Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 14
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2018
Bi
rt
m
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th
.a
ðv
er
ðg
etu
rb
re
ys
tá
nf
yri
rva
ra
.
Frá kr. 254.995 m/hálfu fæði o.fl.
Innifalið: Flug og flugvallarskattar til og frá Agadir, innrituð 23 kg
taska og 10 kg handfarangur. Gisting á 4* hótelum í 11 nætur m/
hálft fæði innifalið. Hádegisverður daga 2, 3, 4, 6 og 8. Akstur og
kynnisferðir samkvæmt ferðatilhögun. Íslensk fararstjórn miðað við
lágmarksþátttöku 20 manns.
Íþessari ferð gefst farþegum tækifæri til að skyggnastinn í framandi heim Marokkó. Komdu með og upplifðu
borgirnar Marrakech, Essaouira og Agadir í Marokkó!
Marrakech er forn konungsborg sem á rætur sínar að rekja
til 11. aldar en dvalið er þar fyrstu 5 næturnar. Í dag er
borgin fjórða stærsta borg Marokkó eftir Casablanca, Fez
og Tanger. Í borginni er mikið um að vera, þá sérstaklega á
miðbæjartorginuDjemaa El Fna enþar er einstök stemming.
Sagt er að hvergi í Marokkó finnist betur þessi samruni
gamla tímans og nútíma en í Marrakech, borgin dáleiði, töfri
og kryddi upplifun þess sem sæki hana heim! FráMarrakech
er ekið til sjávarþorpsins Essaouira, þar semgist er í 3 nætur.
Essaouira er ein af elstu hafnarborgum Marokkó og í
borginni er að finna vel varðveitt borgarvirki frá 18. öld sem
er á heimsminjaskrá Unesco. Á slóðum Essaouria fóru fram
tökur Orson Welles á kvikmyndinni Óþelló og upp úr 1970
fóru hipparaðflykkjast í borgina. Í bænumergamanað rölta
um gamla bæjarhlutann en ólíkt Marrakech er auðvelt að
rata um borgina. Essouira er einnig þekkt fyrir áhugaverðar
verslanir og hér hefur þróast sérstakur s.k. „naive“ myndstíll
semkallast Gnawaog finnamáámarkaðnumog í galleríum.
Eftir dvölina í Essaouria er svo ekið til Agadir.
Agadir borgin er við strandlengju Marokkó en Agadir er
stærsti sólstrandarstaður Marokkó. Við dveljum síðustu
3 næturnar í Agadir og þegar komið er til borgarinnar
heimsækjum við „Kasbah“ sem eru rústir af borgarmúr
sem byggður var árið 1540 til varnar Portúgölum. Frá
borgarmúrnum er gott útsýni yfir alla borgina. Í Agadir er
bæði upplagt njóta alls þess sem borgin hefur upp á að
bjóða ásamt því að slaka á í sólinni, fara í arabískt Hammam
nudd / gufubað og njóta góða veðursins!
TÖFRANDI BORGIR
MAROKKÓ
Agadir – Marrakech – Essaouira
Fararstjóri: Vilborg Halldórsdóttir
9. maí í 11 nætur
Frá kr.
254.995
m/hálfu fæði o.fl.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
8
6
14
3
Allt að
10.000 kr.
afsláttur á mann
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta hafa verið mjög annasamir
dagar og allt öðruvísi en maður á að
venjast. Þetta er nýtt fyrir mér
enda í fyrsta skipti sem ég fer í
kosningabaráttu,“ segir Ingvar Vig-
ur Halldórsson, sem skipar efsta
sætið á A-lista stjórnar og trún-
aðarráðs Eflingar – stéttarfélags.
Ingvar kveðst hafa fengið frí úr
vinnunni til að sinna kosningabar-
áttunni og kunni vinnuveitanda sín-
um þakkir fyrir. Eins eigi eig-
inkonan þakkir skildar fyrir
stuðninginn.
„Við höfum gert mikið af því að
hitta fólk og spjalla. Þetta snýst
mest um það að fara á vinnustaði og
tala við fólkið. Eftir að kjörskráin
var afhent höfum við líka verið að
hringja í félagsmenn. Við höfum
fengið mikla hjálp við það og fyrir
það er ég endalaust þakklátur,“ seg-
ir Ingvar.
Hver eru helstu áhersluatriði
kosningabaráttunnar, mikilvægustu
baráttumálin?
„Það eru allra lægstu launin og
húsnæðismarkaðurinn. Við viljum
hækka lægstu launin. A-listinn legg-
ur líka áherslu á áframhaldandi
uppbyggingu á íbúðafélaginu
Bjargi. Ég var í stjórn þar fram til
2016 og vil byggja áfram á þeirri
hugmyndafræði. Hún gengur út á
að auka framboð á leiguíbúðum fyr-
ir þá tekjulægri og að ekki þurfi að
greiða meira en 20% af tekjunum í
húsnæði,“ segir Ingvar og leggur
áherslu á þetta sé stórmál miðað við
núverandi ástand á húsnæðismark-
aði.
„Það er svo mikill skortur á hús-
næði. Ég á börn á þeim aldri að þau
eru að hugsa um að koma sér út á
húsnæðismarkaðinn. Það er ekki
hlaupið að því, þú þarft að vera vel
stæður til að komast að heiman. Það
er heldur ekki auðvelt fyrir full-
orðna að fá húsnæði sem hentar.“
Af hverju eiga félagsmenn að
kjósa þig og A-listann?
