega fyrsta og eina út- reiðartúrsins sem ég hef farið í á ævinni, sem endaði skrautlega. Þegar ég svo kvaddi Bolungarvík vildi Sammi, sem þá var fjögurra ára, koma með mér og pakkaði niður sænginni sinni, gallabuxum og einum sokk. Hvíldu í friði, elsku Fjalar minn, ég veit að það verður tekið vel á móti þér hinum megin. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þinn bróðir Ragnar Þór Ólason. Elsku besti bróðir minn, Óli Fjalar, er dáinn eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Stórt skarð er komið í systkinahópinn. Alltaf vissi ég að ég ætti alveg einstaklega sterkan og góðan bróður en alltaf komst þú manni sífellt meira á óvart. Ég spurði börnin mín oft hvort þau vissu að bróðir minn væri ofurhetja, því það varst þú. Ég veit að pabbi hefur tekið vel á móti stráknum sínum og passar þig þar til við hittumst næst. Við grínuðumst oft með hvað þú værir mikill mömmustrákur, enda áttuð þið mamma einstakt samband. Þegar þú hringdir á Túngötuna kvödd- um við mömmu alltaf því að við vissum að það yrði langt símtal, við hugsum áfram vel um mömmu. Ég man þegar þið Anna bjugg- uð á Bjargi, það var alltaf jafn gaman að koma upp eftir til ykk- ar í smá heimsókn. Ferðirnar okkar á Bolungarvík og svo á Grundarfjörð voru nokkrar og þið hjónin og börnin ykkar eruð höfðingjar heim að sækja. Tíminn sem við áttum saman í Reykjavík þegar ég kom með mömmu til læknis, þegar þú komst til að vera með og hjálpa okkur, var yndislegur. Mamma gamla bauð okkur út að borða og svo var afagullið þitt Aþena Björk að skottast með okkur. Mikið er ég þakklát fyrir þennan tími sem ég átti með þér, elsku Fjalar. Það var svo gaman að taka þátt í því þegar Túngata 2 var klædd, enda varst þú þar fremstur í flokki og stýrðir þessu öllu eins og þér einum var lagið. Mér fannst frábært að þú komst með fjölskyldunni þinni út til Tenerife í desember, ég elskaði að fá snöpp frá börnunum þínum úr ferðinni. Elsku Fjalar, ég er ekki að trúa því að þú sért farinn. En þér hefur verið ætlað stærra verkefni annars staðar með pabba. Elsku Anna Kristín, Samúel Karl, Stefán Viðar, Heiður Björk, Aþena Björk og mamma. Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Elska þig – þín systir Alda Björk. Elsku brói, stórt skarð er höggvið í stórfjölskylduna við frá- fall þitt. Sitjum við hér systurnar á æskuheimili okkar og hugsum um allar gleðistundirnar sem við áttum með þér. Og kemur fljótt upp í huga okkar þegar við feng- um Önnu þína í lið með okkur til að plata þig út á Reykjavíkur- flugvöll að sækja afmælisgjöfina þína þegar þú varðst fimmtugur. Úti á flugvelli biðu börnin þín og Harpa systir með eina af afmæl- isgjöfunum þínum, sem var flug- miði fyrir ykkur austur á Eski- fjörð og þar beið ykkar svaka partí þar sem þú sjálfur hélst uppi fjörinu og spilaðir af þinni al- kunnu snilld á kassagítar. Og yljum við okkur við minn- ingarnar þegar við vorum litlar og biðum spenntar eftir að fá þig heim úr siglingu á Sæljóninu SU 104, þú komst alltaf hlaðinn gjöf- um handa okkur litlu systrum þínum. Við erum svo óendanlega stolt- ar að eiga svona frábæran bróð- ur. Það sem þú tókst þér fyrir hendur gerðir þú með stæl. Þú gast gert allt. Aldrei komið að tómum kofanum hjá þér. Þú ert frábær fyrirmynd, elsku brói. Elsku Anna, Samúel, Stefán, Heiður og Aþena, megi góður Guð styrkja ykkur á þessum erf- iða tíma. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Kveðja, þínar systur Hulda, Þórey og Erla. Þeir sem guðirnir elska deyja ungir segir gamalt máltæki. Fólk hefur fundið þetta til að hugga sjálft sig og aðra í raunum sínum. Í dag er til grafar borinn tengda- sonur minn Óli Fjalar Ólason, sá góði og glaði maður sem öllum vildi hjálpa. Hann var góður stjórnandi og skipstjóri, einstak- ur fjölskyldufaðir, eiginmaður og afi. Anna Kristín dóttir mín skrapp austur á Eskifjörð á ver- tíð. Þegar hún kom heim um jólin kom með henni laglegur piltur, sem áður en varði var farinn að mála stofuna og laga til hjá mér. Um sumarið fóru þau á Strandir og það fór hrollur um drenginn sem aldrei hafði sofið í eyðibæ. „Þetta er nú varla mannabústað- ur,“ sagði hann. Seinna fór hann að taka til við endurbætur á þessu gamla húsi og undi sér vel við það og þar ætlaði hann að verða gam- all. Þeim féll afar vel tengdafeðg- unum. Þar voru komnir snillingar saman, annar þrotinn að kröftum en hinn ungur og vaskur sem allt- af tók tillit til þess gamla og bar undir hann hvernig best væri að vinna verkin. Nú eru þeir báðir farnir með stuttu millibili og við syrgjum. Góður Guð gefi fjöl- skyldunni huggun í sorginni. Blessuð sé minning Óla Fjalars, þess góða drengs. Óttast ei. Sú hönd er mild og hlý, sem hvarmi þreyttum lokar hinsta sinn, Óli Fjalar Ólason Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.