„Fólkið á A-listanum er fólk sem
er búið að vera í mörg ár í stétt-
arfélagsbaráttu. Ég hef sjálfur verið
í sjálfboðavinnu í mörg ár, alveg frá
því ég var unglingur. Á listanum er
þekking og reynsla sem skilar sínu.
Það er betri kostur en að fá inn
hálfa stjórn af fólki sem hefur aldrei
sótt fundi í félaginu.“
Hvernig meturðu stöðuna á
vinnumarkaði á næstunni í kjölfar
þess að samningum var ekki sagt
upp?
„Ég geri ráð fyrir því að það verði
hörð átök á vinnumarkaði í lok árs-
ins. Það verður í öllum félögum og
alls staðar á landinu. Við erum til í
slaginn.“
Listi skipaður fólki með
þekkingu og reynslu
Stjórnarkosningar fara fram í Eflingu – stéttarfélagi á mánudag og þriðjudag.
Tveir listar eru í framboði, A-listi stjórnar og trúnaðarráðs og B-listi Sólveigar
Önnu Jónsdóttur. Morgunblaðið tók púlsinn á oddvitum framboðanna
Morgunblaðið/Hari
A-listi Ingvar Vigur segir fólkið á A-lista hafa lengi verið í stéttarfélagsbar-
áttu. Það sé betri kostur en fólk sem aldrei hafi sótt fundi í Eflingu.
„Þetta hefur verið mjög erfið barátta
og við höfum þurft að leggja gríð-
arlega hart að okkur. Okkur hefur
hins vegar gengið ótrúlega vel og við
finnum fyrir auknum stuðningi frá
fólki,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir,
sem skipar efsta sætið á B-lista Vors í
verkó.
„Þessi aukni stuðningur er sér-
staklega áberandi þegar við förum
inn á kvennavinnustaðina. Þar finn-
um við áhuga og stuðning, málflutn-
ingur okkar höfðar mjög til fólks sem
vinnur á þeim stöðum. Við höfum
enda lagt áherslu á að ræða ekki bara
um þessi lægstu laun sem þar eru,
heldur líka þessa ofsavinnu sem lögð
er á herðar kvenna í umönn-
unarstörfum,“ segir Sólveig
Hún segir að kosningabaráttan
hafi snúist um að heimsækja vinnu-
staði og ræða við félagsmenn. Þá hafi
hún farið í mörg viðtöl og skrifað
greinar.
„Við höfum reynt að tala um hlut-
ina á hátt sem hefur ekki verið not-
aður lengi. Við höfum talað um arð-
rán og auðstétt þegar við höfum
heimsótt vinnustaði og þar erum við
bara að lýsa því sem blasir við okkur.
Þá auðvitað þekkir fólkið sem við er-
um að tala við þetta líka.“
Þegar Sólveig er spurð um helstu
áhersluatriði og mikilvæg baráttumál
nefnir hún lægstu launin og húsnæð-
ismál.
„Það er sláandi hversu illa hefur
verið samið fyrir hönd þeirra sem
neðst eru í þessu stigveldi sem Ísland
óumdeilanlega er. Laun hjá mörgum
hópum innan félagsins eru svo lág að
fólk þarf að vera í tveimur störfum til
að komast af. Þetta er áberandi þeg-
ar talað er við kvennastéttir. Ástand-
ið á húsnæðismarkaðinum snertir
líka marga félagsmenn, sérstaklega
ungar barnafjölskyldur. Þær eru
kannski að fá 250 þúsund krónur út-
borgaðar og þurfa að borga 200 þús-
und í leigu en njóta samt einskis ör-
yggis. Ég hef unnið með konum og á
vinkonur sem eru í þessari stöðu.
Húsnæðismálin hvíla á fólki, það er
brýnt að laga þau. Það er ekki hægt
að mjatla inn íbúðum og segja fólki að
bíða á meðan. Það er augljóst að
þessu kerfi þykir ekki vænt um okk-
ur. Það er ekki tilbúið að bjóða okkur
upp á þau mannréttindi að fá aðgang
að húsnæði sem við getum verið
örugg með án þess að vera í þessum
þrældómi alltaf.“
– Af hverju eiga félagsmenn að
kjósa þig og B-listann?
„Auðvitað kýs fólk eftir sinni sam-
visku en ég hvet fólk til að láta ekki
gabba sig. Það ætti að kynna sér hvað
við höfum verið að segja, við erum til
dæmis með síðu á Facebook, og
leggja upplýst mat á málflutning okk-
ar. Það getur svo borið saman hvern-
ig ég tala og hvernig Ingvar Vigur
talar og metið hvort okkar er hæfara
til að leiða þetta félag.“
– Hvernig meturðu stöðuna á
vinnumarkaði á næstunni í kjölfar
þess að samningum var ekki sagt
upp?
„Við á B-listanum töldum rétt að
segja samningunum upp. En fyrst
svona fór þá hlýtur fólk innan verka-
lýðshreyfingarinnar, þar með við ef
við komumst til valda, að herða virki-
lega á. Það þarf að mæta við samn-
ingaborðið með alvöru róttækar kröf-
ur. Það þarf að krefjast þess að bæta
í alvöru lífskjör verkafólks. Að það sé
ekki endalaust selt sem vinnuafl án
þess að öðlast eðlileg og stöðug lífs-
kjör.“
Verkafólk á skilið að öðlast
eðlileg og stöðug lífskjör
Morgunblaðið/Hari
B-listi Sólveig Anna Jónsdóttir og hennar fólk leggur áherslu á að hækka
lægstu laun og leysa húsnæðisvanda verkafólks. „Ofsavinnu“ þarf að linna.